NT - 09.03.1985, Síða 11

NT - 09.03.1985, Síða 11
Jli________________Min Guðmundur Gíslason Hagalín Fæddur 10. október 1898. Dáinn 26. febrúar 1985. Guömundur Gíslason Haga- lín rithöfundur andaðist 26. f.m. og er til grafar borinn í Reyk- holti í Borgarfirði í dag. Um það bil þrjú ár eru liðin síðan hann hætti að skrifa blaða- greinar og þar með að taka þátt í opinberri umræðu bókmennta og þjóðmála. Pá átti hann að baki meira en 60 ára feril sem rithöfundur. Guðmundur var fæddur í Lokinhömrum í Arnarfirði 10. október 1898 og var því orðinn 86 ára. Hann var af ættum dugandi bænda kominn. Sjálfur hefur hann gert grein fyrir þeim ættstuðlum í minningabókum sínum. Er þar að minnast ým- issa gildra bænda og vaskra sjósóknara sem bjuggu á vildisj- örðum þeim sem einkum voru eftirsóttar, svo sem Mýrar og Núpur í Dýrafirði, Sæból á Ingjaldssandi, Auðkúla ogLok- inhamrar í Arnarfirði og Sellátr- ar í Tálknafirði. Faðir Guðmundar var Gísli Kristjánsson, Oddssonar en móðir hans var Guðný dóttir Guðmundar Hagalíns, Guð- mundssonar, Brynjólfssonar. Peir feðgar bjuggu á Mýrum. Brynjólfur var sonur Hákonar Bárðarsonar á Arnarnesi, einn af 12 börnum hans sem ættir eru frá komnar. Er það að vonum fjöldi manns um Dýrafjörð og Onundarfjörð. Brynjólfur Hákonarson mun hafa orðið mestur fjáraflamaður af börnum Hákonar Bárðarson- ar. Árið 1810 keypti hann Mýrar fyrir 600 ríkisdali, en áður hafði hann búið á Eyri í Önundarfirði og Hjarðardal ytri og Fjalla- skaga. Guðmundur Brynjólfsson var dannebrogsmaður og er vitað, að prófastur hvatti biskup til að beita sér fyrir því að hann hlyti þá sæmd vegna stuðnings við kirkjubyggingu á Mýrum. Hér er þessa minnst vegna þess að það hafði veruleg áhrif á Guðmund Hagalín sem mann og skáld, að hann vissi sig kominn af höfðingjum sem mörgum betur kunnu að bjarga sér og öðrum í sambýli við stórbrotna náttúru Vestfjarða. Það kom snemma í ljós, að Guðmundur var bókhneigður og því naut hann þess eftirlætis að vera við nám flesta vetur eftir fermingu. Fimmtán ára gamall var hann vetrartíma í unglingaskóla sr. Sigtryggs Guðlaugssonar á Núpi og tvo vetur var hann við nám hjá sr. Böðvari Bjarnasyni á Hrafn- seyri sem lengi rak skóla á heimili sínu til undirbúnings menntaskólanámi. Guðmundur fór síðan til náms í Mennta- skólanum í Reykjavík, en hvarf þar frá námi í 5. bekk 1918. Pá höfðu ritstörfin heimt hann til sín. Eftir að hafa stundað blaða- mennsku um skeið í Reykjavík varð Guðmundur Hagalín rit- stjóri blaðsins Austurlands á Seyðisfirði 1919. Það var mál- gagn þeirra, sem síðar mynduðu Ihaldsflokkinn. Guðmundur skrifaði mikið um bókmenntir í blað sitt. Þetta var í lok þess tíma er blaðamennska varð athvarf, svölun og atvinna margra þeirra sem höfðu ríkasta hneigð til ritstarfa. I þeirra hópi má nefna menn eins og Matthías Jochumsson, Gest Pálsson, Jón Ólafsson, Þorstein Erlingsson, Einar H. Kvaran, Þorstein Gíslason og Guðmund Guð- mundsson. Guðmundur Hagalín hvarf frá ritstjórnini á Seyðisfirði 1923. Eftir ársdvöl í Reykjavik lá leið hans til Noregs. Þar dvaldi hann í þrjú ár, fór víða um og flutti fyrirlestra. Þá varð hann gagn- kunnugur norskum bókmennt- um og þjóðlífi. Eftir heimkomuna 