NT - 09.03.1985, Side 10
Laugardagur 9. mars 1985 10
Bridge- Ólympíumeistarar og Asíu-
hátíð ■ ■ ■ f* ■ ■ ■
1985 I meistari meðal keppenda
■ Zia Mahmood er ekki óvanur því að taka við sigurlaunum fyrir
bridgemót. Á þessari mynd er hann að taka við verðlaunum fyrir
stóra tvímenningskeppni í Bretlandi sem hann vann ásamt Rixi
Markus, cn hún er á miðri mynd. Til vinstri er Nils Jensen, forseti
Bridgesambands Evrópu sem afhcnti verðlaunin.
■ Það verður mikið um dýrð-
ir á Hótel Loftleiðum í lok
næstu viku þegar illvígur her
erlendra stórspilara reynir að
hertaka Brigehátíð 1985.
Bridgehátíðir Bridgesem-
bandsins, Bridgefélags
Reykjavíkur og Flugleiða hafa
verið íslensku bridgelífi
ómetanleg lyftistöng, sérstak-
lega þar sem tekist hefur að fá
spilara úr hópi þeirra bestu í
heimi til að taka þátt í mótinu.
Bridgehátíðin í ár er þar
engin undantekning því þar
verða meöal gesta Ólympíu-
meistararnir í sveitakeppni,
danska landsliðið, Asíumeist-
ari og Evrópumeistari, sterkt
lið frá Bandaríkjunum auk
nokkurra para að auki frá Dan-
rnörku.
Sumir þessara gesta eru ís-
lendingunt að góðu kunnir frá
fyrri Bridgehátíðum en aðrir
eru lítt þekktir hér á landi og
verður því gerð grein fyrir
þeim hér á eftir.
Pólverjarnir
Tvö pör úr sigurliði Pólverja
á Ólympíumótinu í Seattle í
haust verða meðal þátttakenda
á Bridgehátíð, Martens og
Przybora, (frantborið Sprí-
bora) og Romanski og Tuszin-
sky. Petta eru allt menn um
þrítugt.
Frumraun Martens og Przy-
bora var Evrópumótið í Birnt-
ingham 1981, þar sem pólska
svéitin vann með míklum yfir-
burðum. Þeir spiluðu síðan á
Heimsmeistaramótinu sama ár
og hafa verið fastamenn í
pólska landsliðinu síðan.
Raunar var vígsla Romanski
og Tuszinsky mun glæsilegri
því í fyrsta sinn sem þeir
spiluðu í opnu pólsku landsliði
■ Martin Hoffman
urðu þeir Olympíumeistarar.
Tuszinsky hafði að vísu verið
meðlimur í yngra liði Pólverja
á Evrópumótum.
Allir þessir spilarar spila
Pólska laufið, sem er í ntegin-
atriðum eðlilegt kerfi en lauf-
opnunin getur bæði verið veik
og sterk.
Bretarnir
Raunar eru bresku spilar-
arnir ekki allir breskir í húð og
hár, því Zia Mahmood er Pak-
istani, sem að vísu er uppalinn
og menntaður f Bretlandi.
Hann hefur þó ríkisfang í Pak-
istan og spilar mcð pakistanska
landsliðinu í alþjóðlegum mót-
um og er margfaldur Asíu-
meistari.
Mahmood er talinn vera
einn besti spilari heims, hvorki
meira né minna, enda er hann
margverðlaunaður fyrir snilld-
artakta í úrspili og sögnum.
Hann spilar þó aðallega rú-
bertubridge en gefur sér tíma
til að ferðast um heiminn og
taka þátt í mótum á borð við
Bridgehátíð. Hann hefur enda
efni á því; fyrir utan dágóðar
tekjur við rúbertuborðin, fær
hann samkvæmt áreiðanlegum
heimildum, dágóðan lífeyrir
frá fjölskyldufyrirtæki hans í
Pakistan, og ekur um í London
á hvítum Rolls Royce.
Mahmood mum spila við Ro-
bert Sheehan sem óþarfi er að
kynna fyrir íslenskum bridge-
áhugamönnum þar sem hann
hefur í tvígang tekið þátt í
mótum hér á landi.
