NT - 02.12.1984, Blaðsíða 8
Sunnudagur 2. desember 1984 8
■ Fyrir nokkru var hópi íslenskra bladamanna boðið að skoða
Schiphol-flugvöll í HoIIandi. Það var Arnarflug sem stóð að þessu
rausnarlega boði, en nú eru að verða tvö ár síðan félaginu var veitt leyfí
til reglulegs áætlunarflugs þangað.
Flugvöllur þessi er engin smásmíði þó vægt sé til orða tekið. Við hann
vinna hvorki meira né minna en 28 þúsund manns og um tíu milljónir
farþega fara um völlinn árlega. Hann er þó á engan hátt fullnýttur þar
sem hann er talinn geta tekið við nær helmingi meiri umferð eða um
18 milljónum farþega á ári.
íslendingar
velkomnir
Það var tekið á móti okkur íslend-
ingum af sannri hollenskri gestrisni
þessa dagstund sem við dvöldumst á
Schiphol. A blaðamannafundi sem
haldinn var af þessu tilefni kom
greinilega fram að íslendingar eru
síður en svo litnir hornauga á
Schiphol. Á þessum tveimur árum
sem Arnarflug hefur flogið til Amst-
erdam liefur farþegum þangað fjölg-
að jafnt og þétt og það virtist ekki
hafa farið framhjá hinum hollensku
yfirmönnum flugvallarins. „Viðleggj-
um áherslu á að laða hingað til okkar
lítil flugfélög sem stór og reynum
jafnframt að gera öllum jafn hátt
undir höfði,“ eins og einn fulltrúi
flugvallarins orðaði það. „Arnarflug
er félag sem er í örum vexti og
íslendingar hafa svo sannarlega kunn-
að að meta þá þjónustu sem við
bjóðum hér uppá.“
Flugbraut
á hafsbotni
Orðið Schiphol þýðir ekki skiphóll
eins og ætla mætti eftir orðsins
■ Á hvcrjum degi fara nú um 500 til 1000 flugvélar um völlinn og hann er í hópi þeirra allra stærstu í Evrópu. Á síðastliðnu ári komu 10 milljónir
manna til Schiphol.
hljóðan, heldur „skipavíti". Flug-
völlurinn dregur nafn sitt af miklunt
flóa sem var þar sem hann er nú í eina