1928 fór Guðmundur til Isafjarðar, þar sem hann átti heima til 1946. Alþingi veitti bóksafni ísafjarð- ar styrk „að því tilskildu, að Guðmundur Gíslason Hagalín rithöfundur hafi þar bókavörslu með a.m.k. 2000 kr. launum“. Áður hafði bókasafninu á Akur- eyri verið veittur slíkur styrkur bundinn því skilyrði að Davíð Stefánsson yrði bókavörður þar. Jónas Jónsson mennta- málaráðherra mun hafa ráðið mestu um þessa fjárveitingu til bókasafnanna. Þetta var leið til þess að veita þessum höfundum möguleika til fjárhagslegrar af- komu við störf sem tengdust áhugamálum þeirra. Hér er ekki ástæða til að rekja æviferil Guðmundar Hagalíns náið eða tíunda fjöl- breytt störf hans. Það sem hér hefur verið nefnt varðar þroska- feril hans. Þess skal svo getið, að 1955-1969 var hann bókafull- trúi ríkisins. Það embætti varð til samkvæmt lögum um al- menningsbókasöfn, en Guð- mundur var formaður nefndar sem undirbjó þá löggjöf 1954. Guðmundur Hagalín var um- deilt skáld, enda voru stundum harðar bókmenntadeilur um hans daga. Honum var m.a. brigslað um hetjudýrkun. í sjálfu sér er hetjudýrkun næsta eðlileg. Það eru til og hafa jafnan verið til frábærir afreks- menn. Að þeim megum við dást. Og fátt er gagnlegra en að eiga sér fyrirmyndir sem gaman væri að líkjast. Árið 1943 gaf Víkingsútgáfan í Unuhúsi út Gróður og sandfok, rúmlega 200 blaðsíðna rit eftir Guðmund Hagalín. Þar gerir hann grein fyrir bók- menntastefnu sinni yfirleitt. Þetta er harðsnúið barátturit, en að mínu viti gagnmerk heim- ild um íslenska menningarsögu. Ekki skal því haldið fram, að þetta rit segi allan sannleikann fremur en títt er um barátturit. Inn í bókmenntadeiluna fléttast átök Alþýðuflokksmanna og kommúnista í stéttarmálum og stjórnmálum, enda er Hagalín að berjast gegn ofstæki og öfg- um þeirra, sem telja sig hafa hlotnast öll sannindi í eitt skipti fyrir öll. Gróður og sandfok er gagn- merk bók og í framtíðinni mun oft verða til hennar vitnað og hefur raunar verið furðuhljótt um hana. Það mun þó mála sannast að þar sé að finna atriði sem líkja mætti við ritdóm Jón- asar Hallgímssonar um Trist- ansrímur. í tilefni af ritdómi í Þjóðvilj- anum um Kvöldræðursr. Magn- úsar Helgasonar segir Hagalín t.d.: „Hvernig ætti slíkt hópsálar- brotabrot að geta haldið heilum sönsum við lestur 308 blað- síðna, þar sem ekki er minnst einu orði á neitt, sem bendir í áttina til hins sanna og sálu- hjálplega náðarmeðals, komm- únismans, en þvert á móti hvað eina miðað við það, að hvað sem öllum ytri formum líði; sé þróun persónuleika einstakl- ingsins hin óhjákvæmilega undirrót allar sannrar menning- ar?“ Þróun persónuleikans er við- fangsefni í skáldskap Hagalíns og sögur sínar byggði hann frá upphafi á persónulegum kynnnum. Þegar Guðmundur Hagalín • skrifaði Virka daga, ævisögu Sæmundar skipstjóra Sæmunds- sonar, varð til ný bókmennta- grein. Seinna var farið að nota orðið heimildaskáldsaga um frá- sagnir af raunverulegum at- burðum færðar í skáldlegan búning. Með Virkum dögum sýndi Hagalín, að svigrúm er fyrir mannlýsingar og flest eða öll önnur einkenni góðrar skáld- sögu í frásögnum af samferða- mönnum. íframhaldiafVirkum dögum er svo sú bókmennta- grein, sem