NT - 09.03.1985, Síða 1

NT - 09.03.1985, Síða 1
Helgi vann Kristiansen ■ Helgi Ólafsson vann Jens Kristiansen, frá Danmörku, á alþjóðlega skákmótinu í Kaup- mannaliöfn í gær, í 6. umferð mótsins. Jóhann Hjartarson á biðskák, og lakari stöðu, gegn Curt Hansen. Aðrarskákir fóru í bið og vakti athygli að Mortensen á unnið tafl gegn Smyslov, en var áður í neðsta sæti í mótinu. Saðan er nú þannig að Pinter ef efstur með 4x/i vinning og biðskák gegn Plasket. Smyslov er í öðru sæti með 3'Á og biðskák og Helgi og Hoy í 3-4 sæti með 31/: vinning hvor. Sjöunda umferð verður tefld í dag, og teflir Helgi þá við Mortensen, en Jóhann við Plasket. Keflavíkurtogari: Smygl fyrir hálfa millj. ■ Fimm myndsegulbönd, 78 bjórkassar, 34 sígarettukarton og 75 áfengisflöskur fundust við tollleit í Keflavíkurtogaranum Dagstjörnunni þegar hún kom til hafnar eftir söluferð til Þýskalands. Hluti skipverja hef- ur játað að eiga góssið. Það voru tollverðir úr Reykja- vík og Keflavík sem leituðu í skipinu aðfaranótt gærdagsins. Væri varningur þessi keyptur hér heima kostaði hann um það bil 450 þúsund. Hver, ég. Traust sparifjáreigenda á ríkissjóði stóraukist: Ný spariskírteini keypt fyrir 74% af innleystum - en aðeins fyrir 30% í september ■ Traust sparifjáreigenda á ríkssjóði virðist hafa vaxið stór- um frá því á síðasta hausti. Af spariskírteinum að upphæð um 1.000 milljónir (miðað við vísitölu í nóv. sl.) seni voru laus til innlausnar mánuðina janúar og febrúar voru alls 427,8 mill- jónir innleystar á þessum tveim mánuðuin, en þar af fengust um 317,7 milij. til baka í ríkissjóð með sölu nýrra skírteina, eða rúm 74%. í fjármálaráðuneytinu þykir mönnum verulegur árangur hafa náðst með sölu nýrra skírteina fyrir rúmlega 74% af innlusn nú, en í september og október sl. haust nam salan aðeins 30%. Af fyrrnefndum 1.000 millj. króna sem laus voru til innlausn- ar nú voru skírteini að upphæð rúmlega 615 millj. sem eru á töluvert lakari ávöxtun en þau skírteini sem ríkissjóður býður NT-mynd: Ari Sjómenn samþykktu víða en felldu á Akranesi! nú. Fyrir eigendur þeirra hefði því borgað sig að leysa út eldri skírteinin og kaupa ný í staðinn. A því virðast þó eigendur um 200 milljóna króna þó ekki hafa áttað sig nægilega. Borgarnesþjófarnir í gæsluvarðhaldi ■ Tveir menn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna innbrotsins í söluskála Skeljungs í Borgarfirði þar sem stolið var pcningaskúffu með 230 þúsund krónum. Varðhaldsúrskurðurinn gild- ir til miðvikudags. Mennirnir sem báðir eru Reykvíkingar á fertugsaldri og hafa áður komið við sögu lögreglu eru grunaðir um að eiga aðild að ráninu. Rann- sóknarlögregla ríkisins vildi ekki staðfesta að mennirnir hefðu játað þjófnaðinn á sig en fleiri ntenn verða yfir- heyrðir vegna þessa næstu daga. Peningaskúffan meðöllum þeim ávísunum sem hurfu fannst í flæðarmálinu í innanverðum Hvalfirði í vik- unni og höfðu þjófarnir reynt að husla hana með möl og grjóti. Enn hefur ckkert fundist af peningunum sem nema um 120 þúsund krónum. Menn þeir sern hér koma við sögu áttu einhverja aðild að innbrotinu í Afengisversl- unina á Akranesi í fyrra samkvæmt upplýsingum sem NT fékk hjá Borgarneslög- reglu. Stórflóð: Milljónatjón fyrir vestan ■ Gissur hvíti skelfisksskip Barðstrendinga eyðilagðist í flóði og ofviðri þegar hann slitn- aði af legufærum sem hann var festur við og rak í fjöru. Gissur sem er 70 tonna skip var metinn á 10 milljónir króna. Er þetta í þriðjasinn á fáum árum sem Barðstrendingar tapa útgerðar- flota sínum í óhappi sem þessu.. Þá urðu skemmdir á aðalgötu Patreksfjarðar þegar sjór skol- aði óvarinni fyllingu burt á kíló- metralöngum kafla. Var vegur- Fatapeníng-I arnir fyrir einum vett-/- Ijngum á viku ■ Sjómenn víðast hvar á landinu hafa samþykkt ný- gerðan kjarasamning, nema sjómenn á Austfjöröum og á Akranesi. Þrátt fyrir nokkur fundar- höld á Austfjörðum hefur lítt miðað í samkomulagsátt, og er áformað að aðilar haldi fund með ríkissáttasemjara á Egilsstöðum í dag kl.13.00. Sigfinnur Karlsson, einn forystumanna sjómanna á Austfjörðum, segir að sjó- menn sætti sig við ríkisstjórn- arpakkann en vilji meira frá útgerðinni. Samningurinn var felldur á Akranesi í gær með 42 atkvæðum gegn 23. Á sama fundi var kosin nefnd til að ræða við útgerðarmenn, en Akurnesingar eru óánægðir með hversu lítið af kostnað- arhlutdeildinni kemur til beinna skipta. Sjómönnum á Akranesi mun hafa fundist lítið til umsaminna hækkana koma, eftir þau hvatningarorð sem forystumenn þeirra létu falla á síðasta ári, en þá voru send myndbönd um borð í báta með eggjunarorðum forystu- manna. Sögðu þeir að fatapening- arnir sem nú samdist um nægðu fyrir einu pari af sjó- vettlingum á viku. Óskar Vigfússon, formað- ur Sjómannasambands ís- lands sagði að barátta sjó- manna yrði líklega erfið, og færi líklega fram á heimavíg- stöðvum. inn f endurbyggingu og taidi sveiíarstjóri Patreksfjarðar í samtali við NT að tjónið væri á bilinu 3(X) til 700 þúsund krónur. Ennfrentur flæddi inn í vél- ■ smiðjuhús í plássinu og lítils- háttar skemmdir urðu á vegi og bryggju á Tálknafirði. Er þaö mál manna vestra að svo hátt flóð sem varð í fyrrinótt hafi ekki komið í manna minnum. Á Tálknafirði var það íshella úr botni fjarðarins sem mestum usla olli. Um tíma lokaði hún innsiglingunni þannig að bátur, sem hafði verið á veiðum varð að bíða næturlangt úti á firði. Hellan æddi svo á land og skemmdi meðal annars veg sem liggur að skólahúsinu. Skólinn sjálfur var umflotinn vatni og varð að flytja alla á.bílum í skólann til þess að kennsla gæti hafist í gærmorgun. Kennaradeilan: Ihnút ■ Samninganefnd ríkisins hafnaði í gær hugmyndum HÍK um niðurröðun í flokka. Ljóst er því, að kennaradeilan er fjarri því að leysast. Að sögn Kristjáns Thorlac- iusar, formanns HÍK munu kennararnir hafa samband við samninganefnd ríkisins í dag, en ekki er víst að um neinn form- legan fund verði að ræða.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.