NT - 02.02.1985, Page 13

NT - 02.02.1985, Page 13
Laugardagur 2. febrúar 1985 13 Nýr taktur — gömul sveif ■ NOKMAL JASS 1985 heilir prógranimid sem þeir flytja í Hollandi. SJUGÐU MIG NÍNA ■ OXSMA hcfur fjölfaldaö kassettu með tónlist úr myndinni. smáplánetan sem við gerðum 82-83. Það er 30 mín. fram- tíðarmynd um mann sem flýr jörðina og fer til plánetunnar Oxsmá til að finna betra líf, en það fer nú eins og það fer.“ - Hvernig hafið þið staðið undir þessu peningalega? „Myndin er tekin á 8 mm filmu og við höfum ýmist not- að okkar eigin tæki eða fengið lánuð tæki. Peninga til að standa undir þessu höfum við lagt frarr sjálf, við reyndum að fá peninga úr Kvikmynda- sjóði einu sinni en það gekk ekki. Það er dýrt að gera svona mynd, allavegana fyrir okkur sem erum fátækir ungir myndlistarmenn, en tökur fóru fram bæði hér í borginni og úti á landi. Ég held reyndar að við höfum farið á flesta staði hér í borginni til að filma!“ nd, „Sjúgðu mig Nína“ ‘eskinu! kteinka• ikstjóra áfram sínu úrkynjaða lífi“, svo vitnað sé í orð leik- stjórans um efni myndarinn- ar. Leikstjóri „Sjúgðu mig Nína“ er Oskar Jónasson, myndlist- armaður og saxófónleikari Oxsmá, og gaf hann sér tíma til að svara nokkrum spurning- um tíðindamanns Nýs taktar um myndina og ferðalagið sem er um það bil að hefjast. 10 ár tilbakaítíma „Myndin á að gerast árið 1973 og byggist á minni okkar sem að henni stöndum, hvernig þessi tímar voru. Við vorum 10 ára þá og þetta er lýsing okkar á því hvernig við höldum að þessi árgangur, sem er þetta eldri en við, hafi hagað sér.“ - Hvenær hófst undirbún- ingurinn að myndinni? „Handritið var samið um þetta leyti fyrir 2 árum af mér og Hrafnkeli Sigurðssyni, að mestu, en auðvitað hafa blandast inní þetta hugmyndir frá öllum sem eru með í þessu. Við byrjuðum að kvikmynda í lok maí '83 og síðasta filman rann í gegn á miðju síðasta sumri. Síöan þá hefur hún verið í klippingu, kópíeringu og hljóðsetningu og varð tilbú- in í vikunni." - Hljómlist er áberandi í myndinni. Er þetta ein af þess- um mörgu söng- og dansa- myndum? „Nei, tónlistin er ekki í aðal- hlutverki í myndinni, hún er kvikmyndatónlist, sem svo er kallað, en auðvitað á hún stóran þátt í myndinni. Búið er að fjölfaida hana á spólur og verða þær seldar þar sem myndin verður sýnd. Þetta eru 16 laga spólur, auk þess sem það fljóta með nokkrar setn- ingar úr myndinni sem tengja söguþráðinn saman." -Hvað eruð þiö mörg sem hafið staðið í gerð myndarinn- ar? „Það eru milli 20-30 manns sem leika í myndinni en aöal- persónuna, Hjört, ieikur Kor- mákur Geirharðsson. Nína er leikin af Höllu Árnadóttur, en það var nokkuð erfitt að fá leikara í það hlutverk!" Ekki klámmynd -„Sjúgðu mig Nína“ er nafn sem fær mann ósjálfrátt til að álykta að þetta sé klámmynd? „Það er nokkuð um ofbeldi í myndinni og bláleitar senur en það er ekki gert til þess að trekkja að fólk. Það má etv. halda það út frá nafninu á myndinni en það var fyrst og fremst valið því það kallar fram það andrúmsloft sem ríkir í myndinni" - Hvenær fær almenningur að berja myndina augum? „Það er gert ráð fyrir þvi að hún komist á almennan mark- að í mars og með henni verði sýnd fyrri myndin okkar, „Ox- Spila í kirkjum! - Nú eruð þið fimmmenning- arnir að leggja land undir fót og fara til Hollands. Er það nýtilkomið? „Nei, það er búið að vera lengi í deiglunni. Það var byrjað að plana þetta fyrir ári síðan og sl. haust fór umboðsmaðurinn okkar fyrr- verandi Brynhildur Þorgeirs- dóttir út til að undirbúa jarð- veginn og síðan höfum við haft tengilið úti, Elínborgu Magnúsdóttur, sem hefur skipulagt ferðina og á hún miklar þakkir skildar fyrir sitt framlag." - Hvar komið þið til með að spila? „Við munum spila á ól íkleg- ustu stöðum í þessum þrem borgum. Við komum fram í þrem myndlistarakademíum, í galleríum, á kaffihúsum, á tónleikum og í kirkjum svo eitthvað sé nefnt. Það er áætl- unin að vera um 3 vikur í túrnum og auðvitað munum við einnig sýna nýju myndina þarna ytra.