NT


NT - 03.03.1985, Side 5

NT - 03.03.1985, Side 5
 upp yfir 50 milljónir dollara. „Cotton Club“ er því í röð allra dýrustu mynda sem gerðar hafa verið. Framleiðandi myndarinnar var Ro- bert Evans, sem áður var hjá Para- mount Pictures og sló í gegn með „Rosmary’s baby“ og „Love Story“. Hann hælir sér líka af því að hafa ráðið óþekktan leikstjóra til starfa árið 1972, þegar „Guðfaðirinn“ var gerður, - Francis Coppola... Sjö árum síðar keypti Evans réttinn til að gera kvikmynd eftir sögunni „Cotton CLub“, Hann segir: „Þarna hafði ég bófa, stelpur og músík. Hvað gat farið úrskeiðis?“ En næstum allt fór úrskeiðis. í tvö ár leitaði Evans að mönnum til að fjármagna fyrirtækið, en Paramount hafði nú snúið við honum bakinu. Hann stóð í samningum við evrópsk dreifingarfyrirtæki og olíumilljónara í Texas. Þá átti hann viðræður við stjórnvöld í Puerto Rico og ríkis- bubbann Saudi Adnan Kashoggi. En ekki varð af samningum. Fleiri urðu Evans til armæðu. Texasbúi nokkur fékk hjartaáfall, nokkru eftir að hann hafði heitið Evans öllum peningum sínum og annar fannst skotinn í dalverpi norðan Los Angeles. Það kostaði Evans fjögurra klukkustunda yfirheyrslur hjá lögreglunni og eftir það fór hann í felur hjá einni vinkonu sinni af ótta við að morðingjarnir væru á höttunum eftir honum. Loks komu fram á sjónvarsviðið tveir líbanskir bræður, sem ráku spilavíti í Las Vegas og þeir vildu fjárfesta í myndinni. Leikstjórn tók að sér vinur Evans, Francis Coppola. Hann gerði líka tökuleiðbeiningar. En það sem hann setti saman með aðstoð rithöfundarins William Kennedy lenti flest í bréfakörfunni Oft bar Evans upp mótmæli og þeir bræður sem fjármögnuðu fyrirtækið mótmæltu aftur og aftur. Stundum líkaði Coppola ekki eigið verk og aðalleikarinn Richard Gere hótaði oft að hætta, þar sem honum fannst „rulla“ sín ekki nógu fyrirferðarmikil. Stöðugt var verið að betrumbæta handritið meðan á tökunni stóð. „Petta var óðs manns æði,“ sagði ein vélritunarstúlknanna. „Allar breyt- ingar voru skrifaðar á pappír í sér- stökum litum. En litir regnbogans eru ekki óendanlegir. Að lokum spurðu allir: „Er það í gamla eða nýja bleika litnum.““ Kennedy afhenti eitt hand- ritið á eftir öðru. Hann skrifaði eitt sinn nokkrar „senur" í bílnum á leið frá flugvellinum. Kostnaðurinn hrannaðist upp. „Francis ber álíka mikla virðingu fyrir peningum og ég fyrir Gaddafí í Líbýu," sagði Evans. Pegar í upphafi rak Coppola tuttugu manns úr starfs- liði Evans, - þar á meðal aðalkvik- myndatökustjórann, sem fór heim með 160 þúsund dollara skaðabætur í vasanum. Höfundur tónlistar fékk 100 þúsund dollara, áður en hann hljóp heim. Nýi tónlistarhöfundurinn er sjálfur jassleikari og hann átti við erfiðleika að etja, því samkvæmt gömlum samn- ingi varð hann að vera með hljómsveit sína á næturklúbbi fimm kvöld vik- unnar. Næturklúbburinn var suður í Bern! Petta leysti Coppola þannig að á sunnudögum flaug maðurinn til New York, vann þar í tvo daga og þaut svo með Concorde þotunni til London á þriðjudögum og komst til Sviss með þotu og lest. Erfitt verður að dæma um hvort það var Evans sem réð til sín rangan mann eða Coppóla sem sveiflaðist milli fullkomnunaræðis síns og ringul- reiðar, sem sökina áttu á öllum hinum háa kostnaði. En víst var að þeir félagar máttu varla sjá hvor annan að lokum, svo stirt var samkomulagið orðið og lenti í málaferlum. Ekki kom þó annað en það út úr átökunum milli þeirra að spilavítiseigendurnir, bræðurnir tveir, urðu að koma á sáttum með tveggja milljón dala út- gjöldum. Um síðustu áramót var „Cotton Club" loks frumsýnt í Bandaríkjun- um. Ekki féll myndin, en skjótt varð ljóst að aðstandendurnir máttu láta drauma um að hún skilaði 100 millj- óna tekjum lönd og leið. En hugmyndaríkur kvikmynda- framleiðandi hefur nú látið sér detta í hug að gera kvikmynd um illdeilur þeirra Evans og Coppola. §(ern) Sunnudagur3. 1085 Islenska kartaflan ereinhver ódýrasti matur Það er kominn tími til að við íslendingar nýtum kartöfluna okkar á fjölbreytilegri hátt en sem meðlæti, soðiðeðabakað. Kartaflan er nefnilega ódýrt, ljúffengt og hollt hráefni, Cm CMÆmÆm v CÍM sem sómir sér jafnt í hversdags- og veislu réttum, í potti, á pönnu, í ofni eða grilli _ og í köldum réttum í óendanlegum tilbrigðum. C'Pff) MfáÆm ÍÆ Við höfum ekki lengur efni á að horfa fram hjá &ÆZÆÆÆ f C/I %^Æ éM jafn hagstæðu hráefni - uppskriftabæklingurinn bíður úti í búð. Kartöflugratin fyrir 4-5 •500 g kartöflur • 1 lítill laukur • Vi paprika rauð eða græn «150 g sýrður rjómi *salt • pipar. Skrælið kartöflurnar og skerið í þunnar sneiðar. Saxið papriku og lauk. Smyrjið eldfast mót og raðið kartöflum, lauk og papriku í lögum í mótið, stráið salti og pipar milli laga. Hrærið upp sýrða rjómann og dreifið yfir kartöflurnar, hafið lok á mótinu. Bakað í ofni við 200°C í 45 mín.____________________ Borið fram sem sjálfstæður réttur með hrásalati og/eða grófu brauði. íslenskar kartöflur eru auðugar af C-v(tamíní, einkum ef þeirra er neytt með hýðinu. Þær innihalda einnig og B2 vítamín, níasín, kalk, járn, eggjahvítuefni og trefjaefni. í 100 grömmum af íslenskum kartöflum eru aðeins 78 hitaeiningar. Til viðmiðunar má nefna að I 100 g af soðinni ýsu eru 105 he, kotasælu 110, soðnum eggjum 163, kjúklingum 170, nauta- hakki 268 og í hrökkbrauði 307. Reynum Ijúffenga leið til sparnaðar - matreiðum úr íslenskum kartöfíum vGrœnmetisverslun) 1 landbúnaóargns J Síðumúla 34 — Sími 81600 Fimmtudagsábótin: Bílamarkaður Föstudagsábótin: Laugardagsábótin: Innanhúss og utan Aug lýsingas í m i Áskriftars í m i

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.