NT - 28.08.1984, Blaðsíða 3

NT - 28.08.1984, Blaðsíða 3
Kjördæmisþing framsóknarmanna á Vestfjörðum: Róstur vegna radarstöðva! Tveir gengu af fundi ■ „Forsætisráðherra er búinn að festa sig á það að það sé nauðsynlegt að setja radarstöð hér á Vestfirði. Ég er hins vegar alveg harður á því að gera það sem ég get til að koma í veg fyrir að honum takist það,“ sagði Heiðar Guðbrandsson í Súða- vík, en á kjördæmisþingi Fram- sóknarflokksins sem haldið var í Bolungarvík um helgina var hann einn af flutningsmönnum tillögu er andmælti því að radar- stöð, sem fyrirhuguð er í Stiga- hlíðinni við Bolungarvík, yrði sett upp. Forsætisráðherra flutti hins vegar breytingatillögu um að í stað radarstöðvar kæmi orðið herstöð. Sú breytingatil- laga var samþykkt og þá voru þeir Heiðar og félagar allt í einu orðnir flutningsmenn að tillögu er andmælti herstöð enekki radarstöð. Því vildu þeir ekki una. Töldu málsmeðferðina óþinglega og gengu tveir flutn- ingsmanna af fundi. „Ég lít á þetta sem ólýðræðis- leg vinnubrögð Steingríms til að koma í veg fyrir að greidd yrðu atkvæði um þessa tillögu okkar," sagði Heiðar. „Ég er ekki að andmæla því að keypt verði flugstjórnartæki hingað á Vestfirði ti! þess að auka öryggi í samgöngum okkar, en hér er verið að setja upp stöð sem er kostuð af Bandaríkjamönnum og á að verða partur af njósna- kerfi Bandaríkjanna og svona kerfi myndi auka líkur á því að við yrðum fórnarlömb í styrjöld." ■ Forsætisráðherra hlustar brúnaþungur á umræður. NT-mynd: Finnbogi Þriðjudagur 28. ágúst 1984 3 ■ Frá kjördæmisþingi framsóknarmanna á Vestfjörðum um helgina. Magnús Reynir Guðmundsson í ræðuStÓI. NT-mynd: Kinnbogi Deildarstjóri launadeildar fjármálaráðuneytis: Kennarar fá sumarlaunin I ’S7’Sm ■ „Ég á von á því að ef hann starfaði út kennslutímabilið þá fengi hann kaup út ráðninga- tímabilið eða til loka júlí", sagði Indriði H. Þorláksson deildar- stjóri launadeildar fjármála- ráðuneytisins, aðspurður um það hvernig gert yrði upp við kennara sem segði upp störfum 1. mars með þriggja mánaða fyrirvara. „Sömuleiðis fengi kennari við 9 mánaða skóla sem kenndi til loka apríl 8/9 hluta af árslaunum“. Indriði gat þess að uppgjörsmátinn hefði verið þessi ef kennarar hættu á kennslutímabilinu og hann kvaðst ekki eiga von á því að það breyttist neitt þó að um hópuppsagnir kennara væri að ræða. Eins og komið hefur fram í NT íhuga kennarar nú hópupp- sagnir í kjölfar samninganna í haust. Samkvæmt lögunum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna frá 1954 getur ríkið framlengt uppsagnarfrest um 3 mánuði ef um hópuppsagnir er að ræða. Ekki hefur komið til þess að þessu ákvæði væri beitt í seinni tíð og er það skoðun ýmissa innan BSRB að þetta ákvæði stæðist ekki fyrir dóm- stólum a.m.k. ekki nema fram- lengingaákvæðinu væri beitt á fyrstu vikum uppsagnarfrests- ins. Þessi skoðun byggist m.a. á því að þegar menn segja upp störfum með 3ja mánaða fyrir- vara þá hafi þeir yfirleitt ráðið sig í aðra vinnu að þeim tíma loknum, eða ráðstafað sínum tíma á annan hátt. Það sama geti átt við um fleiri eða færri þó um hópuppsagnir væri að ræða, sem greinilega miði að því að ná fram bættum kjörum. Við veitum fullkomna bankaþjónustu um allt land Samvinnubankinn er ávallt skammt undan Samvinnubankinn starfrækir 19 afgreiðslustaði um land allt, sem tryggja viðskiptavinum fjölþætta þjónustu. Auk almennra bankaviðskipta annast Samvinnubankinn gjaldeyrisþjónustu við ferðamenn og námsmenn í flestum útibúum sínum. Einnig er hægt að opna innlenda gjaldeyrisreikninga í sömu afgreiðslum. Samvinnubankinn afgreiðir einnig VISA-greiðslukort, en þau eru útbreidd um allan heim. Samvinnubankinn leggur áherslu á persónuleg samskipti í heimilislegu umhverfi. Samvinnubankinn Útibú í öllum landsfjórðungum

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.