NT - 10.02.1985, Blaðsíða 3
Sunnudagur 10. febrúar 1985 3
■ Forsíðan að bessu
sinni er eftir Róbert Ágúst-
son Ijósmyndara NT. Viö
fáum einnig að kynnast
fleiri verkum Róberts í
þættinum Ljósbrot en þar
gefur að líta nokkrar
mynda hans sem hann
hefur tekið á löngum ferli
sínum sem blaðaljós-
myndari.
■ Er hægt að lesa pers-
ónuleika manna úr
stöðu himintunglanna?
Við fáum tækifæri á að
fylgjast með umræðum
tveggja fræðimanna um
þessi ævafornu fræði,
sem sumir telja færði
fræðanna en aðrir bull.
■ Tíu ár eru nú liðin frá
kvennadegi sem frægur
varð langt út fyrir land-
steinana. Hinum svokall-
aða kvennaáratug er einn-
ig að Ijúka. Hefur staða
kvenna í íslensku samfé-
lagi batnað á þessum tíma
eða stöndum við enn í
sömu sporunum og áður?
■ Reagan forseti og
rauði síminn. Þegar sími
þessi verður notaður gæti
það einfaldlega þýtt enda-
lok mannsins á jörðipni.
En hvenær kemur kallið?
Hvenær verður hrópað:
„Það er síminn."
HFMiARBLAO
Umsjónarmenn Helgarblaös
Atli Magnússon
Birgir Guömundsson
og Jón Ársæll Þórðarson
LIFAÍVDI
BLAÐ!
STÓRKOSTLEGIR
möguleikar í hagkvæmum skemmum.
Norsku — RUBB dúkskemmurnar geta leyst
vandann á ódýran hátt.
iþróttaskemma, 20x42 metrar,
í Belgíu.
PVC Trevira—dúkur með 15—20 ára
endingartíma.
Varahlutaskemma, 20 x 138 metrar,
hjá Leyland í Englandi.
Tvöföld, einangruð dúkskemma.
Skemmurnar má einangra með glerull.
RUBB dúkskemmurnar eru í notkun um víða veröld. Stóraukin sala þeirra
hefur opnað augu manna fyrir miklu notagildi og ódýrri og hagkvæmri
lausn.
RUBB dúkskemmurnar hafa um árabil verið í notkun í Norður-Noregi,
Evrópu, Ástralíu, Kanada, Bandaríkjunum og Falklandseyjum.
5 ára góð reynsla hjá laxeldisstöð hér á landi.
Leitið upplýsinga um þessar hentugu skemmur.
EINAR FARESTVEIT &. CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI10A - SÍMI21565 EÐA 27370.