Priðji Bretinn er Martin
Hoffman, sem að eigin áliti er
besti spilari breskur sem ekki
hefur komist í landslið. Hans
sérgrein er tvímenningur og
það er óneitanlega gaman að
sjá hann við spilaborðið, hann
er svo fljótur að spila að við
liggur að hann sé slag á undan
vörninni. Rétt er að benda
væntanlegum þátttakendum á
Bridgehátíð á að passa sig að
láta Hoffman ekki taka sig á
hraðanum og gefa sér góðan
tíma gegn honum, þá er hann
gjarn til óþolinmæði og mistaka,
Hoffman hefur undanfarin
ár sýnt á sér nýja hlið því hann
hefur gefið út tvær bridgebæk-
ur,báðar hafa fengið mikið lof.
Hoffman spilar við mann að
nafni Tony Berry, en um hann
hef ég engar upplýsingar.
Danirnir
Möller, Blakset og Auken,
sem allir komu á Bridgehátíð í
hitteðfyrra, koma aftur nú.
Peir hafa þegar verið valdir í
Evrópulið Dana fyrir sumarið,
ásamt Werdelin, sem ekki sá
sér fært að koma til landsins
nú. í stað hans kemur Denis
Koch, sem er einn af bestu
■ Robert Sheehan
spilurum Dana þrátt fyrir ung-
an aldur. Hann hefur verið
fastamaður í yngra liði Dana
undanfarin 6 ár og í sumar
spilar hann fyrir Dani á Efna-
hagsbandalagslandamótinu í
bridge.
Auk þessara spilara koma
Kirsten Möller og Bettina
Kalkerup, sem þegar hafa ver-
ið valdar til að spila á Evrópu-
móti kvenna í sumar, og Bett-
ina spilar auk þess á Norður-
landamóti yngri spilara.
Á eigin vegum koma síðan
Andreas Richter og Torsten
Bernes, sem báðir spiluðu á
síðustu Bridgehátíð, Paul
Fredriksen, sem lengi hefur
spilað við Denis Kock í yngri
liðum Dana, Lars Grönvald,
Ole Jakob Thorsen og síðast
en ekki síst íslendingarnir
Sævar Þorbjörnsson og Skafti
Jónsson sem nú eru búsettir í
Kaupmannahöfn.
Bandaríkjamennirnir
Steve Sion og Alan Cokin
koma nú aftur á Bridgehátíð
ásamt sveitafélögum sínum
Harald Stengel og Charles
Coon. Coon og Stengel eru
báðir gamalreyndir kappar.
Coon hefur m.a. spilað á
Heimsmeistaramóti fyrir N.
Ameríku. Auk þeirra kom ís-
lendingurinn Einar Guðjóns-
sen og læknirinn Jim
Sternberg. Sternberg þessi er
einskonar vinnuveitandi fjór-
menninganna, þ.e. hann borg-
ar þeim fyrir að spila með sér
í sveit og þó ekki hafi farið
miklum sögum af bridgehæfi-
leikum Sternbergs hefur sveit-
in náð ágætum árangri undan-
farið ár í Bandaríkjunum, að
vísu með þá Alan Sontag og
Mark Molson innanborðs.
Fyrirkomulag mótsins
Tvímenningskeppni hefst
föstudagskvöldið 15. mars kl.
19.30 og verður spilað fram
eftir kvöldi. Mótið lieldur
áfram á laugardagsmorgun og
því lýkur um kvöldið.
Flugleiðamótið, sveita-
keppnin, hefst kl. 13.00 á
sunnudag og þar verður spilað
eftir mondarfyrirkomulagi, 14
spila leikir, alls 7 umferðir.
Því lýkur á mánudagskvöld og
jafnframt verður þá verðlauna-
afhending fyrir bæði mótin.
Tíu efstu pörin í tvímenn-
ingnum og tvær efstu sveitir í
sveitakeppninni fá peninga-
verðlaun, alls 7000 Banda-
ríkjadali.
Áð venju verður góð að-
staða fyrir áhorfendur á mót-
inu og er áætlað að sýna leiki í
sveitakeppninni á sýningar-
töflu.
íslandsmótið í
sveitakeppni
Dregið hefur verið í riðla í
undanúrslitum íslandsmótsins
í sveitakeppni. Þeireru þannig
skipaðir:
A-riðill (Akureyri):
1. Grímur Thorarensen Kóp.
2. Sigmundur Stefánsson Rvk
3. BjarkiTryggvason Sauðárkr
4. Sveit Úrvals Rvk
5. Örn Einarsson Akureyri
6. Þórarinn Sigþórsson Rvk
B-riðill:
1. GuðbrandurSigurbergss. R
2. Jón Hauksson Vestm.
3. Sigurj. Tryggvas. Reykjan.
4. Sveit Suðurgarða Selfossi
5. Eggert Karlsson Hvammst.
6. ÓlafurTýrGuðjónsson Self.
