NT - 11.12.1984, Page 3

NT - 11.12.1984, Page 3
r Þriðjudagur 11. desember 1984 3 L Fréttir Bjargað úr sjávarháska Erlingur GK vill ekki til Hornafjarðar m r ■ Um helgina var skipverjum á togaranum Þórhalli Daníels- syni bjargað úr sjávarháska þeg- ar bilun varð í togaranum skammt undan Vestmannaeyj- um. Togarinn var í sinni fyrstu ferð til nýrrar hafnar. Horna- fjarðar og telja skipverjar þetta sýna að hann Hornafjarðar. vilji ekki til ■ Þetta var mikið þrekvirki og við viljum koma kæru þakk- læti til lóðsins, sagði skipstjór- inn á Erlingi, Sveinn Jónsson þegar fréttaritari NT í Eyjum náði tali af honum í gær. Togarinn var kominn 25 sjó- mílur út fyrir Vestmannaeyjar áleiðis til Hornafjarðar þegar skolloftslokur biluðu þannig að hann varð vélarvana. Þegar lóðs kom honum til hjálpar hafði togarann rekið nær Eyjum og átti ekki nema 6 mílur eftir í fast land. Þrátt fyrir illviðri og mik- inn stærðarmun fleytanna tókst björgun giftusamlega og var Þórhallur kominn til Vest- mannaeyjahafnar þrettán tím- um síðar. Eins og sagt var frá í NT á föstudag var togarinn sem áður hét Erlingur GK-6 og var frá Garði seldur Hornfirðingum fyrir helgi og var væntanlegur í sína nýju heimahöfn á sunnu- dag. Kall barst svo frá skipinu klukkan hálfsjö á laugardags- kvöld og var hann kominn aftur í Vestmannaeyjahöfn klukkan hálfátta um morguninn. Við- gerð á togaranum lauk svo í gær og hélt hann úr Vestmannaeyja- höfn í morgun. Þetta er önnur bilun Erlings (eða Þórhalls) í ferð hans frá Njarðvík áleiðis til Hornafjarð- ar. I fyrstu bilaði sjálfstýring og nú skolloftslokur en til þessa hefur togarinn sem er 10 ára, lítið bilað. Elur það enn á þeirri hjátrú sjómanna að hann vilji ekki til Hornafjarðar, og þegar við bætist að vélin öll var ný- yfirfarin þegar bilun varð, er ekki að sökum að spyrja. ■ Vill ekki til Hornafjarðar, - eða hvað skyldi hann vera að hugsa þessi gamli koppur sem alltaf hefur staðið sig með prýði en tekur nú upp á því að bila trekk í trekk bara af því Hornfírðingar hafa keypt hann og gefíð nafnið Þórhallur. ■ Við viljum þakka lóðsinum, Einari Sveini Jóhannssyni fyrir giftusamlega björgun, sögðu skipverjar þegar fréttaritari NT í Eyjum náði tali af þeim í gær. Talið frá vinstri Sæmundur Gíslason, en hann er sá eini þeirra sem fylgir skipinu áfram og verður fyrsti vélstjóri á Þórhalli, Sverrir Andrésson annar stýrimaður, Arnór Kristjánsson annar vélstjóri og skipstjórinn á Erlingi Sveinn Jónsson. NT-myndír: inga Um 700 heimili höfðu yfir eina miljón í tekjur 1983: Margir aldraðir í hópi „efnamanna“ ■ Af þeim 262 íslenskum hjónum sem töldu fram yfir 1,2 milljónir króna í tekjur fyrir áriðl983 eru llhjóníhópi eliilífeyrisþega sem bæði hafa langsamlega hæstar meðaltekj- urnar og eignirnar. Meðaltekjur Sölusýning á Kópa- vogshæli ■ Á fimmtudaginn er ár liðið síðan vinnustofur Kópavogs- hælis voru teknar í notkun. Af því tilefni verður kynning á starfseminni og sölusýning frá klukkan níu um morguninn til kl. fjögur um daginn. Á því er ekki vafi að framleiðsla þeirra sem búa á Kópavogshæli hentar vel til jólagjafa hverskonar og þar má einnig fá ýmsa heimil- isprýðina að sögn Birgis Guð- mundssonar formanns for- eldra- og vinafélags þessa vist- heimilis í Kópavogi, þar sem búa hatt á annað hundrað sam- borgarar vorir. þessara 11 öldruðu hjóna voru 2.557.000 krónur (um 213 þús. á mánuði) og meðaleignir um 14,7 milljónir króna. Níu af þessum 11 hjónum nýttist pers- ónuafsláttur til greiðslu hluta af eignaskatti, sem þýðir»aðeins annað þeirra hefur aflað tekn- anna. Meðaleignir allra þessar 262 hjóna eru tæpar 6 millj. króna. Meðaltekjur allra hjón- anna voru tæplega 1,8 millj. Tæplega 49 þús. hjón töldu fram fyrir síðasta ár. Af þeim voru 658, eða 1,3% sem höfðu samanlagðar tekjur yfir 1 