NT - 11.12.1984, Page 5

NT - 11.12.1984, Page 5
Þriðjudagur 11. desember 1984 5 Tillögurnar um breytingu á stjórn Reykjavíkurborgar ■ ■ „Eru síst til þess fallnar að auka lýðræðislega stjórnun borgarinnar“ - segir Kristján Benediktsson borgarfulltrúi sem telurþær auka miðstýringu ■ Þessar tillögur um breytingar á stjórn Reykjavíkurborgar fela í sér samþjöppun á valdi og aukna miðstýringu og eru síst til þess fallnar að auka lýðræðislega stjórnun borgarinnar," sagði Kristján Benediktsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins í samtali við NT, en á fimmtudaginn voru tillögurnar tcknar til fyrri umræðu á löngum og ströngum borgarstjórnarfundi sem stóð til kl. 3 um nóttina. Sagði Kristján ljóst að meiri- hluti Sjálfstæðisflokksins ætlaði að hunsa breytingartillögur minnihlutans og knýja sínar breytingarí gegn þar sem stefnan væri að losna sem mest við afskiptasemi hinna flokkanna af stjórnun borgarinnar. Þannig ætti að fækka fulltrúum í nefnd- um og ráðum borgarinnar, sem fjölgað var 1974, og þjappa valdinu saman og útiloka þar með minni flokkana. Samvinnustarfsmenn: Harmaárásir á hreyfinguna ■ Formannafundur Lands- sambands íslenskra samvinnu- starfsmanna, sem haldinn var að Bifröst í Borgarfirði í sept- ember, harmar þær „mark- vissu" og oft rakalausu árásir, sem undanfarið hafa verið á samvinnuhreyfinguna". Skorar fundurinn á stjórn SÍS að ráða sem fyrst blaðafulltrúa til að kynna og vera málsvari sam- vinnuhreyfingarinnar í fjölmiðl- um og víðar. Ein af breytingartillögununi er fækkun borgarráðsfunda sent leiðir af sér aukiö vald embættis- manna og borgarstjóra og hefði í för með sér að fleiri mál færu framhjá kjörnum fulltrúum hvað varðaði ákvörðunartöku. Borgarráðsfundir hafa að jafn- aði verið 1-2 í viku, eða um 75 á ári en ráðgert er að fækka beint um 25, niðrí 50 fundi á ári. Ýmsar breytingar í þessum tillögum sagði Kristján þó jákvæð- ar, en benti hins vegar á að fundir borgarstjóra með almenningi, eins og gert er ráð fyrir, væri engin nýlunda. í borgarstjóratíð Geirs og Birgis ísleifs hefðu þessir fundir verið fjár- magnaðir af stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins en þessi til- laga væri ekkert annað en til- raun til að velta þeint kostnaði yfir á borgarsjóð. í þessu fælist að borgarsjóður ætti að kosta áróðursfundi fyrir oddantann Sjálfstæðisflokksins í borgar- stjórn og væri það alveg fráleitt. Svipaðar skoðanir komu fram hjá fulltrúum hinna flokkanna sem eru í minnihluta í borgar- stjórn en tillögur þessar verða afgreiddar á fundi borgarstjórn- ar eftir hálfan mánuð, eins og áður sagði. Breytingar á stjórn Reykjavíkur til umræðu í borgarstjórn: Verða tveir borgarstjórar í Reykjavík í framtíðinni? Tillögurnar miða að því að auka lýðræðislega stjórnun borgarinnar ■ Tillögur stjómkerfls- nefndar um breytingar á samþykkt um stjóro Rcykja- víkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar verda teknar til meðferðar á borgarstjóra- arfundi í dag. Mál þetta var tekid fyiir á borgarrádsfundi 27. nóv. sl. og ákvedid ad vísa því til borgarstjóroar. Breytingartillögur þessar eru margvíslegar en medal þess sem þar er að finna eru atriði sem ættu að auka lýðræðislega stjórnun borg- arinnar og gefa almenningi kost á að láta til sín heyra. Þannig skal borgarstjóri aug- lýsa eftir ábendingum og til- lögum frá