NT - 02.12.1984, Blaðsíða 11

NT - 02.12.1984, Blaðsíða 11
■ Ólafur Laufdal: ,.Það er ljósl að fólk vill hafa opnunartímann lengri.“ NT-mvnd: Róbert. Rolf Johansen : „ Alltaf klukkan tólf, þegar staðirnir höfðu lokað, fylltist allt hjá ok NT m>nd, Róbert Sunnudagur 2. desember 1984 11 „Hér hljóta að koma upp næt- urstaðir aftur“ - segir Rolf Johansen, stórkaupmaður einn forstöðumanna „ Appollo“ klúbbsins ■ „Já, maður var ungur og fjörugur í þá daga og vildi reyna eitthvað nýtt," segir Rolf Johansen, stórkaupmaður, en hann stóð fyrir rekstri App- ollo-klúbbsins ásamt þeim As- geiri Magnússyni og Jóni Ragnarssyni. „Okkur langaði til að hressa dálítið upp á næturlífið," segir Rolf, „og við völdum þessa aðferð, því við gátum ekki séö annað en að þetta væri allt saman hálöglegt. Hugmyndin var þessi að tíu til tuttugu manns útveguðu sér gott hús- næði og gætu komið þar saman eftir lokun skemmtistaða, hver með sína flösku, eins og í góðu partíi. Nú, þetta tókst svo vel að alltaf klukkan tólf, þegar al- mennir staðir höfðu lokað, fylltist allt hjá okkur. Mig minnir að við höfum haft opið frani til klukkan sex á morgn- ana og þegar fólk var að tínast út sá ekki vín á nokkrum rnanni. Petta fór svo vel fram og aldrei þurfti að kalla til lögreglu. Það var meira að segja staðfest að þennan tíma, ég held að þetta hafi verið einir átta mánuðir var alveg sérstaklega rólcgt í borginni. Sjálfur staðurinn var líka mjög fallegur. Þarna var allt í rauðu, svörtu og kopar og gestir prúðbúnir. Já, það var menningarbragur á þessu. Veitingar voru þó af hálfu staðarins ekki aðrar en smurt brauð, þótt þarna væri eldhús sem matreitt gat ofan í þúsund manns. Auðvitað voru spiluð öll nýj- ustu lögin og þetta var alveg „sensasjónelt" og ákaflega gaman að taka þátt í þessu. En svo kom þessi innrás lögreglunnar. Við fréttum síð- ar að það var að undirlagi ýnrissa heiðursmanna í veitingahúsabransanum. Nú, þeir voru auðvitað aö reyna að bjarga eigin skinni, eins og gengur. Já, ég held að það hljóti að koma hér upp aftur næturstað- ir. Við íslendingar fylgjumst svo vel með á öllum sviðum að við hljótum að verða með á þessu sviði líka. Það eru nóg tilefni þar scm þörf væri fyrir þetta, afmæli og önnur tæki- færi. Svo eru það allir þessir erlendu ferðamenn sem hingað koma. Já, blessaður vertu. Auðvit- að væri ég til i að líta inn á svona stað ef honum yrði hleypt af stokkunum á næst- unni.“ „Framlengja þarf opnunartíma veit- ingastaða til klukkan fímm - segir Ólafur Laufdal, veitingamaður ■ „Ég man vel eftir nætur- klúbbunum og held að ég hafi komið inn á þá alla,“ segir Ólafur Laufdal, veitingamað- ur, en hann fengum við til að ræða um næturlíf Reykvíkinga nú og hvort grundvöllur væri fyrir rekstri næturklúbba eða sambærilegra staða, ef leyfi fengist. „Nú, það var gífurleg að- sókn að þessum stöðum þá,“ heldur Ólafur Laufdal áfram. „Það var allmikið í þá borið og þetta var nýtt, því diskó- dansinn var að halda innreið sína og þetta var í þeim stíl. Þá var ekki diskótek komið nema í gamla Glaumbæ. En ef við lítum til dagsins í dag, þá álít ég að það þurfi að hafa staðina opna lengur en nú er. Alls staðar þar sem ég hef komið í stórborgum erlendis er reynslan sú að fólk fer ekki út fyrr en um miðnætti, ekki þeir sem stunda næturlífið að ráði og hafa þá nóttina fyrir sér. Opnunartími staðanna hér ætti að mínu áliti að vera til klukkan fimm á nóttinni um heigar og til klukkan þrjú aðra daga. Starfsfólk veitingahús- anna er ekki hrifið af lengri opnunartíma, en það er ljóst að fólk vill hafa hann lengri. Það er líka nauðsynlegt að afnema þennan hálftíma sem börum er lokað áður en staður- inn sjálfur fer að loka. Þessi hálftími er ákaflega hvimleiður og veldur leiðindum og vand- ræðum. Nú eru allar þessar bjórkrár komnar til sögunnar og ég vil taka fram að það er ekkert nema gott um það að segja. En ég vildi að þeim væri ætlaður sérstakur opnunartími hér, eins og gerist í öðrum löndum. Þar eru krár ekki opnar eins og almennir veitingastaðir. I Bretlandi held ég að þeim sé lokað klukkan ellefu. Fyrst þeir fá að selja þennan bjór eiga þeir að sæta ákveðnum reglum jafnframt. En með því að hafa opið til klukkan fimm álít ég að margt gæti breyst til hins betra um leið. Þetta yrði hagkvæmara fyrir leigubílstjóra og viðskiptavini þeirra,' þar senr ösin nivndi dreifast, enda er reynslan sú að þar sem staðir eru opnir þetta lengi eru örfáir eftir þegar lokað er. Þetta væri iíka góð landkvnning gagnvart útlendum gestum og nær því sem þeir eiga kost á heima fyrir."

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.