NT - 29.12.1984, Blaðsíða 21
02 i>8er ■sodmassb .98 we8!no?»i«^
i i r
Laugardagur 29. desemberÞri84 21
Útlönd
Stórsigur
Rajiv Gandhi
- í þingkosningunum
■ Rajiv Gandhi og
Kongressflokkurinn í
Indlandi virðast hafa tr)'ggt
sér stórsigur í þingkosn-
ingunum nú yfir jólin.
Samkvæmt spá indverska
ríkissjónvarpsins var gert
ráð fyrir að Gandhi myndi
tryggja sér 360 til 400 þing-
sæti af 508.
Að öllum líkindum mun
Rajiv Gandhi og flokkur
hans fá yfir 2/3 atkvæða en
það hefur ekki áður gerst
að Kongressflokkurinn
hafi fengið yfir 50% at-
kvæða. Leiðtogar stjórn-
arandstöðuflokkanna
sögðu að ekki hefði verið
staðið að kosningunum
sem skyldi. Óeirðir urðu
víða við kosningastaði og
dóu að minnsta kosti 35
manns og meira en 300
særðust í átökum. Fjöldi
stuðningsmanna stjórnar-
andstöðuflokkanna í Utt-
ar Pradesh fylki, sem mót-
nrælti meintum kosninga-
svikum særðist er lögregl-
an réðist til atlögu með
bareflum.
Hinn mikli sigur Kon-
gressflokksins bendir þó
til þess að Indverjar standi
sameinaðir að baki Rajiv
Gandhi. Með fylgi 2/3
þingmanna getur hann
breytt stjórnarskrá Ind-
lands að vild sinni því
Kongressflokkurinn hefur
tryggt sér einnig 2/3 at-
kvæða í efri deild þingsins,
Raj Sabha. Kongress-
flokknum mun ekki veita
af meirihluta sínum því
barátta sjálfstæðishreyf-
inga og trúarhreyfinga í
ýmsum fylkjum Indlands
hetur um árabil verió
hatrÖmm. (Bvggl a Keulcrl
/
Oskum öllum til lands og sjávar
Gleðilegs nýárs
Þökkum gott samstarf
og viðskipti á liðnu ári
HFHAMAR
Borgartún 26. Sírni 22123
Bandaríkin og Hond-
uras í vígahug?
■ Bandaríkin og Honduras undirbúa her-
æfingar á landamærum Nicaragua og
Honduras í mars á næsta ári. Ætlunin er að
1200 bandarískir hermenn taki þátt í
æfingunum og 3000 frá Honduras.
Talsmenn Nicaraguastjórnar hafa ítrekað
mótmælt fyrirhuguðum æfingum og segja
þær hluta af innrásarundirbúningi Banda-
ríkjanna og fleiri ríkja.
Bandaríkjamenn hafa byggt upp þéttriðið
net herstöðva og flugvalla á síðustu tveim
árum í Honduras. Markmiðið er sagt vera
að koma í veg fyrir útþenslu byltingarinnar
í Nicaragua.
Reuter
Perú:
70 leynilegir f íkni-
efnafluvellir
Lima-Reuter
■ Einn af æðstu foringjum eiturlyfjalög-
reglunnar í Perú, Walter Andrade hershöfð-
ingi, segir að eiturlyfjahringir í Perú hafi
komið sér upp neti af um 70 leynilegum
flugvöllum sem þeir noti til að flytja kókaín
og önnur fíkniefni úr landi.
í viðtali við El Comercio dagblaðið í Perú
sagði hershöfðinginn ennfremur að kókaín
væri nú ræktað á um 120.000 hekturum
lands og að stöðugt meira land væri tekið
undir kókaínræktun í Perú. Kókaín væri
ekki aðeins ræktað í frumskógunum í Norð-
ur-Perú heldur einnig í árdölum í Mið- og
Suður-Perú.
Um helmingur af allri kókaínuppskeru
heimsins kemur frá Perú. Stór hluti af
kókaínlaufunum er fluttur í flugvélum til
Kólombíu þar sem markaðshæft kókaín er
unnið úr þeim.
Kambódía:
Forsætis
ráðherr-
ann lést
Moskva-Reuter
■ Chan Si, forsætisráðherra þeirr-
ar stjórnar í Kambodíu, sem Víet-
namar styðja, lést í Moskvu fyrir
nokkrum dögum.
Ekki er enn vitað nákvæmlega
hvenær forsætisráðherrann lést en
japönsk fréttastofa segir að hann
hafi látist á miðvikudag úr hjarta-
áfalli. Chan Si var við slæma heilsu
og kom oft til Moskvu í læknismeð-
ferð.