C-riðill:
1. JónH. GíslasonTálknafirði
2. Júlíus Snorrason Rvk
3. Ragnar Hermannsson Rvk
4. Jón Hjaltason Rvk
5. Aðalsteinn Jónsson Eskif.
6. Ólafur Lárusson Rvk
D-riðill:
1. Þorsteinn Sigurðsson Bl.ósi
2. Stefán Pálsson Reykjavík
3. Erla Sigurjónsd. Reykjan.
4. Jón Baldursson Reykjavík
5. Alfreð Viktorsson Akranesi
6. SigurðurB. Þorsteinss. Rvk
Meistarastigaskráin
tilbúin
Meistarastigaskrá Bridge-
sambandsins er væntanleg í
næstu viku. í henni er að finna
nöfn 2013 einstaklinga sem
hlotið hafa meistarastig í
keppni hér á landi frá 1. janúar
1976 til 1. janúar 1985.
Þórarinn Sigþórsson heldur
enn öruggri forustu með 825
stig, en næstur kemur Ás-
mundur Pálsson með 701. Þar
á eftir koma Guðlaugur R.
Jóhannsson, 684, Jón Baldurs-
son 682, Örn Arnþórsson 682,
Valur Sigurðsson 603, Sigurð-
ur Sverrisson 600, Símon Sím-
onarson 581, Guðmundur Páll
Arnarson 558, Jón Ásbjörns-
son 541, Karl Sigurhjartarson
505, Hörður Arnþórsson 504
og Sævar Þorbjörnsson 501.
Þessir spilarar hafa allir náð
stórmeistaranafnbót sam-
kvænit meistarastigareglu-
gerð.
Bridgedeild Breiðfirðinga
Þegar einu kvöldi er ólokið
í aðaltvímenning félagsins er
staða efstu para þessi:
Bjarni Jónsson -
Sveinn Jónsson 675
Halldór Jóhannesson -
Ingvi Guðjónsson 662
Gísli Víglundsson -
Þórarinn Árnason 563
Bridgedeild Húnvetninga
Þegar fjórum umferðum er
ólokið í aðalsveitakeppni
deildanna er staða efstu sveita
þessi:
Hreinn Hjartarson 143
Jón Oddsson 135
Valdemar Jóhannsson 134
Bridgedeild Rangæinga
Eftir 8 umferðir er staða
efstu sveita þessi í aðalsveita-
keppni deildarinnar:
Lilja Halldórsdóttir 192
Gunnar Helgason 179
Gunnar Alexandersson 174
Bridgedeild Hreyfils
og Bæjarleiða
Að loknunt þrem umferðum
í hraðsveitakeppni er staðan
þessi:
Cyrus Hjartarson 214
Birgir Sigurðsson 203
Anton Guðjónsson 187
Bridgefélag Reykjavíkur
Nú er keppnin í aðaltví-
menningskeppni B.R. orðin
verulega spennandi.Hjalta og
Jóni Baldurssyni dugðu ekki
tæp 90 stig í plús til að lialda
efsta sætinu því Aðalsteinn og
Valur gerðu enn betur. Ekki
er þó munurinn mikill. Reynd-
ar eru nokkur pör til viðbótar
innan seilingar við efsta sætið.
Staða efstu para eftir 35 um-
ferðir af 41 er þessi:
stig
1. Aðalsteinn Jörgensen -
Valur Sigurðsson 445
2. Hjalti Elíasson -
Jón Baldursson 444
3. Símon Símonarson -
Jón Ásbjörnsson 410
4. Stefán Pálsson -
Rúnar Magnússon 404
5. Ólafur Lárusson -
Oddur Hjaltason 384
Síðustu umferðirnar verða
spilaðar sunnudaginn 10. mars
og hefst spilamennskan kl.
13.30. Næsta miðvikudag hefst
svo Board-a-match sveita-
keppni sem er öllum opin.
Þátttaka tilkynnist keppnis-
stjóra eða formanni.
