NT - 02.02.1985, Side 22
Laugardagur 2. febrúar 1985 22
Tournoi de France:
Hvers vegna tap gegn Frökkum?
maður. Leikurinn þróaðist svo
á þann veg að Kristján Arason
var sama sem tekinn úr umferð
hægra megin, þannig að mjög
erfitt var að koma boltanum
inn í hornið til Þorgils Óttars
og það veikti enn hægri vænginn.
Sóknir íslenska liðsins komu
því flestar frá vinstri.
Það er hugsanlegt að það
hafi verið mistök að hvíla ekki
Kristján um tíma, til að losa
um hægri vænginn og gefa
Valdimar Grímssyni ekki tæki-
færi, en hann er einmitt hægri
horna maður og sá eini sem er
með landsliðinu nú þar sem
Bjarni Guðmundsson er fjarri
góðu gamni. Það hefði allavega
mátt láta hann leika með í
sókninni þó einhver annar
hefði skipt við hann í vörni
Jón H. Karlsson, einn af
fararstjórum íslenska liðsins,
sagði í samtali við blaðamann
NT í gær að Bogdan landsliðs-
þjálfari ynni eftir ákaflega
sterkum grundvallarreglum.
Ein af þeim væri að gefa
nýliða ekki tækifæri til að leika
leik sem væri svo jafn að aldrei
skildi meira en eitt mark til eða
frá. Þess vegan hefði Valdimar
ekki komið inná.
„íslenskur þjálfari hefði
mjög líklega tekið þessa áhættu
en þetta brýtur algerlega í bága
við grundvallarstefnu
Bogdans."
í fimmta lagi má kannski
nefna þreytu og jafnvel ofþjálf-
un á íslensku handknattleiks-
mönnunum. Allt frá því í haust
hefur liðið leikið mjög stíft og
æft af miklu kappi, skemmst er
að minnast keppnisferðarinnar
til Danmerkur og Noregs í
desember og leikjanna gegn
Svíum strax eftir heimkomuna.
Síðan tók við mjög ströng
keppni í íslandsmótinu og leik-
ir í Evrópukeppnum hjá
mörgum. Leikmenn landsliðs-
ins hafa því fengið lítil frí frá
keppni og æfingum og sá stutti
tími sem aflögu hefur verið
hefur farið í aukna vinnu í
námi eða starfi sem að sjálf-
sögðu hefur verið witrækt
meðan á keppnisferðalögum
stendur.
Blaðamaður NT ræddi þetta
mál við nokkra leikmenn ís-
lenska liðsins í fyrrakvöld, eftir
leikinn gegn Frökkum, og tóku
þeir mjög undir það að á köfl-
um væri þetta mjög erfitt og
stundum lægi við að það væri
ekki lengur eins gaman að
þessu.
Hinsvegar voru íslensku
landsliðsmennirnir langt frá því
að gefast upp, það yrði bara að
bíða eftir næstu hvíld, hún
kæmi þó það gæti orðið langt í
hana.
■ Þorgils Óttar Mathiesen var látinn leika í hægra horninu í
staðin fyrir á línunni. Bogdan vildi eltki nota nýliðann Valdimar
Grímsson í stöðuna í svo tvísýnum leik.
taka má saman fjórar megin ástæður fyrir tapinu
■ Sú spurning er ansi áleitin
fyrir þá sem fylgjast með stór-
mótinu „Tournoi de France“,
hvers vegna íslenska landsliðið
í handknattleik tapaði gegn
Frökkum, einungis 24 klukku-
stundum eftir að hafa sigrað
Ungverja mjög sannfærandi.
Ungverjar eru taldir með
sterkustu þjóðum heims í hand-
knattleik en Frakkar hinsvegar
ekki. Þeir eru B-þjóð sem ís-
lendingar hafa yfirleitt unnið,
en þó ber þess að geta að
íslenska liðið hefur aðeins einu
sinni borið sigurorð af Frökkum,
í Frakklandi. Það var í mars í
fyrra.
Það má taka saman fjórar
megin ástæður fyrir tapinu gegn
Frökkum. í fyrsta lagi voru
svissnesku dómararnir íslend-
ingum afar óhagstæðir og þar
með fengu Frakkar að leika
mjög grófa vörn, gátu leikið
hana framarlega, og um leið
tekið nánast allar skyttur ís-
lenska liðsins úr umferð. Má
benda á að Kristján Arason
skoraði aðeins 3 mörk, öll úr
vítum og Alfreð skoraði 1.
Einungis Páll Ólafsson náði að
skora úr langskotum en hann
telst ekki meðal stórskytta
liðsins, heldur sem leikstjórn-
andi.
