NT - 29.12.1984, Blaðsíða 20
Laugardagur 29. desember 1984 20
■ Brcskur hermaður í Belfast. Nokkuð hefur dregið úr ofbeldisaðgerðum skæruliða á þessu ári en
samtals hafa 2.410 manns fallið í átökuni á Norður-lrlandi frá því árið 1972.
Morðum fækkar á
Norður-írlandi
Belfasl-Reuter
'■ Það sem af er þessu ári hafa
færri látist vegtta árása borgar-
skæruliða á Norður-írlandi en á
nokkru öðru ári síðastliðin
fjórtán ár.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu Itafa 64 látið lífið á árinu
og 793 særst í ofbeldisaðgeröunt
skæruliðanna. Af þeim sem lét-
ust voru 36 óbreyttir borgarar,
19 hermenn og9 lögreglumenn.
Mest varð ofbeldið á þessu
árabili árið 1972 þegar 462
létust. Alls hafa 2.410 manns
frá því að ofbeldisaðgerðir
borgarskæruliðanna hófust
árið 1969.
Barnafæð
í Kanada
Ottawa-Reuter
■ Embættismenn í Kanada
spá því að íbúum þar í landi
fari að fækka á næstu öld ef
svo fer sem horfir. Ný könn-
un á fjölskyldustærð Kan-
adamanna sýnir að hver
kanadísk fjölskylda á nú að
meðaltali 1,7 börn saman-
borið við 3,9 börn árið 1959
þegar Kanadamönnum
fjölgaði mjög ört.
Kanada er næst stærsta
land í heimi að flatarmáli til
cn íbúar þar í landi eru
aðeins um 25 milljónir.
Bretland:
Nýtt biðrað-
arheimsmet
London-Reuter
■ Breskur leigubílstjóri
sló í gær nýtt heimsmet í
biðraðarstöðu eftir að
hafa beðið í 17 daga í
biðröð við stórmarkað til
að komast á árlega útsölu
verslunarinnar.
Leigubílstjórinn, sem
heitir Tony Sprackling,
hélt jólin fyrir utan stór-
markað í Colchester í
Vestur-Englandi. Þar
opnaði hann gjafir sínar
og át jólamatinn. Þannig
tókst honum að bæta 60
klukkustundum við fyrra
heimsmet sem var 352
stundir.
Þegar útsalan byrjaði
svo að lokum keypti Tony
sófa sem hafði verið lækk-
aður úr 399 pundum niður
í 50 pund. Verslunarstjór-
inn launaði honum líka
biðlundina með kampa-
víni. Með biðraðarstöð-
unni vildi Tony vekja at-
hygli á starfi góðgerða-
stofnana.
I'
Gledilegt nýtt ár
Þökkum starfsfólki, sjómönnum
og öörum viöskiptavinum okkar gott
samstarf og viðskipti á liönutn árum.
Hraðfrystihús Dýrfirðinga
Fáfiiir
Þingeyri.
I'
I.
Tyrkland:
Vopnaverk-
smiðja
springur
Ankara-Reuter
■ Annan í jólum varð gífur-
leg sprenging í vopnaverk-
sntiðju í Kayas-borg á Tyrk-
landi.
Anatolian-fréttastofan í
Tyrklandi segir að a.m.k. átta
manns hafi særst alvarlega i
sprengingunni. Þeir hafi verið
með brunasár á mörgum stöð-
um á líkamanum.
Vopnaverksmiðjan, þar sem
sprengingin varð, er í eigu
ríkisins. í frétt Anatolian-
fréttastofunnar kom ekki fram
hvað hefði valdið sprenging-
unni.
Mannskætt ár
í Nicaragua
Managua-Reuter
■ Varnarmálaráðherra Nica-
ragua, Humberto Ortega, segir
að um 4.600 hafí látist á þessu
ári í átökum við skæruliða sem
vinna að því að steypa stjórn
landsins og eru studdir af
Bandaríkjamönnum.
Samkvæmt ráðherranuin hef-
ur stjórnarherinn gert 4000
skæruliöa óvíga, þar af fcllt um
3000, í 1.500 skæruni á árinu.
Hann sagði að her Sandinista
hefði misst um þúsund menn
auk þess sem að minnsta kosti
600 óbreyttir borgarar hefðu
falliö í árásum skæruliöanna.
í skæruliðahernum, sem er
þekktur undir nafninu
„Contras“, eru um 15.000
manns. Hann hefur höfuðbæki-
stöðvar sínar í Honduras
skammt frá landainærum Nica-
ragua. Starfsemi skæruiiðanna
er að inikiu leyti fjármögnuð af
Bandaríkjamönnum sem vilja
stjórn Sandinista í Nicaragua
feiga.
Auk bækistöðvanna í Hond-
uras fyrir norðan Nicaragua eru
smærri skæruliöabúðir einnig
fyrir sunnan landið í Costa Rica.
Grænlendingar
fastir fyrir
Nuuk-Reuter
■ Grænlendingar eru
ákveðnir í því að hætta í
Efnahagsbandalaginu nú
um áramótin þrátt fyrir
andstöðu Frakka við það
að Grænlendingum verði
leyft að ganga úr EBE.
Heimastjórn Grænlend-
inga ákvað í fyrrakvöld að
Grænlendingar myndu
ganga einhliða úr Banda-
laginu 1. janúar þótt þá
hafi enn ekki verið gengið
frá öllum formlegum atr-
iðum. Grænlendingar eru
fyrsta þjóðin sem gengur
úr EBE, en þeir urðu
upphaflega aðilar að EBE
þegar Danir gengu í það
árið 1973.
Andstaðan við úrgöngu
Grænlendinga úr EBE
stafar aðallega af því að
enn hefur ekki verið form-
lega gengið frá samning-
um um hlut ýmissa EBE-
ríkja í veiðúm við Græn-
landsstrendur. Samningar
um veiðiskiptinguna tókust
að mestu leyti fyrir nokkru
en hafa ekki öðlast gildi
þar sem írska þingið
„gleymdi" að fjalla um þá
áður en það fór í jólaleyfi.
Samkvæmt reglum EBE
geta Grænlendingar því
ekki gengið formlega frá
úrgöngu sinni fyrr en í
fyrsta lagi í síðustu viku
janúar.