mill- jón króna, eða samtals 875 mill- jónir, sem er um 4% af heildar- tekjum allra hjónanna. Sameig- inlegar eignir þessara hjóna námu að meðaltali tæplega 6 milljónum, að undanskyldum 18 hjónum sem engar eignir áttu þrátt fyrir þessar góðu tekjur. Af einstaklingum voru alls 364 framteljendur sem höfðu tekjur yfir 1 milljón króna, þar af voru 310 í hópi kvæntra karla. Er því ljóst að annar eins hópur eiginkvenna hefur átt sinn þátt í að koma hjónatekjunum yfir milljón króna markið (alls 658 sem fyrr segir) þannig að það virðist síður en svo regla að kon- ur séu almennt heimavinnandi ef þær hafa efni á því, eins og stundum er haldið fram. Rúmlega helmingur þessara einstaklinga, eða 174 höfðu yfir 1,2 milljóna króna tekjur, um 1,8 millj. króna að meðaltali. Af þessum hópi voru 151 eiginmað- ur, aðeins 6 eiginkonur, 3 ein- stæðir foreldrar og 14 ein- hleypingar. Eignir þessa hóps voru um 3,5 millj. króna að meðaltali, að undanskyldum einhleypingunum 14 sem áttu rúmlega 8 millj. Eins og í hjóna- hópnum eru ellilífeyrisþegarnir eignamestir allra, með nær 12 millj. króna meðaleignir. Leiðrétt síma- númer Guð- mundar dúllara ■ í frétt NT um prentun myndar Ragnars Lár af Guð- mundi dúllara urðu mistök við birtingu símanúmera. Rétt númer fyrir þá sem eignast vilja mynd af Guðmundi eru 96- 26562 og 96-23688. Vaxtahækkunin: ■ „Seðlabankinn hefur ótvírætt vald til að ákveða vexti, en að mínu mati á hann ekki að beita því nema í samræmi við stefnu ríkisstjórnarflokkanna,“ sagði Steingrímur Her- mannsson, forsætisráð- herra, í samtali við NT um fyrirhugaða hækkun vaxta. Eins og fram hefur komið hyggst Seðlabanki íslands hækka vexti á næstunni, en sú aðgerð hefur valdið talsverðum deilum meðal þingmanna og ráðherra ríkisstjórnar- flokkanna. Að sögn Steingríms verður málið tekið aftur fyrir á ríkisstjórnarfundi seinna í vikunni. Kvaðst hann ekki trúa því, að Seðlabankinn gripi fyrr til aðgerða. Annars eru ráöamenn þjóðarinnar önnum kafnir þessa dagana, þar sem allir forsætisráðherrar Norður- landa verða staddir á Is- landi í vikunni í fundarer- indum. Reykjavíkurmótið í bridge: Björn og Guð- mundur sigruðu ■ Björn Eysteinsson og Guðmundur Sv. Hermanns- son unnu Reykjavíkurmótið í tvímenning í bridge sem spilað var um helgina. Björn og Guðmundur enduðu með 288 stig, Jón Hjaltason og Hörður Arnþórsson voru í 2. sæti með 267 stig og Þórar- inn Sigþórsson og Guð- mundur Páll Arnarson end- uðu í 3. sæti með 254 stig. Alls spiluðu 40 pör í mótinu. Mótið var mjög spennandi og í lokaumferðunum áttu fimm pör möguleika á sigri. Jón og Hörður leiddu mótið fram að síðustu umferð og áttu þá 16 stig á þá Guðmund og Björn og Guðmund og Þórarin sem voru jafnir í 2.-3. sæti. En í síðustu um- ferðinni fengu Björn og Guðmundur 33 stig yfir með- alskor meðan hin pörin fengu undir meðalskor og þá var sigurinn þeirra. Það var í eina skiptið á mótinu sem Björn og Guðmundur kom- ust í efsta sætið. ur hækkar - frumvarpumvirðis- aukaskatt lagt fram ■ Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra lagði fram á Álþingi í gær frumvarp um virð- isaukaskatt. Virðisaukaskatturinn kænti í stað söluskatts, en leggst á alla vöru og þjónustu, og leysi sölu- skatt af hólmi 1. jan ’86. Þá lagði ráðherrann einnig fram frumvarp um hækkun sölu- skatts um 0.5%, eins og greint hafði verið frá í blaðinu áður. Hækkunin mun framkvæmd um áramót og er reiknað með að hún skili 210 milljónum króna í ríkissjóð, en alls er stefnt að því að auka tekjur ríkissjóðs af söluskatti um 250 milljónir, með t.d. hertu eftirliti og betri innheimtu. Þessi tekjuaukning verður notuð til að greiða hluta þeirra 450 milljóna króna, sem endur- greiðsla uppsafnaðs söluskatts til sjávarútvegsins kostar.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.