NT - 28.08.1984, Blaðsíða 5

NT - 28.08.1984, Blaðsíða 5
■ Ljósmyndari NT náði þessari skemmtilegu mynd af þyrlu Landhelgisgæslunnar við Viðeyjar- sund. Þyrian var að flytja þakjárn fyrir Þjóðminjasafnið út í Viðey, þar sem það verður notað á hlöðuna. Flugstjóri var Hermann Sigurðsson, en á jörðu niðri stjórnaði Berghreinn Þorsteinsson flugvirki, og auk þeirra tók Oddur Bjarnason þátt í flutningnum. NT-mynd: s*crrir. Þridjudagur 28. ágúst 1984 Fá Steindórsmenn kannski atvinnuleyfi í október? „Öllum frjálst að sækja um“ segir Ármann Magnússon, formaður úthiutunarnefndar Reykjavíkurborg: Fimmmanna sendinefnd í heimsókn til Moskvu ■ Fimm manna sendi- nefnd frá Reykjavíkur- borg er nú í opinberri heimsókn í Moskvu í Sovétríkjunum. Fimm- menningarnir héldu aust- ur um síðustu helgi og mun heimsókn þeirra standa í rúma viku. Þeir eru að endurgjalda heim- sókn fulltrúa Moskvu til Reykjavíkur í fyrra. Sendinefndina skipa Davíð Oddsson borgar- stjóri og borgarfulltrúarn- ir Markús Örn Antonsson, Kristján Benediktsson og Sigurjón Pétursson. Þá er Jón G. Tómasson, borgar- ritari, með í förinni. Opinberar heimsóknir scm þessi eru farnar á þriggja til sex ára fresti, en auk Moskvu er farið í reglulegar ferðir til Norðurlandanna, að Fær- eyjum og Grænlandi með- töldum. Tilgangur ferðarinnar er að kynna sér borgarmál og stofnanir í höfðuborg Sovétríkjanna, auk þess sem ýmis sameiginleg vandamál, svo sem mengun, eru rædd á fund- um íslendinganna og Sovétmannanna. ■ „Öllum er frjálst að sækja um, en reglurnar eru þannig, að það er starfsaldurinn, sem ræður." Þetta sagði Árrnann Magnús- son, formaður úthlutunarnefnd- ar atvinnuleyfa til leigubifreiða- stjóra, þegar hann var spurður hvort bílstjórar hjá Steindóri fengju leyfi til aksturs við út- hlutun í október. Steindórsstöð- in verður lögð niður þann 11. október, í samræmi við dóm Hæstaréttar frá því í júlí. Ármann sagði, að ekki væri hægt að segja til um hve mörg- um leyfum yrði úthlutað í októ- (gæsluvarð- haldi vegna ávísanafals ■ Einn maður situr nú í gæsluvarðhaldi vegna ávísanamisferlis. Sam- kvæmt upplýsingum RLR þá er hér um talsverðar fjárupphæðir að ræða sem sviknar hafa verið út með fölsuðum ávísunum. Ekki eru þó öll kurl komin til grafar enn og er unnið að rannsókn málsins. ber, en aðeins yrði úthlutað 'A þeirra leyfa, sem losnuðu. Væri það gert vegna þess, að stéttin væri of fjölmenn. Hann sagði ennfremur, að almennt væru umsækjendur fleiri en leyfi á lausu. Umsóknarfrestur um at- vinnuleyfin rennur út 1. október og verða þeir, sem hyggja á leiguakstur að leggja fram vott- orð með umsókn sinni þess efnis, að þeir komist inn á stöð, fái þeir leyfi. Sagði Ármann, að það ætti ekki að verða neinum vandkvæðum bundið. „Það verður engum hefndarráðstöf- unum beitt“ sagði hann. Lýst er eftir stolnum Fiat! ■ Grænum Fiat 127 árgerð 1978 var stolið frá Grettisgötu aðfaranótt sl. laugardags. Ekk- ert hefur spurst til bifreiðarinn- ar síðan, sem ber einkennisstaf- ina R-47956. Þeir sem kynnu að hafa orðið bifreiðarinnar varir eftir þann tíma er bent á að hafa samband við Iögregluna í Reykjavík strax. Verslið ódýrt Teg. 290. Litir: svart eða hvitt leð- ur. Stærðir36—41. Verð kr. 675,- Teg. 370. Litur: ijósbrúnt. Stærðir 36-41. Verðkr. 590,- Teg. 8001. Litir: svart/svart, svart/grátt, svart! vínrautt eða svartikarrigult leður, m/gúmmi- sóla. Stærðir 36—41. Verð kr. 498.- Teg. 7211. Litir: svartur eða hvitur. Stœrðir 36—39. Verðkr.298,- Teg. 204. Litur: brúnt leður. Stærðir 36—41. Verðkr. 590,- Teg. 3001. Litir: grátt eða rautt, hamrað leður. Stærðir36—41. Verö kr. 575,- Teg. 2001. Litir: svart, rautt eða dökkblátt, hamrað leður. Stærðir 36-41. Verðkr. 495,- Teg. 5408. Litir: hvitt leður. Stærð- Teg. 11. Litir: svart/grátt, ir 36—41. svart/vino eða svart/svart leður. Verð kr. 745,- Verð kr. 395,- Póstsendum Teg. 7339. Litir: rautt eöa hvitt. Stærðir 36—41. Verðkr. 370,- Skóverslun Teg. 277. Litur: blátt leður. Stærð- ir 36-41. Verðkr. 398,- Teg. 7081. Litur: svart. Verð kr. 295.- Teg. 7573. Litur: hvítt. Verð kr. 298.- Þessir skór eru á aðeins kr. 100.- Teg. 37. Litir: hvitur, svartur eða rauður, m/leðursóla. Teg. 251. Litur: Ijósbrúnt leður. Stærðir 36—41. ÞÓrðdr Péturssonar Kirkjustræti8, sími 14181-Laugavegi95, sími 13570.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.