Bridgefélag Breiðhoits
Að loknum 12 umferðum í
barometer er staða efstu para
þessi:
1. Jakob Kristinsson -
Garðar Bjarnason 258
2. Magnús Oddsson -
Lilja Guðmundsdóttir 189
3. Guðmundur Aronsson-
Jóhann Jóelsson 158
4.-5. Baldur Bjartmarsson -
Gunnlaugur Guðjónss. 152
4.-5. Gísli Tryggvason -
Guðlaugur Nielsen 152
Bridgedeild
Barðstrendinga-
félagsins
Nú stendur yfir Barometer-
keppni félágsins (30 pör).
Staða efstu para eftir 12 um-
ferðir:
I. Guðmundur Jóhannsson -
Jón Magnússon 199
2. Ágústa Jónsdóttir -
Guðrún Jónsdóttir 146
3. Björn Þorvaldsson -
Þorgeir Jósefsson 136
4. Ragnar Þorsteinsson -
Helgi Einarsson 113
5. Ari Þórðarson -
Díana Kristjánsdóttir 95
T.B.K.
Þegar ein umferð er eftir í
aðal-sveitakeppni T.B.K. er
staðan þessi:
Sveit stig
Gests Jónssonar 172
Antons Gunnarssonar 148
Gunnlaugs Óskarssonar
Tósp.leik 127
Gísla Tryggvasonar 118
Auðuns Guðmundssonar 117
Síðasta umferð í aðal-sveita-
keppninni verður spiluð næst-
komandi fimmtudag 14. mars,
að Domus Medica og hefst
keppnin kl. 20.30 eins og
venjulega.
Fimmtudaginn 21. mars
hefst svo Barometer-keppni fé-
lagsins, og mun taka fjögur
fimmtudagskvöld. Keppnin
verður haldin í Domus Medica
og hefst kl. 20.30. Væntanlegir
þátttakendur láti skrá sig sem
fyrst hjá eftirtöldum aðilum:
Tryggva í símum 24856 eða
36744. Braga í símum 30221
eða 19744
Sveit
Magnúsar Torfa sigraði
Sveit Magnúsar Torfasonar
vann aðalsveitakeppni Bridge-
deildar Skagfirðinga, sem lauk
sl. þriðjudag. Mikil baráttavar
um 3 efstu sætin í keppninni,
en á lokasprettinum var sveit
Magnúsar sterkust. Með hon-
um spiluðu: Guðni Kolbeins-
son, Guðmundur Eiríksson,
Steingrímur Steingrímsson og
Örn Scheving.
Röð efstu sveita varð þessi:
Magnús Torfason 312
Guðrún Hinriksdóttir 293
Gísli Stefánsson 291
Alls tóku 16 sveitir þátt í
keppninni.
Á þriðjudaginn kemur, hefst
svo Mitchell-tvímennings-
keppni. Fyrirkomulag er
þannig, að allir spila í einum
riðli, annað parið situr ávallt
„fast“ og hitt parið (miðað við
áttir, N/S og A/V) er sífellt á
hreyfingu. í þannig tví-
menningskeppni er toppurinn
mjög hár og þar af leiðir að
sviptingar eru miklar. Nóg er
að mæta á spilastað, með góð-
um fyrirvara áður en spila-
mennska hefst kl. 19.30. Öll-
um er frjáls þátttaka, meðan
húsrúm leyfir. Mitchell-tví-
menningskeppnin mun standa
yfir í 4 kvöld.
Bridgefélag Akureyrar
Sl. þriðjudag hófst hjá
Bridgefélagi Akureyrar, svo-
kölluð Sjóvá-hraðsveitakeppni
með þátttöku 22 sveita. Sjóvá
gefur öll verðlaun í þá keppni.
Spilað er í tveimur 11 sveita
riðlum, og er slönguraðað eftir
árangri. Keppnin mun standa í
4 kvöld.
Eftir 1. kvöldið, er staða
efstu sveita þessi:
Sveit stig
Zarioh Hamado 319
Arnar Einarssonar 312
Páls Pálssonar 307
Sigurðar Víglundssonar 301
Bridgefélag Breiðholts
Sl. þriðjudag hófst Barometers-
tvímenningur með þátttöku 30
para.
Að loknum 6 umferðum er röð
efstu para þessi:
1. Jakob Kristinsson -
Garðar Bjarnason 165
2. Rafn Kristjánsson -
Þorsteinn Kristjánsson 111
3. Baldur Bjartmarsson -
Gunnlaugur Guðjónsson 103
Guðmundur Sv. Hvermannsson