mestra vinsælda hef- ur notið síðustu áratugi. Hafa margir merkustu rithöfundar aldarinnar róið á þau mið svo sem Þórbergur, Guðmundur Daníelsson, Indriði G. Þor- steinsson og Matthías Jóhann- esen svo að dæmi séu nefnd. Kristján Oddsson, afi Guð- mundar Hagalíns, flutti frá Núpi að Lokinhömrum. Þá voru enn þeir tímar, að menn sóttust eftir vist á heimilum þar sem treysta mátti, að matarvist yrði góð. Umfram það átti vinnufólk ekki mörg tækifæri. En eftir því sem skútum fjölgaði urðu þeir fleiri sem áttu kost á vinnulaun- um svo að eitthvað mætti leggja fyrir. Þá mynduðust þorp, þar sem stundum mátti fá daglauna- vinnu. Það hafði sín áhrif á ráðningarkjör vinnufólks í sveitum. Þannig breyttist staða útvegsbænda á jörðum eins og Lokinhömrum. Útgerð og fisk- verkun tók að færast til þorp- anna sem voru að myndast. Gísli Kristjánsson bjó við aðr- ar ástæður í Lokinhömrum en voru, þegar Kristján faðir hans flutti þangað. Því flutti hann í Haukadal, síðan norður yfir (iSLAÐBERA VAnÍÁr) BIRKIMELUR, GRENIMELUR, HAGAMELUR, AÐALLAND, ÁLALAND, ÁLFALAND, ÁRLAND, BRAUTARLAND, KJARRVEGUR, Dýrafjörð að Ytrihúsum og svo til Reykjavikur. Guðmundur Hagalín þekkti þetta allt frá fyrstu hendi. Síðan var hann langt til tvo áratugi á ísafirði, þar sem fólk byggðanna í kring safnaðist saman í stærsta útgerðarbæ Vestfjarða. Þar var hann forystumaður í bæjarmál- um í kreppunni miklu á fjórða tug aldarinnar. Allt þetta er gott að vita til að skilja Guðmund Hagalín og skerf hans í bókmenntunum. Á það hefur verið bent, að Vest- firðingar standi í sérstakri þakk- arskuld við Guðmund Hagalín. Hann hafi með slíkum ágætum varðveitt í bókum sínum mörg einkenni og atvik sem séu sann- ar myndir úr mannlífi vestra. Seint verður ofsögum sagt af því. En fyrst og fremst ber ís- lenskri þjóð að minnast Guð- mundar Hagalíns og meta hann fyrir boðskap hollrar lífsnautn- ar, þar sem þróun persónuleika einstaklingsins skipar öndvegi. En jákvæð lífsnautn og þróun persónuleikans leiðir menn saman á brautir félagshyggju. Það var trú og boðskapur Guð- mundar Hagalíns. Þegar aldur færðist yfir Guðmund Hagalín kaus hann sér bústað á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði og kallaði Mýrar. Það var nafnið frá óðalinu vestra, þar sem móðir hans var alin upp og faðir hennar, afi og langafi, höfðu búið. Þarna dvaldi hann nær tvo síðustu tugi æviáranna með seinni konu sinni, Unni Aradóttur. Guðmundur Hagalín naut þess að blanda geði við menn og lagði mikið upp úr viðræðum, enda varð oft prýðileg skemmt- un af slíku, þar sem hann fór. Hann var sögumaður ágætur og hermigáfu hafði hann góða og glöggt auga fyrir því sem spaugi- legt var og afbrigðilegt. Því var hann flestum skemmtilegri sam- ferðamaður. Gróður og sandfok vottar, að á málþingum var hann íþróttum búinn langt umfram allt, sem venjulegt má kalla. Því beindu andstæðingar skeytum sínumað honum. Því stóð hann löngum þar sem harðastur var bardag- inn. Og þá var stundum við höfuðkempur að eiga. Það heyrir til frjálsri menn- ingu, að mál séu rædd frá fleiri hliðum en einni. Lengstum mun menn greina á hvað einkum beri að leggja áherslu á í boð- skap en allur skáldskapur er boðskapur, hvort