NT - 25.11.1984, Qupperneq 4
Sunnudagur 25. nóvember 1984 4
M Nýlega kom út í Bandaríkjunum bók eftir Dr. Christa
Kamenetsky sem fjallar um þýskar barnabókmenntir á tímum
nasista. Christa Kamenetsky er prófessor í enskum bókmenntum
við Michigan háskóla, en erþýsk að uppruna oggekkí barnaskóla
í Pýskalandi fyrir stríð.
Nasistar álitu að eitt það mikilvægsta í starfi þeirra væri að
mennta ungu kynslóðina í réttum anda, þvi það væri hennar
hlutverk að fullkomna Þriðja ríkið. Var mikil vinna lögð í að
endursemja kennslubækur og fékk Hitler til þess blinda kerfís-
menn, sem fylgdu hugmyndum hans í einu og öllu.
Kamenetsky kannaði þessar bækur og eru niðurstöður rann-
sókna hennar vægast sagt óhugnanlegar. Þarsem engin gagnrýni
né mótstaða var fyrir hendi tókst að innræta gyðingahatur, andúð
á einstaklingshyggju, og kristilegum hugmvndum meðal þýskrar
æsku. Þeim var samtímis kennt að virða alræði ríkisins og
samfélgs yfír einstaklingnum, en tilgangur yfírvalda var að koma
á þjóðfélagi, þar sem allir voru steyptir í sama mót, hugsuðu eins
og óskuðu þess hins sama. Börnunum var ekki aðeins bannað að
hafa vissar hugmyndir, heldur voru þeim gefin skýr fyrirmæli um
hvernig þau áttu að hugsa, hvers konar tilfínningar væru réttar
og hvernig þau ættu að umgangast aðra. Endanlegt takmark var
að einangra börnin frá umheiminum, loka þau inni í veröld, þar
sem aðeins viðmið og skoðanir yfírvalda voru þekkt.
I bókum þessum er að finna undarlegt samansafn goðsagna um
hið aríska hreina blóð og hina göfugu fósturjörð, um heiður,
tryggð, fórnir, baráttu og vinnu. Framtíðrsýnin varbjört oghrein.
Börnin, bláeygð, Ijóshærð og heilbrigð, gengu saman fagnandi á
vit náttúrunnar tæru og hreinu. Mynd þessi var algjörlega
andstæð þeim heimi sem börnin bjuggu í. Nasistar höfðu hvorki
tíma né getu til að fullkomna draum sinn. Börnin, sem hlutu þessa
fræðslu, lifðu viðárásir, fjöldamorð og stríð og glötuðu endanlega
voninni og trú sinni á lífíð. Og 40 árum eftir fall Þriðja ríkisins á
þetta fólk enn við sálræn vandamál að stríða. Það er enn að reyna
að skilja hvernig sæmilega siðmenntuð og menningarleg þjóð,
sem þýska þjóðin var, hafí getað látið jafn brjálaðan mann og
Hitler blekkja sig.
Children ‘s literature in Hitler's
Germany
The Cultural Policy ofNation-
al Socialism, eftir Christa
Kamenetsky, Ohio University
Press.
Þýskar barna
bókmenntir
MÞýsk barnaleikföng frá tímum Hitlers.
uieeo v-bar
SNJOKEÐJUR
fyrir fólksbíla, jeppa,
sendibíla og vörubíla
getum sett upp keðjur á traktora
og vinnuvélar
með stuttum fyrirvara.
Undirbúið ykkur fyrir veturinn,
hafið keðjurnar til.
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20,
SÍMI 686633
FINNSKIR SAMFESTINGAR
HEILFÓÐRAÐIR - HLÝIR - STERKIR - LIPRIR - LAGLEGIR
Útsölustaðir:
Ellingsen — Mikligarður — Sport — Últíma — Útilíf - Vinnan — Sjóbúðin, Grandagarði —
Byggingavöruverslun Sambandsins — Verslun Einars Þorgilssonar, Hafnarfirði —
Axel Sveinbjörnsson, Akranesi og kaupfélögin um land allt.
VEL BÚINN TIL ALLRAR ÖTIVINNU