NT - 29.12.1984, Blaðsíða 2

NT - 29.12.1984, Blaðsíða 2
n Laugardagur 29. desember 1984 Undirskriftir með álveri við Eyjafjörð: 4032 „ábyrgir“ Eyfirð ingar vilja fá álver - Eyjafjörður ofarlega á blaði, segir forsætisráðherra ■ „Ég er þeirrar skoðunar að stóriðja eigi að vera á dagskrá samhliða öðrum iðnaðarkost- um, en við getum ekki gert ráð lyrir að stóriðjufyrirtækin bíði í röðum. Það er víða mikið fram- boð á ódýrri orku. En þegar að því kemur að velja stað fyrir næsta stóriðjufyrirtæki tel ég að Eyjafjörður verði ofarlega á blaði,“ sagði Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra er hann veitti viðtöku undirskrifta- listum frá áhugamönnum um framfarir við Eyjafjörð í gær. Á listana rita nöfn sín '4032 „ábyrgir" Eyfirðingar 18 ára og eldri sem telja „nauðsynlegt að næsta stóriðjufyrirtæki, sem byggt verður á íslandi verði valinn staður við Eyjafjörð enda verði talið tryggt að rekstur þess stefni ekki lífríki fjarðarins í hættu,“ eins og segir í hinni undirrituðu áskorun til stjórn- valda. Jón Arnþórsson fulltrúi hjá Iðnaðardeild SÍS á Akureyri sem afhenti listana vildi ekki gefa neitt nánar út á það hvað átt væri við með orðinu „ábyrg- ir“, en e.t.v. er verið að vísa til þess að áður hafa forsætisráð- herra verið afhentar undirskrift- ir 3289 manna, sem mótmæltu byggingu álvers við Eyjafjörð. Auk Jóns Arnþórssonar gengu fyrir ráðherra þeir Steindór Steindórsson frá Hlöðum f.v. skólameistari og Gunnar Ragnars, forstjóri Slippstöðvar- innar. Þeir lögðu áherslu á að málið snérist unt byggðasjón- arntið. Par hefði hallað ntjög á Eyjafjarðarsvæðið að undan- förnu og sagði Gunnar að ef svæðið ætti að halda sama lilut gagnvart Suðvesturhorninu og 1970 til 1980 þyrftu 1800 ný störf að koma til áður en ára- tugurinn er liðinn. Aðspurður sagði Gunnar að ltann hefði verulegar áhyggjur af þeim ágreiningi, sem ríkti heima á héraði um þessi mál, og taldi að viðsemjendur kynnu að kippa að sér hendinni og leita annað ef hann yrði ekki jafnað- ur. Steingrímur Hermannsson tók í sama streng. Söfnun undirskrifta á þennan lista hefur staðið með hléum frá fyrri hluta síðastliðins sumars. Áðstandendur hans leggja áherslu á að vettvangsferð til fyrirtækisins Alcan í Kanada á síðastliðnu sumri hafi sannfært þá um að mengunarhætta stafi ekki af álveri ef til kæmi. Alcan er líklegasti eigandi álvers við Eyjafjörð. Frágangur listanna var mjög táknrænn. Þeir voru lagðir í peningakassa til að minna á þann hagnað sem álver hefði í för með sér, en listarnir sjálfir voru bundnir inn í sauðskinn, sem tákn unt að álver ógnaði ekki því atvinnulífi sem fyrir er í landinu. ■ Jón Arnþórsson og Steingrímur Hermannsson eru sposkir á svip yfir pcningakassanum sem hafði að geyma undirskriftir rúmlega fjögurþúsund Eyfirðinga, bundnar inn í sauðskinn. NT-mynd: Sverrir Alfabrennurnar: ■ Brennuundirbúningur stendur nú hvað hæst og hefur þessum bálkesti sem hér sést verið komið upp í Brciðholtinu í Bakkahverfinu. Þarna var stærsta brenna höfuðborgarinnar í fyrra og undanfarin ár. NT-mynd: Ámi Bjarna Mestar dýrðir í Fossvoginum ■ Stærstu áramótabrennur höfuðborgarbúa verða við Rjúpufellið á mótum Hraunbergs og Hólabergs, á lóð Víkings innst í Fossvogi og á mótum Ægisíðu og Faxaskjóls. Auk þess eru skráðar hjá lögreglu 12 aðrar brennur og reiknað er með öðrum tólf í nágrannabæjum Reykjavíkur. Mest verður brennudýrðin í innanverður Fossvogsdal því auk brennunnar á Víkingsvellinum