NT - 03.03.1985, Blaðsíða 2
Sunnudagur 3. mars 1985
Fyrsti konunglegi, íslenski hirðljósmyndarinn
Sýnlng á myndum
Péturs Brynjólfssonar,
ljósmyndara,! Bogasal
■ Þann 23ja. fcbrúar sl. hófst
í Bogasal Þjóðminjasafnsins
sýning á verkum Péturs Brynj-
ólfssonar ljósmyndara og gefa
myndirnar lýsingu á starfi hans
á árunum 1882-1930, en í safni
því sem liann lét eftir sig eru
27 þúsund plötur. Safnið var
gefið Ijósmyndadeild Þjóð-
minjasafns 1934.
Mikil gróska var í Ijós-
myndagerð á íslandi á árunum
1895-1915 og var Pétur talinn í
fremstu röð Ijósmyndara sinn-
ar tíðar. Hann var prestssonur
er fluttist til Reykjavíkur fjór-
tán ára og gerðist hann fyrst
verslunarþjónn. En 1901 hóf
hann ljósmyndaranám hjá Sig-
fúsi Eymundssyni og næstu
árin í Þýskalandi, Noregi og
Kaupmannahöfn. Heim kom-
inn opnaði hann ljósmynda-
stofu í Reykjavík og byggði
hann sérstakt hús yfir starfsemi
sína 1905. Eftir heimsókn
Friðriks konungs 8. varð hann
konunglegur Ijósmyndari,
fyrstur íslendinga.
1908 opnaði hann útibú frá
M Horft niður Bankastræti. Ljósm. Pétur Brynjólfsson.
stofunni á Akureyri og hann
átti þátt í stofnun fyrsta kvik-
myndahússins í Reykjavík.
Pétur var ekki heppinn í
einkalífi sínu. Hann hafði
kvænst danskri konu og eign-
aðist með henni fimm börn.
Fluttist hann „alfarinn" til Ár-
ósa í Danmörku 1915.
Fátt er vitað um þessi Dan-
merkurár. Hann skildi við
konuna og er sagður hafa rekió
ljósmyndastofu við Nörregade
í Kaupmannahöfn. Árið 1918
kom hann að nýju til íslands
og rak ýmsar stofur til dauða-
dags, 1930. Hann kvikmyndaði
konungsheimsóknina 1921.
Sýningin stendur fram í
apríl. Ástæða er til að hvetja
menn til að bregða sér í Boga-
salinn og skoða þessa merki-
legu ljósmyndasýningu. Eng-
inn verður svikinn af því.
■ Pétur Brynjólfsson á Ijósmyndastofu sinni í Bankastræti 14. Ljósm. Pétur Brynjólfsson.
H Geir Zoéga kaupmaður með börn í skemmtiferð.
Ljósm. Pétur Brynjólfsson.
H Á heimili ekkju Jóns Péturssonar háyfirdómara. Talið frá v.:
Sigþrúður Fríðriksdóttir, Þóra Jónsdóttir Magnússon og Þóra
Guðmundsdóttir. Ljósm. Pétur Brvnjólfsson.
HEUÍAR-
BLAD
Umsjónarmenn Helgar-
blaðs:
Atli Magnússon,
Birgir Guðmundsson
og
Jón Arsæll Þórðarson
■ Forsíðumynd: Jóhannes
Birkiland höfundur bókarinnar
„Harmsaga ævi minnar".
■ Þá er ný stórmynd komin
fyrir augu áhorfenda frá hendi
Francis Coppola. Hún heitir
„Cotton Club“ og kostaði bæði
stórfé, - og ógurlegar deilur.
■ Ungur íslenskur piltur, Jón
Stefánsson, dvaldist um eins
árs skeið meðal indíána í Kan-
ada. Blm. Helgarblaðsins
ræddi við hann um kynni hans
af þessu fólki sem réði ríkjum
áður en hvíti maðurinn kom.
■ íslenskur Norðmaður með
fslandsdellu. Gestur okkar í
Ljósbroti er Mats Wibe Lund
sem fyrir löngu er orðinn lands-
kunnur fyrir Ijósmyndir sínar.
■ Galdrar og nornir eru fyrir-
bæri sem flestir tengja löngu
liðnum tímum og halda að
fyrirfinnist einungis á spjöldum
sögunnar. Slíkt er þó hinn
mesti misskilningur. Eins og
kemur fram í spjalli við Árna
Leósson dulspeking eru starf-
andi hér á landi nornir og fleiri
sérkennilegir trúarsöfnuðir.
■ HrakfallaskáldiðJóhannes
Birkiland var meðal sérstæð-
ustu gáfumanna þessarar
aldar, og sumir vilja telja
„Harmsögu“ hans meðal
fremstu ævisagna á íslensku.
Þórarinn Eldjárn segir okkur
frá Jóhannesi.