NT - 02.02.1985, Síða 10
Skákþing
Revkjavíkur
eftir átta
umierðir:
Laugardagur 2. febrúar 1985 10
Skák
Róbert Harðarson
einn í efsta sæti
■ Hinn mjög siglandi Róbert Haröarson er nú kominn
í efsta sætiö á Skákþingi Reykjavíkur 1985 þegar átta
umferðir hafa verið tefldar eftir að hafa fengið hinn
fræga Monrad - meðvind í bakið; tap í fyrstu umferð og
síðan sjö sigrar í röð gera stöðu hans í mótinu sterka
ekki síst þegar horft er til þess að í áttundu umferð lagði
han að velli einn aðalkeppinaut sinn, Dan Hansson, í
æsispennandi skák. Ekkert má þó út af bregða hjá
Róbcrt á lokasprettinum þar sem þrír skákmenn koma
alveg á hæla honum með 6V2 vinning og fjölmargir
skákmenn eru með 6 vinninga.
í 2.-4. sæti eru Dan
Hansson, Andri Áss Grétars-
son og Árni Á. Árnason, allir
með 6V1. í 5.-9. sæti koma
Haukur Angantýsson, Þröstur
Bergmann, Þröstur Þórhalls-
son, Þorvaldur Logason og
Hilmar Karlssori, allir með 6
vinninga. Eftir því sem næst
verður komist eru aðeins tveir
keppendur með 5V5 vinning,
gamla kempan Sveinn Krist-
insson og ungur skákmaður,
Jóhannes Ágústsson.
Það er alveg Ijóst að ofan-
greindir keppendur koma til
með að berjast um titilinn
„Skákmeistari Reykjavíkur
1985“ en hver titilinn
hreppir er ómögulegt að segja
og þyrfti ekki að koma á óvart
þótt fleiri en einn yrðu efstir að
vinningafjölda.
Taflmennskan í mótinu hef-
ur verið æði misjöfn eins og
gefur að skilja. Dan Hansson
tefldi af miklu öryggi í upphafi
mótsins en þegar hann mætti
Róbert í 8. umferð Var liann
óþekkjanlegur, lenti í gífur-
legu tímahraki, lét króa af
fyrir sér drottninguna og féll
síðan á tíma. Eini titilhafinn,
Haukur Angantýsson, hefur
bætt sig hægt og bítandi og
getur reynst skæður á loka-
sprettnum. Þá er framganga
hins unga Andra Áss Grétars-
sonar allrar athygli vcrð og
sömu sögu m á segja um Árna
Ármannsem hefur sjaldan teflt
betur.
Ein skák úr toppbaráttunni
fylgir hér á eftir. Þegar hún var
tefld í 7. umferð var stjórnandi
hvítu mannanna, Hilmar
Karlsson, í efsta sæti en ofur
varleg taflmennska hans kom
honum í koll:
Hvítt: Hilmar Karlsson
Svart: Andri Áss Grétarsson
Sikileyjarvörn
1. e4 c5
2. RD d6
3. Bb5t Bd7
4. Bxd7t Dxd7
5. 0-0 Rf6
6. Rc3 Rc6
7. d4 cxd4
8. Rxd4 g6
9. Rd5 Bg7
10. Rxf6 Bxf6
(Hilmar er helsti glaður til upp-
skipta í þessari skák en þessi
mun raunar vera háttur hans.
Það er þó engin trygging fyrir
því að hann fái sniðgengið
taphættu m.a. vegna þess að
hann tapar nokkrum tíma í
uppskiptaleiðangri sínum.
Eins og framhaldið leiðir í Ijós
nær svartur fljótt og örugglega
þægilegri stöðu.)
11. Be3 0-0
12. c3 Bg7
13. Hel Re5
14. De2 Hac8
15. Hadl a6
16. Rc2 b5
17. Bd4 Db7
18. f3 Hfd8
19. Re3 e6
20. a3 Rc4
(Frumkvæði svarts er nú
óumdeilanlegt.)
21. Bxg7 Kxg7
22. Hd3 Db6
23. Hedl d5!
24. b3?
(Betra var tvímælalaust 24.
exd5 og hvítur heldur í horf-
inu.)
24... dxe4?!
(Glæfralegur leikur sem ætti
ekki að leiða til vinnings gegn
bestu tailmennsku hvíts.
Svartur átti í fórum sínum
einfaldan og geysisterkan leik,
24. - Re5!, sem færir honum
unið tafl eins og eftirfarandi
atburðarás gefur til kynna: 25.
Hd4 Hxc3 26. exd5 Hxd5! 27.
Hxd5 Hxe3! 28. Hd6Dxd6!og
hvítur tapar liði. Það er fyrst
og fremst slök byrjunartafl-
mennska Hilmars sem komið
hefur honum í þessar ógöngur
en nú fær hann tækifæri til að
rétta úr kútum.)
25. Hxd8 Hxd8
26. Hxd8 Rxe3
(26. - Dxd8 gefur aðeins jafn-
tefli.)
27. Hd7(?)
(Það er ekki víst að þessi
leikur tapi en sterkara var þó
27. Hd4 því eftir 27. - Rf5 28.
. Helgi
Olafsson
skrifar
umskák
Dxe4 Rxd4 29. cxd4 heldur
hvítur jöfnu án erfiðleika.)
27... Rg4t
28. Khl??
(Hrottalegur afleikur. Svartur
virðist eiga góða sigurmögu-
leika eftir 28. Kf 1 en ekki er þó
allt sem sýnist. í mörgum til-
vikum getur svartur þvingað
fram jáfntefli með þráskák
t.d.: 28. - Rxh2t 29. Kel Dglt
30. Kd2 Dbl 31. Ddl Db2t32.
Ke3! Dxc3t 33. Kxe4 Rfl!?