verða Kópavogsbúar með sínar tvær eða þrjár brennur þar á næstu grösum. Lögregla þar í bæ synjaöi fyrir lcyFi um brennu við Ásbraut í Ijósi reynslu undanfarinna ára. Fimm brennur verða í Hafnarfirði, þrjár í Garðabænum, ein í Mosfellssveit og væntanlega ein á Valhúsahæðinni á Seltjarnarnesinu. Jóla- sveinar á jóla- diskó ■ FUF-arar í Reykja- vík standa fyrir almennri jólagleði á Hótel Hofi á morgun kl. 15 ogeru allir velkomnir. Á dagskrá gleðinnar eru margvíslegir jólaleik- ir, jólasveinar koma í heimsókn og hið geysi- vinsæla jóladiskótek verður í gangi. Þá verður spilað jólabingó. Miðasala verður á Rauðarárstíg 18 rnilli 13 og 17 í dag. Kostar hann 150 krónur, en gosflaska og sælgætispoki eða kaffi og kökur er innifalið í verðinu. 18. leikvika - leikir 22. desember 1984 Vinningsröð: 121 - 2*02 -121 -122 (*0 fellur út) 1. vinningur: 11 réttir - kr. 108.605.- 1895 63368(4/10) 95847(6/10) 18607 91911(6/10) 2. vinningur: 10 réttir - kr. 1.698.00.- 805 36961 57278 85993 94777 64431 <34o) 1370+ 38041 57308 86624+ 94848 85116<34o) 4682 38890 58925+ 86643+ 94900+ 87964(^10)+ 4698 38891 58950+ 88283 95137+ 89463(34o) 4737 40035 58980+ 90000 181666 89992(34 o) 8072 43088 59009+ 90309 35250(34oi 90004<34oi 12582 43122 60230+ 90313 37035<+'io) 90495(300»+ 13461 43482 61565+ 91676 43277(34o) 91011<34o) 13462 45924 61691 91919+ 47128(340)+ 93174<34o) 13483 46285 62333 92105 47430<34 o)+ 93244(340) 14718 48121 62950 92274 53072<34o) 164951 (34o)+ 17031 48122 64209 93329 53649<34o)+ 164952(34 oi+ 17547 50504 85078 93334 56537<34oi 182031<^io) 17729 51099+ 85099 93351 56540(34o) 51139<17/vika) 36462 55778+ 85111 93358 59049(34o) 61148<l7Aka)+ 36638 56989+ 85568+ 94280 60800(34o) 64450(’V»ika)+ Kærufrestur er til 14. janúar 1985 kl. 12:00 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í Reykjavík. Vinn- ingsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests. GETRAUNIR - íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK Karpov þreyttur ■ Þeir eru orðnir þreyttir. Og hvernig má annað vera. Heims- meistaraeinvígið í skák hcfur nú staðið í þrjá og hálfan mánuð og enn er ekki séð fyrir endann á því þó Karpov heimsmeistari þurfi ekki nema einn vinning til viðbót- ar. Gallinn er bara sá að hann virðist skorta þrek til að Ijúka ætlunarverki sínu. Kasparov virð- ist á hinn bóginn allur vera að færast í aukana eftir sigurinn í 32. skákinni. Þeir félagar fengu næst- um viku frí þegar Ustinov varn- armálaráðherra burtkallaðist. Frí- ið virðist ekki hafa komið Karpov að góðu í þessari skák, hann tefldi vélrænt og á verra í biðstöðunni þó jafnteflisvonir séu vissulega til staðar. Kasparov lék hinsvegar á alls oddi í þessari skák, endurbætti gamla skák mótstöðumannsins og virðist farinn að hlakka til jólanna sem eru um áramótin hjá flestum Sovétmönnum: 36. einvígisskák: Hvítt: Garrí Kasparov Svart: Anatoly Karpov Drottningarbragð 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. RI3 d5 4. Rc3 Be7 5. Bg5 h6 (Svo virðist sem heimsmeistar- inn hafi algerlega snúið bakinu við drottningarindversku vörnina eftir tapið í 32. skák. Hann beitir Tartakower - afbrigðinu nú í ann- að sinn í röð.) 6. Bh4 0-0 7. e3b6 8. Be2 Bb7 9. Hcl dxc4 10. Bxc4 Rbd7 11. 0-0 c5 12. dxc5 Rxc5 13. De2 a6 14. Hfdl De8 15. Re5 (Hvítur hefur nokkra yfirburði í liðsskipan og reynir nteð þessum leik að færa sér það í nyt. Nú gengur t.d. ekki 15. - Rfe4 vegna 16. Bxe7 Dxe7 17. Rxe4 Bxe4 18. b4 ásamt 19. Hd7 með hættulegri sókn. í því sambandi er vert að benda á f7 - reitinn sem hentugan fórnarstað hvítu mannanna. Karp- ov velur eðlilegasta leikinn.) 