“ • - í lokin Oskar. Er einhver hagnaðar- eða heimsfrægðar- von að baki þessari ferð? „Flest af því sem við höfum gert hefur ekki verið planað til að skila hagnaði, þó stundum hafi ekki verið komist hjá því, og svo er einnig um þessa ferð. Við borgum þetta að mestu sjálfir en það verður séð að einhverju leyti fyrir okkur úti. Og við reiknum varla með því að öðlast heims- frægð í þessari ferð, nema þá etv. á Islandi!" Og þar með er spjalli Nt við Óskar Jónasson kvikmynda- leikstjóra, myndlistarmann og saxafónleikara lokið og ósk- um við þeim félögum í Oxsmá góðrar ferðar. Oxsmá skipa: Hrafnkell Sigurðsson söngur, Axel Jó- hannesson gítar, Hörður Bragason bassi/hljómborð, Kormákur Geirharðsson trommur og Óskar Jónasson saxafónn. Með þeim til Hol- lands fer Jón Steinþórsson sem sér um hljóðblöndun. Ársel - vinsældalisti ■ Þá hefur vinsældalistinn úr félagsmiðstöðinni Árseli í Árbæ göngu sína á síðunni og ekki eftir neinu að bíða. Tölurnar innan sviga tákna í hvaða sæti lagið var í vikunni á undan, hafi einhver ekki áttað sig á því. 1 (1) Save A Prayer..................................Duran Duran < 2 (3) Sexcrime.....................................Eurythmics 3 (13) Power Of Love.......................Frankie Goes To Hollywood 4 (11) Chauffer......................................Duran Duran 5 (4) Búkalú.........................................Stuðmenn 6 (2) One Night In Bankok............................Murrey Head 7 (14) Like A Virgin...................................Madonna 8 (6) LoverBoy.......................................Billy Ocean 4 9 (8) Húsið og ég......................................Gralik 10 (5) Shoot Your Shot..................................Divine Villtu drengirnir í Duran Duran biðjandi á svip, en þeir tróna í efsta sæti vinsældalistans í Arseli. LESENDA „POPP“ Kæri Poppfréttaritari. ■ Erðanúmúsik vill fá að koma eftirfarandi á framfæri á poppsíðunni „NýrTaktur- Gömul Sveifla“: 1) Svart Hvítur Draumur er engan veginn úr Keflavík! Vegna þeirra leiðu mistaka og hugsunarleysis að segja hljómsveitina Svart Hvítan Draum úr Keflavík á síðustu poppsiðu verðum við hér að gripa í taumanna svo að hljómsveitin fái ekki stimpilinn „dreifbýlisband" á sig. Stóri sannleikurinn i málinu er nefni- lega sá að hreiður hljómsveit- arinnar er staðsett i hjarta alheimssins, djúpt í iðrum svefnbæjarins Kópavogs. Já, það skiptir miklu máli í hvora Keflavíkina maður nær. Þeir sem skipa þessa tónelsku stóriðju eru sem endranær þeir Gunnar Lárus Hjálmarsson, Guðjón S. Birgisson og Hauk- ur Valdimarsson. Þó að útlitið í rokk og ról bransanum sé allt annað en bjart þessa stundina lítur hljómsveitin björtum aug- um á framtíðina og stefnir að því að halda upp á þriggja ára afmæli sitt bráðlega með bæði pomp og pragt (og þó aðallega pomp.) 2) Tíu „óháðar" hljomsveitir á tónsnældu - „Rúllustig- inn“. Rokk sjóræningjarnir í ERÐ- ANÚMUSIK vilja vekja athygli á útkomu tónsnældunnar „Rúllustiginn" sem fyrst kom út í september s.l. en hefur verið uppseld þar til nú fyrir nokkrum dögum. Þessi níu- tíumínútna tónsnælda inni- heldur tuttugu og sjö lög með tíu íslenskum hljómsveitum sem allar eiga það sameigin- legt að vera underground eða með hálfan hausinn upp úr poppmarkaðarsjónum. Hljóm- sveitirnaQ eru: VONBRIGÐI, FAN hOUTENS KOKO, HANA, LOJPIPPOS OG SPOJSIPPUS, ÁST, SVART HVlTUR DRAUMUR, JÓI Á HAKANUM, SLAGVERKUR, HÁVEGUR 1 og SPILLIKOTT- UR. Spólan er fáanleg í GRAMMINU við Laugarveg á ótrúlega lágu verði. Glæsileg- ur kynningarbæklingur fylgir í kaupunum. Spólan hefurfeng- ið mjög jákvæðar viðtökur i ýmsum erlendum poppritum og fanzinum og eru gagnrýn- endur hrifnastir af því að vita hvað skapandi og ferskt músíklífið hér er..? (til um- sjónarmanns: Hvernig væri nú að fara að skrifa dóma um snældunna. Hún hefur að ég best veit borist þér fyrir löngu síðan... ef hún er týnd eða eitthvað hafðu þá samband og spólan verður þín.) Fyrirfram þakkirf.h. Erðanú- músik, Gunnar Hjálmars- son. Svar um hæl Umsjónarmaður Nýs taktar þakkar ágætt bréf og biðst auðmjúklega afsökunar á þvi að hafa ruglast á hrepps- félögunum fyrir sunnan borg- armörkin. Hvað varðar snæld- una þá hef ég aldrei barið hana augum og hún eflaust týnd og tröllum gefin. En ég bíð spenntur eftir sendingu... Eftir að Gunnar hefur riðið á vaðið með bréfaskriftum til s íð- unnar er ekki úr vegi að hvetja I aðra lesendur til að fylgja for- 1 dæmi hans. Það er til fullt af hljómsveitum sem eru að gera nýja hluti í bílskúrum og skúmaskotum hér og þar og ástæðulaust annað en láta í sér heyra. Vel kemur líka til greina að segja frá öðrum hlutum, gagnrýna allt og ekkert og svo frv. Semsagt boltinn er gefinn fyrir.. ■ Svart Hvítur Draumur á Borginni á dögunum. Sveitina skipa Gunnar Lárus Hjálmarsson, Guðjón S. Birgisson og Haukur Valdimarsson. NT-mynd Ari.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.