NT


NT - 02.12.1984, Page 4

NT - 02.12.1984, Page 4
 Sunnudagur 2. desember 1984 4 KristinnR. Ólafsson skrifar frá Madríd villimennska... Andstæðingar nautaats telja það hreina villimennsku, menningarlega eftirlegukind, sem eyða hefði átt fyrir löngu. Mannskepnan fái útrás fyrir kvalalosta sinn á nautatorginu, þar sem litklæddir menn, ýmist á hesti eða fæti, murka lífið úr sex nautum með kesjum, hryggstinglum og sverði frammi fyrir blóðþyrstum áhorfend- um. Hver myndi borga sig inn í slátur- hús að sjá sex baulur skornar? þrálífar leifar fornra blóð- fórna... Atið er þrálífar leifar hræðilegra heiðinna trúarbragða, friðþægingar- fórn færð ókunnu goði, sem heimtar blóð, sagði Miguel de Unamuno (1865-1937); spánskur rithöfundur/ hugsuður. Ahorfendur vilji sjá blóð, ekki einungis blóð hests og nauts heldur manns líka. Pannig gegni þeir hlutverki játenda þessarar myrku dreyratrúar, þessara frumstæðu mannblóta. Þeim yrði jafnvel sama, þótt þetta blóð væri úr nautabönu- num einurn, þótt þeir berðust inn- byrðis. Atið er ógeðslegur sjónleikur hug- leysis og innyfla, þar sem ekkert er að finna nema hræðslu nautabanans og gungulega grimmd áhorfenda, sem skemmta sér við að skynja ið þessa ótta, lagði rithöfundurinn Pío Baroja (1872-1956) einni sögupersónu sinni í munn. Spánn kastan- íuskellunnar og bjöllu- bumbunnar... iVautaatið er hof ofdýrkunar á fantahætti og forheimskun, sagði andatsmaðurinn Eugenio Noel (1885-1936). Noel barðist í ræðu og riti gegn nautaati, sem hann taldi,

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.