NT


NT - 03.03.1985, Page 21

NT - 03.03.1985, Page 21
TSJ ■ Hverskyns spádómskukl hefur átt vaxandi vinsældunr að fagna á seinni árum; stjörnuspekingar, tarotspil og margt fleira mætti tína til. En spádómar sem þessir eru ekki ný bóla. í tíð áa okkar á síðustu öld spáðu margir í spil, stjörnur og kaffigroms gat fært fréttir úr framtíðinni. í gömlu handritaslitri sem undirritaður eignaðist úr fór- um skagfirsks bónda á fyrri parti þessarar aldar er að finna spádómsfræði í bundnu máli. Rit þetta ber titilinn „Dægra- stitting sem nefnist Spámaður- inn". í því er að finna þrjá „„.gosinn líka greinast má geðjast píkum drengur sá“ Gruflað í skag- fírskum spilaspádómum kafla, einn u'm stjörnuspá- dóma í tuttugu Ijóðabálkum og er hver um sig 12 vísuerindi. Aftan við það koma svo spila- spádómar en það eru þeir sem við ætlum að birta hér í Sögukorn- inu. Sá síðasti er svo í lausu máli um lófalestur og forlaga- spá. „Þíðing spila þá lagt er í stjörnu", heitir þessi kafli bókarinnar. Hvað átt er við með að spil séu lögð í stjörnu veit undirritaður ekki en vel má ætla að þar sé átt við að spilunum sé raðað á þann hátt á borð og síðan dragi menn eitt og eitt úr stjörnunni. Höfund- ur þessa kveðskapar er Jónas Jónasson á Torfumýri í Skaga- firði, fæddur 1850 í Húna- vatnssýslu og á þangað ættir að rekja. En þákomaspádómarn- „Tígul fyrstum frá mig listir greina, um hann smíða ætti stef, ásinn þíðir sendibrjef. Kónginn láta lundar plátu merkja opt sem trega eiða kann alúðlegann heiðursmann. Blýð að vonum bjarthærð kona líka, visku há og vel metinn vera náir drottninginn Mjög glaðlindur maður yndislegur gosinn líka greinast má geðjast píkum drengur sá. Týjan líka trega mýkja kærast höld og klæðarún krónufjölda merkir hún. náir Tígulnýjan - Trega flýja stundir hún ánægju heitir því heimi dæilegust í Áttan þíðir afbragðs fríðu börnin laus af tjóni listug því elsku hjónabandi í. Sjöið boðar - sýst er voði á ferðum laufa rjóð og lánsgefni lukku í góðu samkvæmi. Þá urn hjarta þarf ég mart að ræða ei við bíða orða stanz ásin þíðir húsið manns Higg eg þíða hjarta fríða kónginn ama skerðann ástríkann elsku verðann heiðursmann Undurgóðsem yndi þjóðum vekur hringa rein með híra kinn hjarta greinist drottninginn Líður kinni lipurmenni gosann rjett sem fljóða fjörgar geð, fréttir góðar kemur með. Tíann segir - svo þú megir trúa, þinni móti elsku ást, ung að snótin muni fást (eða); örfabrjótur muni fást Nýjan spáir - nærri mátt því geta ami stirður eiðist nú, ást og virðing hljótir þú. Kærleik hreinan kvittan greinir áttann Þó vandfengin þyki sá, þrávalt megni vera hjá. Sjöið þýðir þinn að blýður vinur elski af hreinu hjarta sá, hjermeð greinir barni frá. Hér lætur Sögukornið staðar numið þessa vikuna en næstu helgi birtum við lauf og spaða spádóma og ættu lesendur þá að geta lagt spilin á borðið og gruflað í eigin frægð og frama. Vísur þessar eru hér prent- aðar stafréttar eins og þær koma fyrir í handritinu sem væntanlega er uppskrift frá því einhverntíma á seinni hluta síðustu aldar eða alveg fyrst á þessari. Þá stafsetti hver eftir sínu nefi enda málfasismi ekki eins útbreiddur þá og síðar hefur orðið. -b. Lausn á síðustu krossgátu • Köln er orðin að draugaborg eftir lofíárásirnar. Sviðin grind aðaljárnbrautarstöðvarinnar stendur ein uppi, en brýrnaryfir Rín eru fallnar í fljótið. Sókn í lofti og á láði ■ Þann 25. febrúar fyrir 40 árum bar upp á sunnudag. Þá var í nógu að snúast hjá 1. og 9. her Bandaríkjamanna, sem voru að brjótast gegnum varnir Þjóðverja vestan við Köln og tóku þar bæina Dúren og Júlich. Daginn eftir gerði 8. flugher Bandaríkjanna stórárás á Berlín. 3000 tonnum af sprengjum er varpað á borgina og þar á meðal er hálf milljón íkveikjusprengja. Árásinni er einkum beint að þrernur járn- brautarstöðvum í borginni. Árásarflugsveitirnar missa fimmtán sprengjuflugvélar og sjö orrustuvélar. Um nóttina gera Bretar loftárás í bjarman- um af eldinum eftir árás Bandaríkjamanna. Þennan dag, 26. febrúar, segja Egyptar og Sýrlendingar Þjóðverjum og Japönum stríð á hendur. 27. febrúar aka brynvagnar Rokossovsky inn í Pommern, en Líbanon bætist í hóp ríkj- anna sem snúast gegn Þjóð- verjum og Japönum með stríðsyfirlýsingu. Hinn 28. febrúar fer 1. her Bandaríkjamanna yfir fljótið Erth, 10 km frá Köln. íranir og Saudi Arabar lýsa yfir stríði við Þjóðverja og Japani. Þennan dag gengur banda- rískt lið á land á eyjunni Palaw- an á Filippseyjum. Þann 1. mars taka Banda- ríkjamenn (9. herinn) Múnc- hen Gladbach. Daginn eftir sækin 9. herinn enn fram og hertekur nú Krefeld, Venlo og Roermond. Breski flugherinn gerir tvær loftárásir um bjartan dag á Köln. Hinn 3ja mars er laugardag- ur. Kanadamenn og Bretar hittast með lið sitt á milli Maas og Rínar. Japanir gefast endanlega upp við vörn Manila á Filipps- eyjum. Þjóðverjar gera nú loftárásir með 100 flugvélum á 20 flug- velli frá Northumbarland til Oxon. Tuttugu af sprengjuvél- um RAF eyðilagðar. Sex af vélum innrásarflugsveitanna farast. Vestur í Bandaríkjunum skjóta 20 fylki á ráðstefnu í Mexico City, þar sem þau heita að styðja pólitískt og landfræðilegt sjálfræði hver annars. i Sprengjurnar falla. Reykjarbólstur stígur upp yfir skýjaþykknið yfir þýskri borg.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.