NT - 11.12.1984, Side 12

NT - 11.12.1984, Side 12
Þriðjudagur 11. desember 1984 12 ■ Birgitte hertogaynja af Gloucester þykir með glæsi- legri fulltrúum bresku kon- wí. ív.- ■ Það er stórt skref frá því að vinna sem óbreyttur einkaritari í Danmörku til þess að verða einn af meðlimum bresku konungsfjölskyldunnar. 5TEVE McQUEE f t/AH -£N Þc LtNLCCA SJJUFi'A ■ Hjónaband þeirra Ali MacGraw og Steve McQueen var stormasamt, en þó lúskraði hann ekki á henni á almannafæri. Þetta er atriði í kvikmyndinni The Getawav. ■ Tilefnið var 37 ára afmælis- dagur Ali MacGraw og staðurinn var einn af fínustu veitingastöð- um Beverlý Hills, Le Bistro. Afmælisbarnið ljómaði af ánægju, þegar vel klæddir veislu- gestir skáluðu fyrir því og fram- tíðinni. En skyndilega var friður- inn rofinn af háværum vélagný. Inn á mitt gólf var skyndilega kominn skeggjaður maður á mótorhjóli, íklæddur nærbol, sem allur var útataður í olíu. Tveir stórir og stæðilegir útkast- arar staðarins geystust á vettvang og hentu þessum óvelkomna gesti út. Maðurinn var Steve McQueen, eiginmaður Ali MacGraw. Þetta var bara eitt atvik af mörgum furðulegum uppákom- um í hjónabandi þeirra Ali og Steve. Þau kynntust, þegar þau unnu saman við töku myndarinn- ar The Getaway og voru þá bæði gift. En ástin greip þau heljartök- um, svo að áður en við var litið voru þau búin að láta pússa sig saman og vígsluvottarnir voru börn þeirra, Joshua sonur Ali og Chad og Terri börn Steves. Að nokkrum mánuðum liðnum var Ali farin að ganga til sálfræðings reglulega fjórum sinnum í viku, en Steve sat í fýlu heima og síðan hefur verið reynt að finna skýringar á öllum látunum. Ali segist hafa verið erfið í sambúð, en öllum kunnugum ber saman um að Steve hafi síður en svo verið auðveldur í umgengni. Þegar hér var komið sögu var Steve búinn að eiga í útistöðum við Yul Brynner, Frank Sinatra og Bobby Darin, og nú var röðin komin að næsta nágranna, Keith Moon í hljómsveitinni Who. Hann lýsti upp hús sitt með ljóskösturum, sem Steve hélt fram að eyðilegði svefnfrið hans og heimtaði að yrði slökkt á þeim, og þegar þeirri kröfu hans var ekki sinnt, tók hann sig til og skaut þá niður! Ali er mann- blendin og vill gjarna vera innan um fólk, en Steve bannaði henni allt samneyti við annað fólk og krafðist þess að hún sæti bara heima og væri sæt. Hún hefur aldrei haft mikinn áhuga á vélum af neinu tagi, en Steve krafðist þess að hún deildi með honum áhuganum á bílum af öllum gerðum, flugvélum og mótor- hjólum, sem áttu hug hans allan. Það var þess vegna ekki við öðru að búast en að hjónabandið yrði skammlíft. Að fjórum árum liðn- um héldu þau hvort í sína áttina. Steve sem var í miklum metum sem kvikmyndaleikari, fór að verða hirðulaus um útlit sitt. Hann fór að safna skeggi og aukakílóum og missti allan áhuga á kvikmyndum. Hann var þó ekki dauður úr öllum æðum og gerði þriðju tilraunina í hjóna- bandssælunni og nú vildi svo vel til að kona hans, sem var 24 árum yngri en hann, hafði sömu áhugamál og hann. En nú var heilsu hans alvarlega tekið að hraka og eftir að hafa leitað sér umdeildra lækninga við krabba- meini, varð hann að láta í minni pokann fyrir sjúkdómnum. Hann dó 1980, fimmtugur að aldri. Steve átti tvö börn með fyrstu konu sinni og þó að hann hafi lítið sinnt þeim í lifanda lífi, fá þau nú að njóta góðs af faðern- inu. Nýlega var nefnilega haldið uppboð á gripum, sem Steve McQueen lét eftir sig, og þótti það tíðindum sæta hvað gott verð fékkst fyrir þá. Alls kom rúm milljón dollara fyrir hluti eins og brunahjálm, sem hann bar í kvikmyndinni The Tower- ing Inferno, verkfærasett, Jagú- ar-bíl o.s.frv. urnum. Þar með var hlutverk dönsku stúlkunnar Birgitte, sem hafði unnið sem einkarit- ari áður en hún giftist til Englands, orðið allt annað en hún hafði ætlað sér. En Birgitte hefur sýnt að henni er ekki fisjað saman. Hennar starf er að koma fram við hin margvíslegustu tæki-1 færi sem fulltrúi bresku kon- ungsfjölskyldunnar, og þar getur hún ekki gert sér vonir um að enginn taki eftir henni. Hún hefur þess vegna orðið að hrista af sér feimnina, sem hún hafði haft með sér úr föðurhús- um, og nú er svo komið að hún vekur hvarvetna athygli fyrir frjálslega framkomu og glæsi- legan klæðaburð. Hertogahjónin af Gloucest- er eiga 3 börn, Alexander jarl af Ulster 9 ára, lafði Davinu 7 ára og lafði Rose 4 ára. ■ Danska stúlkan gerði sér ekki alveg grein fyrir hvað hún var að fara út í þegar hún giftist unga Bretanum sem hún hafði fallið fyrir, fyrir 12 árum. Að vísu var henni vel kunnugt um að hann var ná- skyldur Elísabetu Bretadrottn- ingu, þau eru bræðrabörn, en þar sem hann átti eldri bróður, sem átti að taka við titlinum og öllum skyldum sem honum fylgja, var hún tiltölulega áhyggjulaus. En margt fer öðru vísi en ætlað er. Eldri bróðirinn, féll frá í blóma lífsins, og titillinn hertoginn af Gloucester ásamt öllum réttindum og skyldum var lagður á herðar yngri bróð-

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.