NT - 02.12.1984, Page 19
Sunnudagur 2. desember 1984 19
Umsjón
Ester Vagnsdóttir
Fimm peningat
Við fyrsta spilið sem Magnús
dró komu upp „Fimm pening-
ar“ sem tákn hins liðna. Þetta
spil segir til um erfiðleika í
fortíðinni, aðallega fjárhags-
erfiðleika en samstöðu við erf-
iðar aðstæður. Spilið táknar
líka sjálfstæði, stolt og
þrjósku.
Djöfullinn
Þar næst dró ritstjórinn
trompspilið „Djöfulinn“ en
spilið snéri öfugt. í þessu tilviki
á það að lýsa þeim aðstæðum
sem blaðið býr við. Spilið
minnir á að eiginhagsmuna-
sjónarmið mega ekki ráða ferð-
inni. Það gefur og til kynna að
ýmis öfl starfi á bak við tjöldin
sem geti verið skeinuhætt. Það
bendir líka á nauðsyn þess að
halda lægri eðlisþáttum niðri.
Ritstjórinn dró
„Hengda
manninn “
Þriðja spilið sem ritstjórinn
dró segir okkur almenna hluti
um hið ókomna. Þar dró
Magnús „Hengda manninn“.
Spilið er þó ekki eins svart og
ætla mætti við fyrstu sýn. Það
bendir á að réttsýni og innsæi
muni ráða ferðinni í framtíð-
inni og blaðinu takist að sigrast
á þeim öflum sem næsta spil á
undan varaði svo eindregið
við.
Hvaða stefnu
ber að taka?
Fjórða spilið sem dregið var
segir til urn þá stefnu sem best
mun reynast. Þetta spil er kall-
að „Opnun". Snúi það rétt
táknar það að leita beri inn á
við, til einveru án þess að
hafast nokkuð að eða reyna að
leysa málin. Spilið sem Magn-
ús dró snéri hins vegar öfugt.
Það táknar að takst beri á við
vandamálin, knýja fram nýja
möguleika. í tengslum við
næsta spil á undan mundi það
tákna að leita fleiri úrræða og
möguleika og það af nýju inn-
sæi.
Níu peningar
Fimmta spilið segir til um
áhrif frá umhverfinu og af-
stöðu annarra til blaðsins. Við
þetta tækifæri dró ritstjórinn
„Níu peninga“ og snéri spilið
öfugt. Það táknar ótta fólks til
að taka afstöðu til blaðsins með
eða á móti. Ákveðið kæruleysi
sem er andstaðan við sjálf-
stæða afstöðu.
Hindranir
Næstsíðasta spilið segir okk-
ur til um hindranir og erfið-
leika í framtíðinni. Spilið sem
Magnús dró að þessu sinni var
„Turninn og Eldingin". Það
táknar að blaðið megi búast
við alvarlegri hindrun eða
óviðráðanlegum atburði. Þetta
þarf þó ekki að vera af hinu
illa, sérstaklega ef tekið er
tillit til undanfarinna spila.
Margt bendir til að spilið þýði
einfaldlega að það takist að
byggja starfsemina á grunni
sem þegar hefur verið grund-
vallaður og reynast mun traust-
ur, samanber spil númer 3.
Andað léttara
Sjöunda og síðasta spilið sem
Magnús dró á að svara upphaf-
legu spurningunni sem var um
ástand og horfur blaðsins.
Spilið sem upp kom var
„Tíu Sverð" en það snéri
öfugt. Sverðin táknar erfiðleika
en að þessu sinni falla þeir úr
baki mannsins og eru því erfið-
leikarnir fremur yfirborðsleg-
ir. Spilið minnir þó á að þegar
mótstaðan og erfiðleikarnir
minnki verði að gera kröftugar
ráðstafanir til að tryggja batn-
andi ástand og hag blaðsins.
Svo mörg voru þaúorð. Það
má ljóst vera að ritstjórinn
andaði léttar þegar spilin
höfðu verið útskýrð og hann
var ekki einn um það. Nú er
bara að vita hvort spá spilanna
reynist rétt.
-JÁÞ
NÖTOLACT orkugjafi fyrir kýr, til að
fyrirbyggja súrdoða og auka sykurmagn í
blóðinu. Einn pakki 21 kg. hæfilegur skammtur
fyrir eina kú, daglega fyrir og eftir burð (6
vikur).
NÖTACÉT (fljótandi) til að eyða súrdoða sem
þegar er fyrir hendi og hækka blóðsykur
magnið. Fljótvirkt og árangursríkt. Einn brúsi
1.8 lítrar hæfilegur skammtur fyrir eina kú.
GAMATOX baðduft, eyðir tilteknum
sníkjudýrum úr húð og hári húsdýra.
í ár er baðár, eigum baðduftið til í 500 g
pökkum og er það sérstaklega ætlað til
böðunar sauðfjár.
Einnig NUTRICHIP vítamín fyrir hesta og
saltsteinar, hvítir, rauðir og bláir.
Selt í kaupfélögunum um land allt og í verslun
okkar Ármúla 3.
Leiðbeiningar á íslensku fyrir öll þessi efni.
BÚNADARDEILD
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900
Byggðu þér hús
á Spánl
, «-Y?' 1 ~ H •*• 1 •' ' i * 5 | k
SUN SPAN A/S í Noregi bjóða þér upp á ódýr
hús á Spáni. Húsin eru í TORREVIEJA, fjórar mílur
suður aí ALICANTE, en þar er einhver mesta
veðursœld í Evrópu (3009 sólarstundir á ári).
Húsin seljast fullírágengin, með öllum
innréttingum, kœliskáp, ílísar á baði og eldhúsi
og marmari á gólíum.
Verð írá 147.000 Nkr. - 403.000 Nkr.
ÞÚ KEMTJR Á STAÐINN OG SKOÐAR
Farnar eru 4 daga sýningarferðir á staðinn
hálísmánaðarlega, og bjóðum við frítt uppihald
á Spáni.
Nœsta ferð verður 6. des. n.k.
Leitið írekari upplýsinga hjá umboðsskriístoíu
SUN SPAIN á Islandi.
SUN SPAIN S/F
Síðumúla 4
Símar 687975 og 687976