NT - 29.12.1984, Side 9

NT - 29.12.1984, Side 9
I a L ’HS 1T- V J /i Ágætt Þingvallarit Björn Th. Björnsson: Þingvell- ir, staöir og leiðir. Bókaútgáfa Menningarsjóös 1984. 195 bls. ■ Eigi mun fjarri sanni að staðhæfa, að á sumri hverju leggi mikill hluti íslensku þjóðarinnar leið sína á Þingvöll, flestir til skammrar dvalar, eða viðkomu. Þetta gæti að sönnu virst fagurt merki þjóðernishyggju og föðurlandsástar, en sú er þó sjaldnast raunin. í augum flestra eru Þingvellir afar hentugur við- komustaður í stuttum dags- eða helgarökuferðum, viðkomu- staður, þar sem þægilegt er að teygja úr sér í fallegu umhverfi, og í augum flestra af yngri kynslóðinni eru Þingvellir sjoppa, sem selur ís. Flestir þeir, sem kynnast Þingvöllum þannig fyrst sem viðkomustað og verslunarmið- stöð, læra að sönnu síður, að þar sé frægur sögustaður og þar hafi þing staðið, en fæstir munu kynnst staðnum miklu nánar. Hafa og margir kvartað undan lítilli vitneskju um Þing- velli og sumir borið þvf við, að þeim hafi ekki verið tiltæk hand- hæg vitneskja, en staðurinn auk þess torfær og jafnvel hættuleg- ur yfirferðar ekki síst börnum. Víst má þetta til sanns vegar færa, en eftir útkomu nýrrar bókar Björns Th. Björnssonar, ættu allir að geta ferðast um Þingvöll sér til yndis, ánægju og fróðleiks. Björn Th. er gagnkunnugur á Þingvöllum og þekkir sögu stað- arins og heimildir um hana flest- um betur. Hann greinir ýtarlega frá öllum helstu sögustöðum er tengjast mannabyggð og þing- haldi á völlunum og sker á stundum úr gömlum og við- kvæmum deilumálum á skemmtilegan ogeinfaldan hátt. Má þar einkum nefna Lögbergs- þáttinn, en langt er síðan fræði- menn urðu ösammála um, hvar Lögberg hefði staðið og hafa ýmsir staðir verið til nefndir, ef með eru talin öll einkalögberg vísra manna. Björn sker úr í þessari „þrætubók" og færir gild rök fyrir því, að Lögberg sé hrunið, en hafi áður verið efst í Hallinum við Almannagjá, skammt þar frá, sem það nú er merkt. Annar ýtarlegur kafli er um staðsetning Lögréttu, og sýnir Björn fram á, að hún hafi ekki alltaf verið á sama stað, en færir rök fyrir staðsetningunni hverju sinni. En fleira er athyglisvert og fróðlegt á Þingvöllum en þing- staðurinn einn. Þangað liggja margar fornar þingleiðir, sem gaman er að rekja í fylgd kunn- ugs leiðsögumanns, þó ekki sé nema á bók, og í Bláskógum var áður fyrr mannabyggð, sem nú sér lítinn stað ókunnugum. Um það farast Birni Th. m.a. svo arð: „Annarstaðar geta menn víð- ast hvar gengið af augum eins og þá lystir, en á Þingvöllum spranga menn ekki langt leiðar- lausir. Víða er torratað um skóginn, þar sem lítt sér til kennileita, en gjár og sprungur oft óvæntir farartálmar. Því er það og. að Þingvallaferðir manna hafa nær einvörðungu takmarkast við þinghelgina, vatnsbakkann og mörkuð tjald- stæði, ef þá ekki einasta við hlaðið á Valhöll. Bláskógar sjálfir hafa verið mönnum nær lokaður heimur. Því skal hér freistað að rekja helstu leiðirnar sem um hraunið liggja." Vel tekst að rekja þessar „helstu leiðir1', reyndar svo vel, að mér virðist, að með bókina eina í vasanum geti göngumenn ■ Björn Th. Björnsson. komist í allnáin kynni við Þing- vallahraun, skóginn og þá nátt- úrufegurð, sem hann geymir. Mun það og sönnu nær, að fáar gönguleiðir á íslandi séu ánægjulegri á fögrum sumar- degi, en einmitt þær um Blá- skógaheiði. Af því sem hér hefur sagt verið ætti flestum að vera Ijóst, að hér er á ferð gagnmerk og stórfróðleg bók um Þingvelli, sögu staðarins og leiðir um hann. Textinn er skýr og skemmtilegur aflestrar og að auki er ritiö prýtt miklunt fjölda mynda og uppdrátta, sem auka enn á notagildið. Er það trúa mín, að margir muni þegar á næsta sumri telja sig standa í ómældri þakkarskuld við höf- undinn, er þeir taka að njóta verks hans á staðnum. Frá útgáfunnar hendi er allur frágangur bókarinnar með ágætum. Hún er í handhægu broti, örnefni í texta auðkennd með feitu letri og vel til fundið, að gefa hana út í gagnsærri en vatnsheldri hlífðarkápu. Jón Þ. Þór. Laugardagur 29. desember 1984 9 Lausná jólakrossgátu Óskum starfsfólki og viðskiptavinum Gleðilegs nýárs Þökkum gott samstarf og viðskipti á árinu sem er að líða Hraðfrystihús Kaupfélags Steingrímsfjarðar, Hólmavík Gleðilegs nýárs Þökkum gott samstarf og viðskipti á árinu sem er að liða Hraðfrystihús Drangsness hf.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.