NT - 28.08.1984, Blaðsíða 28

NT - 28.08.1984, Blaðsíða 28
3 LURBR l=»U AflBliiH HRINGDU ÞÁ I SÍMA 68-65 Vid tökum vid ábendingum um fréttir allan sólarHringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leíðir til fréttar í blaðínu og 10.000 krénur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt Ðorgfirðingur og Hafnfirðingur á sitt hvorum bílnum: Afnotagjöldin: 35% ofaná -fariþauí innheimtu ■ Afnotagjöld Ríkisútvarpsins hækka um liðlcga 35% vcrði þau scnd til innheimtu hjá lögfræðingi. Pannig þarf notandi að greiða 1783 krónur í innheimtukostnað, skuldi hann 5000 krónur með vöxtum. Innheimtukostnaðurinn er fundinn samkvæmt taxta lög- mannafélagsins. Að sögn Theódórs Georgsson- ar, innheimtustjóra Ríkisútvarps- ins, eru afnotagjöld stofnunarinn- ar send til innheimtu, þegar not- andinn skuldar heilt ár, eða tvenn- ar greiðslur. Greiði notandinn aftur á móti gjald sitt áður en til sli'kra aðgerða kemur, bætast 10% ofan á eftir eindaga, sem er 3 vikum eftir gjalddaga. Margra kílómetra biðraðir mynduðust í báðar áttir Mikið um gripdeildir um helgina ■ Talsvert annríki var hjá lög- gæslunni í Reykjavík um síðustu helgi, enda mikið um gripdeildir. Nokkur innbrot voru framin í miðbænum, en að sögn RLR var ekki um stórtjón að ræða í þeim tilfellum. Menn beittu þó ýmsum aðferðum til að nálgast væntanlegt þýfi sitt, t.d. var bíl ekið á útidyr fyrirtækis í Holtunum til að brjóta þær upp. Þrjótarnir voru gripnir skömmu seinna. Brotist var inn í bíl fyrir utan Tónabíó og þaðan stolið útvarpi, segulbandi og hátölurum. Var bíll- inn mikið skemmdur eftir aðfar- irnar. Þá var brotist inn í vöru- bifreið í Kópavogi og tvær tal- stöðvar teknar ófrjálsri hendi úr honum. sunnudaginn. Þeir voru að koma hvor úr sinni áttinni og voru báðir á bílum þannig að dæmið gekk ekki upp og þeir skullu saman. Mikil umferð var á þessum tíma. Skagamcnn að koma af bikarleiknum og ferða- menn afStór-Reykjavíkursvæð- inu á leið heim eftir helgarrúnt- inn. Mynduöust margra kíló- metra biðraðir í báðar áttir. Þurftu menn að bíða röskan klukkutíma eftir að komast leið- ar sinnar, því að lögreglan í Borgarnesi þurfti sinn tíma til að komast á staðinn. Voru margir orðnir heitir af allri þess- ari bið, en eins og allir vita er fólk í bílum ekki skapbesta fólk í heimi. Hvernig skyldi annars standa á því? ■ „Óðir Skagamenn á jeppa“ freistuðu þess að komast utan vegar. ■ Borgfirðingur og Hafnfirð- metra breiða brú rétt fyrir norð- ingur ætluðu báðir yfir tveggja an Botnsskála í Hvalfirði á ■ Annars var veðrið indælt. ■ Hrikalegar raðir mynduðust í Hvalfirðinum á sunnudaginn þegar tveir bflar ætluðu á sama andartaki yfir sömu brúna og rákust auðvitað saman. Hagstofan: Aðeins ráð- settir eldri borgarar teknir gildir I Ef þú ætlar að fá þér nafnskírteini með mynd á Hagstofunni og átt ekki öku- skírteini eða vegabréf, verð- ur þú að hafa manneskju með þér sem er tilbúin til að votta með undirskrift sinni hver þú ert. Viðmælandi blaðsins fékk þessar upplýs- ingar gegnum síma og mætti á staðinn með mágkonu sinni, virðulegum opinberum starfsmanni, margra barna móður og læknisfrú ofaní kaupið. En það reyndist ekki nóg að draga með sér þennan dyggðum prýdda borgara. því að mágkonan var og er ennþá ekki orðin þrítug. Þeim skötuhjúum var nefni- lega tjáð að ekki væri tekið mark á fólki undir þrítugu í þessum efnum. Klemens Tryggvason hag- stoíustjóri sagði í viðtali við NT að það yrði að vera ráðsett fólk sem vottaði þannig með undirskrift sinni. Hagstofan hefði slæma reynslu af þvt að unglingar væru að votta hver fyrir annan. Þetta væri einungis gert í öryggisskyni. NT myndir Róbert Ætluðu báðir yfir 2 metra breiða brú

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.