NT - 11.12.1984, Síða 1
Milljónatjón á Raufarhöfn í gær:_
Frystihús Jökuls
brunnið að hluta
45 manns missa atvinnu sína
■ Milljónatjón varð í gær er frysti-
hús Jökuls h.f. á Raufarhöfn brann
að hluta. Tveir menn slösuðust við
slökkvistörf en hvorugur alvarlega.
Bruninn mun kosta 45 manns vinnu
sína meðan endurbygging hefur ekki
farið fram.
Eldsins varð fyrst vart á fjórða
tímanum í gær og logaði þá í vestur-
enda hússins. Allt tiltækt slökkvilið á
staðnum svo og á Þórshöfn var kvatt
til, en slökkvistarf gekk fremur seint
og brann allt þak hússins. Ennfremur
brann vélasalur og verkstæði í vestur-
endanum, en lítið af hráefni var í
húsinu fyrir eldsvoðann. Slökkvistarfi
lauk á tíunda tímanum í gærkvöldi.
Veður var gott á Raufarhöfn í gær
en þó var nokkur gjóla af vestri.
Torveldaði það slökkvistarf og gcrði
að verkum að eld og reyk lagði
stöðugt yfir húsið. Ekkert var hægt að
segja um eldsupptök í gærkvöldi að
sögn frystihússtjórans, Hólmsteins
Björnssonar.
Atvinnuleysi:
Hefur vaxið
um þriðjung
á þessu ári
- 65% atvinnulausra konur
■ Frá því í janúar til loka
nóvember á þessu ári hafa verið
skráðir 345 þúsund atvinnuleys-
isdagar á landinu, en fyrstu
ellefu mánuði ársins 1983 voru
skráðir atvinnuleysisdagar 260
þúsund. Aukningin er því 33%.
Konur eru í miklum meirihluta
atvinnulausra eða 65%, enda
atvinnuleysið að verulegum
hluta til komið vegna stöðvunar
í fiskvinnslu. í nóvember voru
skráðir 28 þúsund atvinnuleysis-
dagar sem samsvarar því að
1300 manns hafi verið atvinnu-
lausir allan mánuðinn, en það
er 1.1% af áætluðum mannafla
á vinnumarkaði samkvæmt spá
Þjóðhagsstofnunar. Atvinnu-
leysi hefur aukist á öllum skrán-
ingarsvæðum frá því í október,
nema á Vestfjörðum og Suður-
landi. Síðasta virkan dag nó-
vembermánaðar voru 1500
manns skráðir atvinnulausir á
landinu.
„Atvinnuleysið nú má telja
dæmigerða árstíðasveiflu sem á
eftir að verða enn dýpri í des-
ember, enda berast nú fréttir af
því að fyrirhugaðar séu frekari
stöðvanir í fiskvinnslu á næst-
unni,“ segir í frétt frá félags-
málaráðuneytinu.
Merk nýj-
ung í gervi’
limasmíði
■ Uppfinning Össurar
Kristinssonar gervilima-
smiðs hefur vakið mikla
athygli erlendis og er talin
merk framför til heilla fyr-
ir þá sem hafa misst fót
fyrir ofan hné. Þegar hafa
verið framleiddar 2000
„hulsur" fyrir heimsmark-
að. Sjá frétt og myndir á
síðu 2.
Skipverjum á
Þórhalli Daníels-
syni bjargað
úr sjávarháska!
Bls 3.
■ Eigil Aarvik, forseti norsku nóbelsnefndarinnar, les tilkynninguna um að sprengja kunni að leynast
í hátíðarsal háskólans í Osló. Ásamt honum á myndinni eru Desmond Tutu og kona hans, Lea
Símamynd-POLFOTO
Krani
valtí
sjóinn!
■ Um hádegisbil í gær varð
það slys í Sundahöfn að krana-
bíll valt í sjóinn. Betur fór en á
horfðist. Okumaður komst í
land og var fluttur á slysadeild.
Þá skullu tveir bílar saman á
mótum Njarðargötu og Hring-
brautar kl. hálf níu í gærmorgun
og voru ökumenn beggja fluttir
á slysadeild. Þá var ekið á mann
við mót Holtavegar og Klepps-
vegar síðdegis og var hann einn-
ig fluttur á slysadeild.
Sprengjuhótun setur
svip á nóbelshátíð
■ Desmond Tutu, biskup frá
Suður-Afríku, voru í gær afhent
friðarverðlaun Nóbels í hátíð-
arsal háskólans í Osló. Verð-
launaafhendingin 'varð um
margt söguleg. Maður, sem sagt
er að hafi talað bjagaða norsku,
hringdi í gær á ritstjórn Dag-
bladet í Osló og sagði að
sprengju hefði verið komið fyrir
j hátíðarsalnum.
Lögreglan brá skjótt við og
rýmdi salinn og mátti margt
stórmenni víkja úr sæti - þar á
meða Tutu, Ólafur Noregskon-
ungur og mestöll ríkisstjórn
Káre Villoch. Þegar sprengju-
leit bar engan árangur hófst at-
höfnin aftur eftir klukkutíma.
Þá vakti Tutu, kona hans Lea
og fylgdarlið þeirra athygli með
því að syngja sálm áður en Tutu
flutti ávarp sitt. Þar sagði hann
meðal annars að verðlaunaaf-
hendingin þetta árið kveikti
nýja von í mörgu brjósti.
í gærkvöldi fóru um 1000
manns í blysför um miðborg
Oslóar og hylltu Desmond
Tutu. Tutu ávarpaði mannfjöld-
ann, en síðan var hann for-
söngvari í negrasálminum fræga
„We Shall Overcome."
Þess má geta að í gær, 10.
desember, var einnig mannrétt-
indadagur Sameinuðu þjóð-
anna.
Sjá erlendar fréttir bls. 19-21
og forystugrein bls. 7.