34. Hxf7t! Kxf7 35. Dd7t og
svartur sleppur ekki úr þrá-
skákinni. í stað 29. - Dglt má
reyna 29. - Dc6 en hvítur
virðist halda í horfinu með 30.
Dd2! Þarna fór síðasti mögu-
leiki Hilmars en nú verður
hann mát í nokkrum leikum.)
28. .. Rf2t
29. Kgl Rh3t
- og hvítur gafst upp. Svartur
leikur næst 30. - Dgl mát.
Langtífrá gallalaus skák, þó
dæmigerð fyrir hina hörðu bar-
áttu um efstu sætin á Skákþing-
inu.
Vegna helgarmóts Tímarits-
ins Skákar og Skáksambands
íslands á Akranesi um þessa
helgi fellur keppni niður á
morgun, sunnudag. Þá var
heldur ekki teflt í gær. 9.
umferð verður svo tefld á
mánudaginn, sú tíunda nk.
miðvikudag og ellefta og síð-
asta umferð verður tefld næsta
föstudag.
Arnað heilla
Olvir Karlsson
bóndi og oddviti í Þjórsártúni
■ Er ág frétti fyrir fáum dög-
um að bóndinn og félagsmála-
frömuðurinn hann Ölvir Karls-
son væri að fylla sjöunda áratug-
inn, varð ég nokkuð undrandi.
Undrun mín stafaði ekki af því
að maðurinn hefði ekki haft nóg
að starfa og hefði komið ærnu
dagsverki frá, heldur af hinu
hversu sístarfandi hann er fyrir
aðra og margföld verk sem hann
hefur tekið að sér fyrir sveit
sína, önnur sveitarfélög og sam-
borgara sína.
Ólvir hefur haslað sér völl á
fjölmörgum sviðum félagsmála.
Þar er hann á miklu fleiru
sviðum en einn af samferða-
mönnum hans hefur tök á að
greina frá. Á þessum tímamót-
um ævi hans tel ég mér skylt að
greina frá nokkrum af þeim
verkefnum hans sem snert hafa
starf mitt síðustu 5 árin. Þessi
frásögn mín getur hjálpað síðari
tíma sagnfræðingum er þeir
rita félagsmálaþætti íslenskra
bænda á síðari hluta 20. aldar-
innar.
Þessi Samtök sunnlenskra
sveitarfélaga voru stofnuð 1969
var Ölvir kosinn í stjórn þeirra
og tveim árum síðar kjörinn
formaður þeirra óslitið til 1980.
Á þessum mótunar- og bernsku-
árum samtakanna var hann sú
kjölfcsta sem þurfti til að sýna
fram á hvaða möguleikar væru
fólgnir í viðtæku samstarfi sveit-
arfélaga í hverjum landshluta..
Eftir að hann hvarf úr stjórn-
inni, hefur hann setið alla aðal-
fundi samtakann og fylgst vel
með starfseminni og starfað í
fastanefndum á hverju ári.
Hann var einn af stofnendum
Jarðefnaiðnaðar hf. 1974 og
kom þar strax til stjórnarstarfa.
Þar hefur þrek hans og þraut-
seigja kannske komið einna
skýrast fram. Þegarsiglt var um
öldudali vonbrigðanna og mót-
blásturinn var hvað mestur. Þá
lét hann til sín taka þegar Eld-
berg h.f. dótturfyrirtæki Jarðefn-
aiðnaðar var stofnað 1984. Þar
brá hann upp því „vopni“ sem
menn skildu, nú skyldi duga eða
drepast. Þarna náði að rætast
draumur Ölvis að gera samning
og samstarf um nýtingu gosefna
úr hinu ógnfræga eldfjalli
Heklu.
Ölvir hefur setið í Fræðslu-
ráði Suðurlands frá stofnun þess
1975. í störfum fræðsluráðs hef-
ur kunnugleiki hans og hyggindi
komið að miklum og góðum
notum, enda hafa honum verið
falin mörg önnur nefndarstörf á
sviði menntamál á undanförn-
um árum.
Þegar Iðnþróunarsjóður
Suðurlands var stofnaður af
sunnlenskum svcitarfélögum
1980 var Ölvir kosinn í sjóðs-
stjórnina. Þetta var líka ein af
óskahugmyndum hans og hinna
framsýnu félaga hans í
Jarðefnaiðnaði.Ölvir benti strax
á hversu mikinn slagkraft Sunn-
lendingar fengju í atvinnumál-
in, þegar sjóðurinn færi að
eflast. Allt bendir líka til þess
að þar hafi ekki verið um get-
sakir að ræða. Hið síðasta sem
hann er að festa hönd á ásamt
öðrum, er að undirbúa sam-
vinnu allra veiðifélaga á Suður-
landi.
Hér er ekki um tæmandi upp-
lýsingar að ræða, miklu fremur
sýnishorn af verkefnum sem
ötull stórbóndi getur annast.
Samt er ekki skyggnst um í
þessari grein hvaða stórvirki
hún Kristbjörg konan hans og
börnin hans hafa unnið þar á
stórbýlinu í Þjórsártúni.
Um Ölvi og hans fjölskyldu
má segja eins og ég heyrði um
einn vin minn í Borgarfirði:
Hann var góður fyrir sig, en
hann og hans heimili var ekki
síður gott fyrir aðra.
Megi heill og hamingja fylgja
þessu ágæta heimili.
Hjörtur Þórarinsson.
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska hirtingar á afmælis- og eða
minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þ;er
þurfa að berast a.m.k. tveim diigurn fyrir
birtingardag. Þær þurfa að vera vélritaðar.