NT - 07.11.1984, Page 28

NT - 07.11.1984, Page 28
Maturinn keypt- ur í Hafnarfirði en fötin í Reykjavík Verslunarkönnun í Garðabæ: ■ Elsta hús Reykjavíkur var byggt á sínum tíma af Skúla fógeta. Þar var lengi verslun Silla og Valda og seinna var þar rekinn lciktækjasalur. Nú er verið að innrétta þar veitingastað. NT-mynd: Kóbcrt Elsta hús borgarinnar fær nýtt hlutverk ■ Elsta hús borgarinnar, Aðalstræti 10, er þessa dagana að taka hamskiptum og breytast úr leiktækjasal yfir í veitingahús. Ef að líkum lætur verður dyrunum lokið upp fyrir svöngum og þyrstum höfuðborgarbúum þann 14. desember nk. Unnið er langt fram á kvöld og um helgar til að staðurinn verði tilbúinn í tæka tíð og eru Jón Erlendsson vélstjóri og Er- lendur Halldórsson flugmaður, helstu hvatamenn að uppsetn- ingu veitingahússins og munu þeir standa fyrir hinum daglega rekstri. Stofnað hefur verið sérstakt hlutafélag sem stendur að rekstrinum og hefur það' húsnæðið á leigu en ekki fékkst uppgefið í samtali við Erlend í gær, til hversu langs tíma það. væri. Sagði hann að innréttingár hefðu verið unnar í samráði við Húsfriðunarnefnd og hefðu þeir áhuga á að koma húsinu sem mest í sitt upprunalega horf. Þær breytingar sem hefðu verið gerðar á gluggum hefðu verið gerðar í samráði við byggingar- nefnd og hefði Húsfriðunar- nefnd ekki hreyft andmælum, ' en lagst gegn því að sett yrði í þá litað gler og hefði verið farið að þeim óskum. Ætlunin er að leggja áherslu á matsölu og er stefnt að því að vera með frekar fáa rétti en góða og allt yfirbragð staðarins á að vera sem óformlegast og þægilegast. Ö1 verður á boðstól- um, auk léttvíns og sterkra drykkja og mun staðurinn geta tekið á móti 140-150 manns þegar hann verður kominn í gagnið. Möguleikar eru fyrir hendi til stækkunar á efri hæð- inni ef svo horfir við og sagðist Erlendur vonast til að þeim tækist að reka þennan nýja stað þannig að borin verði nokkur virðing fyrir þessu elsta húsi borgarinnar. ■ Garðbæingar kaupa nær helminginn af daglegum neysluvörum sínum - mat og hreinlætisvörum - í stórversl- ununum þrem í Norðurbæ Hafnarfjarðar, nær fjórðung- inn í verslunum í Reykjavfk og aðeins rúman fjórðung í versl- unum í eigin heimabæ, að því er fram kemur í verslunar- könnun sem gerð hefur verið í Garðabæ, er náði til um 10. hvers heimilis í bænum. Ekki stafar þessi verslunar- máti vegna þess að fólk versli nálægt sínum vinnustað, þar sem aðeins innan við 7% þeirra sem sjá um matarinnkaup heimila í Garðabæ hafa vinnu- stað í Hafnarfirði. Raunar kom í ljós í könnuninni að Garðbæ- ingar fara lang oftast í verslun- arferðir sínar heiman frá sér, en í miklum minnihluta í leið frá vinnustað. Fatnað, skó, húsgögn, heimilistæki og aðra slíka hluti kaupa Garðbæingar hins vegar að lang mestum hluta í Reykja- vík, eða 77% hlutfall. Engar slíkar verslanir eru í Garðabæ nú. Að öðru leyti kaupa þeir þessa hluti aðallega í Hafnar- firði. Þó vekur athygli að um 2,2% af Garðbæingum telja sig kaupa fatnað sinn erlendis. Um 45% óska Garðbæinga um aukna verslunarmöguleika innan bæjar voru á sviði dag- vöruverslunar, en um 55% lutu að ýmiss konar annarri verslun og þjónustu. Mest bar þar á óskum um fatnaðar-, vefnaðar- vöru- og hannyrðaverslun. Reykjavík: Synti yfir Dýrafjörd fyrir 45 árum: Minnist ánægjulegs tíma - segir Ólafur Gunnarsson 65 ára sundgarpur sem lagði sömu vegalengd að baki í gær 1 „Þetta gengur vel, en ég mér eftir tveir á báti og ég man Kópavoginum og „Þetta gengur vel, en ég