borgarbúum um mál er varöa gerð fjárhags- áætlunar og skal borgarráð hafa þær til hliðsjónar við tillögugerð sína. Einnig getur borgarstjórn ákveðið að bera einstök mál undir atkvæði borgarbúa eða leitað álits þeirra með öðrum hætti þegar ástæða þykir til. Niðurstöður slíkrar atkvæða- greiðslu eru þó ekki bindandi fyrir borgarfulltrúa. Þá er í breytingartillögunum ákvæði um að heimila borgarstjórn að hafa flciri en einn borgar- stjóra í Reykjavík, og skal þá ákveðið í reglugerð hvernig störfum skuli skipt á milli þeirra. Tillögur frá fulltrúum Kvennalista og Alþýðu- bandalags hlutu ekki nægi- legan stuðning í stjórnkerfis- nefndinni en samþykkt var að vísa ýmsum atriðum til borgarráðs. Má þar m.a. nefna að teknir verði upp fastir viðtalstímar borgarfull- trúa, að í stjórnum og ráðum fyrirtækja borgarinnar skuli sitja fulltrúar starfsmanna og hafa málfrelsi og tillögurétt og að hver flokkur sem á fulltrúa í borgarstjórn fái skrifstofuaðstöðu á vegum borgarinnar. Ráðningastofa Reykjavíkurborgar: Hálfrar aldar afmæli Stofnuð í atvinnuleysi heimskreppunnar ■ Ráðningarstofa Rcykja- víkurborgar er 50 ára um þess- ar mundir en hún tók til starfa þann 20. október 1934. Á þeim tímum var mjög erfítt ástand í atvinnumálum þjóðarinnar vegna heimskreppunnar og var atvinnuleysi geigvænlegt. Fjöldi fólks bjó við skort á brýnustu nauðsynjum og reyndu opinberir aðilar að hlaupa undir bagga með þeim verst settu eftir föngum. Voru atvinnumál mikið rædd í borg- arstjórn á þessum tíma og var samþykkt að stofna ráðningar- stofu fyrir „atvinnulcitandi bæjarmenn, karla og konur“, eins og þaö er orðað í fundar- gerð. Allt hafa á þessu fimmtíu ára tímabili 50256 einstaklingar ver- ið skráðir sem atvinnuum- sækjendur, en margir þeirra hafa að sjálfsögðu leitað oftar en einu sinni til stofnunarinnar, svo samtals eru afgreiðslur í sambandi við vinnu orðnar 212.243. Er þá ekki talinn með sá fjöldi manns sent ráðningar- stofan liefur bent á vinnu hjá ýmsuni aðilum en ekki fengið ákveðnar upplýsingar um ráðn- ingu frá. Vinnuveitendur leita í vax- andi niæli til stofnunarinnar, sömuleiðis atvinnuumsækjend- ur varðandi upplýsingar um at- vinnumöguleika í hinunt ýmsu starfgreinum og á hverju vori leita hundruðir skólafólks til stofnunarinnar í vinnuleit og hefur að mestu tekist að leysa vanda þeirra hin síðari árin. Einnig rekur Reykjavíkurbore vinnuskóla fyrir ungfinga á aldr- inum 14-15 ára og síðan 1976 hefur verið starfrækt sérstök deild innan stofnunarinnar sem sér um að útvega hömluðu fólki vinnu við hæfi. renndu við eða hafðu samband möguleikar af möraum 1. STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR Ef þú staðgreiðir þá vöru sem þú kaupir, veitum við þér 3-20% afslátt eftir vöruflokkum. 2. SKULDABRÉF Þú stendur í stórræðum, greiöir 20% út og afganginn á allt að 6 mánaða skuldabréfi. Ef þú greiðirvöruúttektstrax með peningum og skuldabréfi færð þú afslátt. 3. MÁNAÐARREIKNINGUR Þú stendur þig vel í viðskiptum og stofnar mánaðarreikning sem gengið er frá fyrir 10. hvers mánaðar. Sé þá greitt í peningum veitum við þér 2% afslátt. * IBYGGINGAVÖRUR ÍHRINGBRAUT 120: Simar: Harðviðarsala................28-604 T Byggingavörur...28-600 Málningarvörur og verkfæri.28-605 I Gólfteppadeild..28-603 Flisar og hreinlætistæki...28-430 J

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.