í öðru lagi má nefna góðan
leik franska liðsins, sem hefur
sennilega sjaldan leikið betur á
ferli sínum og um leið lék
íslenska liðið fremur illa.
í þriðja lagi var hálfgerður
öldudalur hjá íslenska liðinu,
það hafði leikið mjög góðan
leik gegn sterkum andstæðingi
kvöldið áður, en síðan kom
bakslag gegn slakara liði.
í fjórða lagi eru hugsanleg
skipulagsmistök Bogdans
landsliðsþjálfara. Bogdan lét
Þorgils Óttar Mathiesen, besta
línumann íslenska liðsins, leika
í hægra horninu. Þaðan átti
Óttar að keyra talsvert inn á
línuna en leika þó sem horna-
■ Valdimar Grímsson.
REYNSLA-GÆÐI
LISTER um allt land!
LISTER
FJÁR-OG KÚAKLIPPUR
KÚAHAUS EDA FJÁRHAUS
Á SAMA MÓTORINN
LISTER
BARKAKLIPPUR
FJÁRKLIPPUR
EINS/ÞRIGGJA HRAÐA
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900
BREIDIR KAMBAR
Handknattleikssambandið:
Afreksmannasjóður
- til að styrkja landsliðsfólk
■ Stjórn Handknattleikssam-
bandsins hefur stofnað sérstakan Af-
reksmannasjóð til að styrkja þátt-
töku landsliðsfólks í æfingum, keppn-
isferðum og landsleikjum.
Leitað verður eftir stuðningi ein-
staklinga og fyrirtækja með fjárfram-
lög í þennan Afreksmannasjóð. Er
þetta ein af fjáröflunarleiðum sam-
bandsins til að auðvelda landsliðs-
mönnum og þjálfurum þess að undir-
búa landsliðið sem best fyrir þátttöku
á A-heimsmeistarakeppninni í Sviss
1986.
íslenskir landsliðsmenn í hand-
knattleik eru nú meðal þeirra bestu
í heiminum og árangur landsliðsins
að undanförnu undir stjórn hins
ágæta landsliðsþjálfara Bodgans hef-
ur vakið mikla athygli erlendis. Núna
fara vinsældir handknattleiksíþrótt-
arinnar sífellt vaxandi um allan heim
og er handknattleikur núna iðkaður
í 128 löndum.
íslenska landsliðið er núna talið
með þeim allra bestu í heiminum svo
og bestu íslensku félagsliðin. Þó svo
við íslendingar séu fámenn þjóð, þá
erum við stórveldi á sviði hand-
knattleiksíþróttarinnar, sem af
mörgum er talin meðal erfiðustu og
tæknilegustu íþróttagreina sem iðk-
aðar eru.
Þeir sem vilja taka þátt í undirbún-
ingi íslenska landsliðsins fyrir A-
heimsmeistarakeppnina í Sviss 1986
með fjárframlagi í Afreksmanna-
sjóðinn eru vinsamlegast beðnir um
að koma framlagi sínu til skila á
skrifstofu HSÍ í Laugardal. Þá munu
skrifstofur dagblaðanna í Reykjavík
taka á móti fjárframlögum í Afreks-
mannasjóðinn frá þeim sem vilja
heita á liðið núna, nái það góðum
árangri í stórkeppninni í Frakklandi.
Áhafnir skipa og starfsmenn fyrir-
tækja geta einnig lagt framlag inn á
nýstofnaðan póstgíróreikning Af-
reksmannasjóðs HSÍ nr. 677760.
Knattspyrnupunktar
Frá Heimi Bergssyni í Englandi:
■ ...Leeds United hefur
áhuga á að kaupa Marvin Day
markvörð frá Aston Villa. Day
hefur ekki komist í liðið síðan
Nigel Spink komst í form og
fór fram á sölu. Leeds bauð 35
þús. pund í hann og er næstum
víst að hann fari til liðsins.
Leeds ætlar sér stóra hluti og
ekkert nema 1. deildar sæti á
næsta ári. Hefur liðið í því
sambandi reynt að ná í Kevin
Brinkell frá Grimsby og bauð
fyrst í hann 150 þúsund pund
en hefur nú hækkað það boð
með því að bjóða leikmann í
milligjöf...
...Áston Villa vill fá Neil
Webb frá Portsmouth en enn
skilur mikið á milli þess sem
Villa vill borga og þess sem
Portsmouth vill fá...
...Chelsea vann hlutkesti
eftir leikinn við Sheffield We-
dnesday og mun næsti leikur
liðana í mjólkurbikarnum
verða á Stamford Bridge...