NT - 29.12.1984, Síða 4

NT - 29.12.1984, Síða 4
ÖC V *<? I Laugardagur 29. desember 1984 Aldrei haft annað jóla tré en þetta frá 1910 - áður skreytt með pappír úr ísafold og Vestra, segir Sigurgeir Falsson af Hornströndum Hraðfrystihús Kaupfélags Héraðsbúa Reyðarfirði og Borgarfirði eystri óskar starfsfólki og viðskiptavinum farsœldar á komandi ári Þakkar gott samstarfog viðskipti á árinu, sem er að líða Hraðfrystihús Kaupfélags Héraðsbúa Reyðarfirði og Borgarfirði eystri ■ „Ég hef aldrei haft annað jólatré en þetta - sem mér var gefið árið 1910. En þá var ég fjögurra ára. Ég hygg að óhætt sé að fullyrða að þetta sé elsta og jafnframt eina jólatréð af þessari gerð sem enn er til og notað á hverjum jólum,“ sagði Sigurgeir Falsson þegar hann sýndi okkur frá NT jólatréð sitt sem hann hefur nú átt í 74 ár og enn einu sinni skreytt fyrir þessi jól. Kveðnar auglýsingar virðast ■ Það má passa sig að fara ekki mikið frá trénu meðan logar á kertunum, sagði Sigurgeir sem tendraði Ijósin fyrir okkur. Næst hyggst hann kveikja á kertunum á gamlárskvöld. NT-mynd: Árni Bjurna því véra orðnar nokkuð gamlar þegar að er gætt. Þegar Sigurgeir var drengur á Hornströndum sagði hann hafa verið til siðs að borða snemma-um fjögurleytið -á aðfangadagskvöld. Síðan skiptu allir um föt áður er; heilagt varð, en þá hófst hús- lesturinn. Eftir lesturinn rann svo upp hin langþráða stund að hann mátti kveikja á kert- unum á jólatrénu og aðrir á kertum hver við sitt rúm - allsstaðar voru Ijós. Þá var líka komið að jólakaffinu með pönnukökum sem sykraðar voru með muldum kandís, sem Sigurgeir minnist enn að gerði pönnukökurnar seigar - en líka ákaflega góðar. Til að njóta Ijósadýrðarinn- ar var til siðs að vaka lengi frameftir á jólanóttina, enda Ijós látið loga alla nóttina. Á sumum bæjum í grenndinni kvað Sigurgeir hafa tíðkast að elda og skammta kjötsúpu á jólanóttina, en ekki á Horni. Að morgni jóladags var svo farið eldsnemma á fætur til að hella upp á könnuna. Hangi- kjötið og hrísgrjónagrauturinn var svo borðaður á jóladag. Eftir miklar vökur og Ijósdýrð nóttina áður og fótaferð árla, var svo til siðs að sofa allt rökkrið á jóladag. Það var auðheyrt á Sigur- geiri að litla jólatréð hans vakti upp með honum margar minningar frá æskudögum og enn er það eina jólaskrautið sem hann hefur hjá sér. Á trénu sínu hyggst hann tendra Ijósin hver jól og áramót svo lengi sem honum endist aldur. ■ Guðrún Helgadóttir og Ragnar Stcfánsson Brúðkaupsafmæli ■ 40 ára brúðkaupsafmæli ar Stefánsson. Þau taka á móti eiga á gamlársdag hjónin gestum föstudag4. janúar milli Guörún Helgadóttir og Ragn- klukkan 16-19. Sigurgeir átti heima á Horni á Hornströndum - eina barnið á bænum - þegar liann eignað- ist tréð. Það var frændi hans sem smíðaði það til að gleðja þennan litla frænda sinn sem þá vár bæði föður- og móður- lausorðinn. „Jú.það varmikið um dýrðir þegar ég fékk að kveikja á kertunum á trénu í fyrsta sinn - og ennþá eru minningarnar þær sömu,“ sagði Sigurgeir. En með hverju var tréð skreytt í þá daga? - Svona, nenia pappírinn var bara úr ísafold og Vestra. Úr þeim var klippt út skraut og listaverk á hverju ári. Á stéttinni var rauður pappír utan af Lúðvíks- Davíðs kaffibæti. Þetta rifjaði upp fyrir Sigurgeiri eftirfarandj vísu: KafHsopinn indæll er, eykur fjör og skapið kætir. Langbest jafnan líkar mér, Lúðvíks-Davíðs katlibætir.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.