NT - 02.02.1985, Síða 24

NT - 02.02.1985, Síða 24
— Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leiðir til fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300 Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495 ■ Alfreð Gíslason lék mjög vel í seinni hálfleik á móti ísraelsmönnum í gærkvöldi eins og aðrir leikmenn liðsins. Alfreð skoraði 5 mörk í leiknum, Þorbergur skoraði einnig 5 en Kristján Arason gerði 6 mörk og öll í fyrri hálfleik. Tournoi de France: Sagt eftir leikinn: Guðjón Guðmundsson: Frá Samúcl Emi í Frakklandi: ■ Guðjón Guðmundsson liðsstjóri íslenska liðsins sagði eftir leikinn: „Við hvíldum lykilmenn í þess- um leik sem var nauðsyn- legt vegna þess að við höf- um fáa leikmenn. Við höfðum 10 marka forskot um tíma og þá var ekki spurning um úrslitin lengur og sjálfsagt að leyfa öllum að spreyta sig. Ég skil alls ekki hvernig íslenska landsliðið hefur farið að því að tapa fyrir þessum ísraelsmönnum.að minnsta kosti tvisvar i heimsmejstarakeppninni..." Valdimar Grímsson: Valdimar Grímsson, sem lék sinn fyrsta lands- leik sagði: „Það var virkilega gam- an að taka þátt í þessu, þetta er fyrsti leikurinn sem ég kem inná í. Ég hef ekki kynnst því áður að leika með svona sterkum leik- mönnum í öllum stöðum. Ég er ánægður með minn hiut, að vísu óánægður með eitt færi sem ég mis- notaði, en í heild held ég að ég hafi komist ágætlega frá leiknum. Ég bjóst heldur við því að fá að leika í þessum leik, það var búið að tala um það fyrir leikinn, en samt er maður aldrei ör- uggur um að fá að leika fyrr en maður kemur inná." Búningarnir komu í tæka tíð, en... Til Bourg kom ígærkvöldi íslensk stúlka, Ellý Sigfús- dóttir, sem vinnur á vegum DHL á íslandi, með hvíta búninga frá Henson sem hann sendi express vegna búningahvarfsins í London um daginn. Hún náði í tæka tíð fyrir leikinn en því miður var ekki hægt að nota þá því íslenska lands- liðið er samningsbundið Hummel fyrirtækinu og má því ekki leika í öðrum búningum. Léttur sigur á Israel Allir íslensku leikmennirnir fengu að spreyta sig - Valdimar Grímsson lék sinn fyrsta leik og stóð sig vel Atli til Lyon? Frá Samúel Krni í Frakklandi: ■ íslendingar sigruðu ísra- elsmenn í handknattleik í gær- kvöldi í Frakklandi með 24 mörkum gegn 17, eftir að stað- an hafði verið 11 mörk gegn 5 íslandi í hag í hálfleik. íslenska liðið lék einni hæð fyrir ofan það ísraelska og stakk það algerlega af í síðari hluta fyrri hálfleiks. Leikurinn virtist vera í járnum framan af, og eftir tíu mínútna leik var staðan jöfn 4-4. f>á áttu ís- lensku leikmennirnir góðan sprett og breyttu stöðunni í 10-4, og munaði þar mest um stórleik Kristjáns Arasonar og einnig lék Jakob vel, reyndar allt liðið í heild. Ellefta mark íslenska liðsins skoraði Alfreð Gíslason úr víti, og var það hans fyrsta mark í leiknum. í síðari hálfleik var þeim Kristjáni, Einari markverði og Þorgils skipt útaf, en engu að síður lék íslenska liðið mjög vel, og breytti stöðunni í 16-6, og hafði síðan yfir 18-7. Þá kom mjög slakur kafli hjá ís- lensku strákunum og fjögur ísraelsk mörk litu dagsins Ijós, og staðan breyttist í I8-Il. Eftir þetta var jafnræði með liðunum, og þróaðist leikurinn þannig að þessi munur hélst nær alveg til leiksloka, og má nefna tölur eins og 20-14,22-15 og lokatölur leiksins urðu eins og áður segir 24 mörk gegn 17 íslendingum í hag. íslenska liðið var miklu betra heldur en það ísraelska í þessum leik, og ef undan eru skildar fyrstu fimmtán mínútur leiksins var aldrei spurning hvernig leikurinn færi. Kristján Arason, Þorgils Óttar Mathiesen, Einar Þor- varðarson og Jakob Sigurðsson léku allir mjög vel í fyrri hálf- ieik og í síðari hálfleik var leikurinn borinn uppi af þeim Þorbergi Aðalsteinssyni, Al- freð Gíslasyni, Valdimar Grímssyni, Páli Ólafssyni og Geir Sveinssyni, sem lék allan leikinn. Valdimar Grímsson lék sinn fyrsta landsleik, og komst vel frá honum, skoraði tvö mörk. Ef á heildina er litið, er óhætt að segja að fimmtán marka sigur íslands, hefði ekki verið ósanngjarn, ef íslenska liðið hefði leikið jafn vel allan leikinn og það gerði um miðbik hans. Bogdan landsliðsþjálfari hefur sjálfsagt viljað hvíla sína menn, þar sem dagskráin er ströng, og ekki mikið um hlé. ísraelska liðið var frekar slakt í þessum leik, og var skipað frekar smávöxnum leikmönnum, sem voru tækni- lega séð góðir, en þá vantaði kraft til þess að ráða við ís- lenska liðið, og áttu oftast ekki erindi sem erfiði, Mörk íslenska liðsins gerðu: Kristján Arason 6 (2v), öll í fyrri hálfleik, Þorbergur Aðal- steinsson 5, Alfreð Gíslason 5 (lv), Sigurður Gunnarsson 3, Valdimar Grímsson 2. Þessir gerðu eitt mark: Jakob Sig- urðsson, Þorgils Óttar Mathi- esen og Geir Sveinsson. Einar Þorvarðarson varði sex skot í fyrri hálfleik og fékk á sig 5 mörk en Jens Einarsson varði fimm skot í síðari hálf- leik, og fékk á sig tólf mörk. Frá Samúel Erni í Frakkiandi: ■ Sigurður Gunnarsson lcikur ekki fleiri leiki með íslenska landsliðinu í Frakklandi að þessu sinni. Hann fór snemma í morgun til Spánar til móts við lið sitt Corna Tres de Mayo sem á leik gegn Valencia á sunnu- dagsmorgun. íslenska liðsstjórnin reyndi allt sem hún gat til að fó Atla Hilmarsson fró Þýskalandi til liðs við landsliðið, enda eni úti- spilarar nú aðeins 9 þegar Sig- urður er farinn. Það kemur ekki í Ijós fyrr en í dag hvort Atli getur komið og þó í leikinn gegn Tékkum ó sunnu- daginn. sntnvitiHH StíLUBOÐ ...vöruverÖ í lágmarki

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.