finn ég er farinn að verða stífur", sagði Ólafur Gunnars- son, aldraður sundkappi, í stuttu spjalli við NT, er hann blés mæðinni eftir 10(X) metra vegalengd, en í gær vann hann það afrek að synda 2000 metra í nýju sundlauginni á Seltjam- . arnesi. „Ég synti þessa vega- lengd yfir Dýrafjörð sumarið 1939, fyrir 45 árum síðan og synti þá til að spreyta mig“, sagði Ölafur er hann var inntur eftir því hvers vegna hann væri í að leggja á sig þetta sund, „en núna er ég að minnast ánægju- legs tíma og geri þetta ein- göngu fyrir sjálfan mig“, bætti hann við en ekki var mikil þreytumerki að sjá á honum eftir að hafa verið að í hálfa klukkustund. Ólafur, sem fyllir 65 ár í ' dag, þreytti sundið undir hand- leiðslu gamla sundkennara síns, Viggós Natanelssonar, sem kenndi honum fyrstu sundtökin í sjó vestur í Dýra- firði fyrir meira en hálfri öld síðan. Síðar kenndi Viggó honum á Núpi, þar sem Ólafi fór fyrst verulega fram í sundi að sögn Viggós, og það var eftir Núpsdvölina sem Ólafur lagði í Dýrafjarðarsundið. Sjórinn var 8 gráður! „Ég byrjaði að þjálfa þol- sund á Núpi og Viggó tók vel í þessa hugmynd mína“, sagði Ólafur er hann var spurður nánar um sundraun sína fyrir 45 árum síðan. „Þeir fylgdu mér eftir tveir á báti og ég man að kuldinn fór illa með mig, en þá var sjávarhitinn ekki meira en 8°! Ég synti yfir á 61 mínútu og var allur dofinn og kaldur er ég kom uppúr, en þó gat ég hlaupið upp fjöruna og heim til mín eftir volkið“. „Ég synti nú bara áskýlunni, eins og núna“, svaraði Ólafur, þegar hann var spurður hvern- ig hann hefði búið sig fyrir sundið, „það þekktust ekki þá þessi nýmóðins gallar en ég smurði mig allan með svína- feiti sem Viggó hafði fengið að sunnan og held að það hafi haft mikið að segja.“ Þetta gerði hann afi! „Það væri ekki svo fráleitt að endurtaka þetta eftir ein 5 ár ef heilsan verður ekki farin að gefa sig“, svarar hann að bragði spurningu þess efnis hvort hann gæti hugsað sér að endurtaka þetta. „Það gæti skapað for- dæmi fyrir aðra, ég á t.d. fjögur barnabörn hérna á Nesinu og það væri gaman ef þetta yrði þeim hvatning til að gera það sama einhverntímann seinna, segjandi sísona. Ja, þetta gerði hann afi, því ættum við ekki að geta gert það líka? Ólafur hefur verið mikið til sjós, m.a. bryti á hafrannsókn- arskipunum áður en hann kom í land og nú starfar hann sem gangbrautarvörður í Kópavogi. Var hann í lokin spurður að því hvers vegna hann synti í laug- inni á Seltjarnarnesi en ekki í Kópavoginum og svaraði hann því til að þetta væri besta sund- laugin á landinu sem hann hefði komið í og vildi hann miklu heldur synda hérna, seltan í vatninu gerði það verkum að það væri miklu léttara að synda. Og þar með kvöddum við þenn- an heiðursmann og sendir NT honum árnaðaróskir í tilefni dagsins! Ólafur: „Ég synti nú bara á skýlunni, eins og núna“. Hér bregður Ólafur fyrir sig bak- sundinu, sem er gott til að hvílast, en að hans sögn er miklu léttara að synda í nýju lauginni á Seltjarnarnesi en öðrum laugum vegna seltu- magnsins í vatninu. NT-myndir: Róbert ........... ■■■...............—' ■ ■ IEXIEX wH*wTm A HRINGDU ÞÁ f SflVIA 68-65-62 Vid tökum vid ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verda 1000 krönur fyrir hverjja ábendingu sem leiðir til fréttar í bladinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðír til bitastædustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt Enn einn pöbbinn!

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.