15.. . b5 16. Rxb5! (Þessi óvænta mannsfórn setur allt í bál og brand og ber þess vitni að baráttuþrek Kasparovs hafi ekki dvínað að ráði í síðustu skákum. Fórnin hefurgeysimiklar flækjur í för með sér sem erfitt er að henda reiður á. Karpov er vitaskuld neyddur til að taka manninn.) 16.. . axb5 17. Bxb5 Ba6! 18. Hxc5! Bxc5 19. Bxa6 Da4 20. Bxf6 gxf6 (Ekki 20. - Dxa6 21. Dg4 g6 22. Rxg6 og hvítur vinnur.) 21. Bb5 Dxa2 22. Rd7 Be7 (Það er allt of hættulegt að reyna að halda í skiptamuninn með 22. - Hfc8. Upp úr krafsinu hefur Kasparov nú lítið peð en mislitir biskupar gefa Karpov jafn- teflisvonir. Það er hægt að nudda þessa stöðu lengi og það er áreið- anlega meiningin hjá Kasparov sem varð að þola slíkan þrýsting í 93. skák einvígisins sem lauk með jafntefli í 93 leikjum.) 23. Dg4t Kh8 33. h3 Hxc2 24. Rxf8 Bxf8 34. Dxc2 Bf6 25. Df3 Be7 35. b3 Db4 26. Bc4 Da7 36. Ddl Dc3 27. Dh5 Kg7 37. Ddl Dc3 28. Dg4t Kf8 38. Kg2 Dc6t 29. Bfl Hd8 39. Kh2 Dc5 30. Hcl f5 40. Be2 Be7 31. De2 Kg7 41. Kg2 32. g3 Hc8 IlS w Éf m ■ A Jhil WM m 5+1 m m wrn && abcdefgh - Hér fór skákin í bið. Þrátt fyrir mikil tilþrif og peðsvinning læðist að manni sá grunur að Karpov muni ekki eiga í umtalsverðum erfiðleikum með að halda þessari stöðu. Skákin verður tefld áfram í dag en næsta skák verður síðan tefld á mánudaginn. íslenska hljómsveitin með tónleika á morgun: Frumflytur verk eftir Atla Heimi ■ „Verkið heitir „Kliður" og ég get sagt smá sögu um það þegar ég sá það fyrst. Þegar ég opnaði raddskrána fyrir nokkr- um dögum og leit yfir hana hrökk upp úr mér, „verkið byrj- ar á gegnumfærslunni". Átli sagði það rétt vera. Þá sagði ég að það hlyti að enda á framsög- unni. Það er rétt sagði Atli og hló við. Og þetta er raunin með verkið. Það er eins og það hefjist í miðjum klíðum. „Þetta sagði Guðmundur Emilsson hljómsveitarstjóri og verkið sem um er að ræða er sextett eftir Atla Heimi Sveinsson og hann verður frumfluttur á tón- leikum Islensku hljómsveitar- innar í Bústaðakirkju á morgun kl. 17.00. Og Guðmundur held- ur áfram að Iýsa verkinu: „Þetta er eins og að koma inn á miðjan fund og það er kliður í salnum og maður veit ekki um hvað umræðan snýst fyrr en á líður og framsögumaður tekur til máls og dregur saman hvað hann sagði í inngangi. Framsag- an eða erindið virkar á mig eins og mjög fínlegt sálmalag, sem verður að leika eins veikt og auðið er og svo hverfur það í lokin inn í eilífðina. Fundi slitið.“ „Kliður“ er eins og áður segir sextett, sem myndar þrjú dúó. Þau sem leika eru Martial Nar- deau, Sigurður I. Snorrason, Hlíf Sigurjónsdóttir, Ásdís Valdimarsdóttir, Anna Guðný Guðmundsdóttir og Elísabet Waage. Önnur verk á efnisskrá tón- leikanna á morgun eru Sónata fyrir flautu, víólu og hörpu eftir Debussy, flutt af Elísabetu Waage, Martial Nardeau og Ásdísi Valdimarsdóttur, Sónat- ína fyrir flautu og klarinett, eftir André Jolivet flutt af Mart- ial Nardeau og Sigurði I.Snorra- syni, Frá Eyjafirði fyrir hörpu eftir John Herne, en það verk lýsir kyrrð Eyjafjarðar í tónum að sögn höfundarins sem er breskur og hefur dvalist hér- lendis. Síðasta verkið er Svíta fyrir klarinett, fiðlu og píanó, leikið af Sigurði I. Snorrasyni, Hlíf Sigurjónsdóttur og Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.