sem menn viðurkenna það eða ekki. Guðmundur Hagalín var tals- maður og fulltrúi hinnar já- kvæðu leitar. Á tímum einsýnna öfga varð hann talsmaður hóf- semi og víðsýni. Því mun hans lengi minnst með þakklátri viðurkenningu. Því hæfir vel að ljúka þessum minningarorðum með ummælum hans sjálfs: „Hin heilbrigða hófsemi og hin vökula skynsemi eiga sem sé ávallt að vera í verki með tilfinn- ingahita og æsingu í íslenskum bókmenntum, hvort sem tilfinn- ingin er talin guðlegs eða mann- legs eðlis - eða æsingin er kölluð trú, ást, hugsjón eða skoðun." Sú stefnuskrá er í fullu gildi. H.Kr. Laugardagur 9. mars 1985 11 Sveinn Hjálmarsson bóndi Svarfhóli, Svínadal Fæddur 29/91901 ■ Það var orðið kvöldsett og dimmt í dalnum þegar við Gurrý frænka gengum veginn áleiðis að Svarfhóli. Mjólkurbíllinn hafði sett okkur af niður við brúna á Laxá og ég vissi ekki hvað var langt að Svarfhóli. Ég man að það læddist að mér geigur og kvíði við ókunna leið, við myrkrið og umhverfið. Þá allt í einu segir Gurrý frænka: „Mér heyrist ég heyra í dráttar- vélinni hans pabba". Það var orð að sönnu. Eftir smástund sáum við ljósið og brátt var Sveinn kominn og hlýlegar kveðjur og traust handtak ráku allan kvíða og geig á brott eins og sólskin. Þetta fyrsta atvik þegar ég sá Svein lýsir mannin- um öllum. Alltaf var han boðinn og búinn til þess að rétta öðrum hjálparhönd. Alltaf hugsaði hann meira um aðra en sjálfan sig. Hugsunarháttur hans er löng- um kenndur við aldamótakyn- slóð - það fólk sem nú sameinast moldinni - fólk sem „innheimti ei daglaun að kveldi". Fólk sem sýndi ást sína í verki til landsins. Ékki í skrumi froðusnakka stjórnmálanna - heldur breytti mýrum í tún, ósléttum þúfum í sléttar grundir, klæddi mela og börð og unni öllu lifandi, dýrum, blómum, grasi og börn- um - fólk lífsins. Sveinn var bóndi að starfi og einstaklega natinn og velvirkur bóndi. Hann varmjögframfara- sinnaður maður og keypti m.a. fyrstu dráttarvélina í Svínadal því honum skildist mjög snemma að það þurfti tækni til þess að vinna stórvirki. Foreldrar hans bjuggu á Svarfhóli frá því að hann var ungur drengur og hann bjó þar áfram eftir lát þeirra með Guð- jóni bróður sínum. Hann hlífði sér aldrei við verk en var mjög verkséður maður - eiginleiki sem öll börnin hafa erft. Hann vann hörðum höndum myrkr- anna á milli meðan hann hafði nokkra heiísu til. Sveinn var skarpgreindur. Öll mál reifaði hann af víðsýni án ofstopa en hélt þó alltaf fast við skoðanir sínar. Hann var sú mesta andstæða fjölmiðla- mötunar sem ég þekki. Skoðan- ir hans voru ævinlega sjálfstæð- ar byggðar á mikilli mygli. Hann lét sér annt um allt íslenskt - land og líf og las mikið um þau málefni. Það háði honum líklega a.m.k. framan að æfi hans að hann var fæddur með klofinn góm og skemmda vör sem olli því að hann gat ekki verið skýrmæltur. En skýrar rökvísar hugsanir hans hefðu svo sannar- lega átt rétt til þess að klæðast öðrum búningi. Eins og Sveinn sonur minn sagði um nafna sinn „Þeir sem vina bug á erfiðleik- um sínum verða sterkari ein- staklingar á eftir“. Tjáningarerfiðleikar málsins og það sem núna heitir víst útlitslýti komu þó ekki í veg fyrir að öll börn löðuðust að honum. Janfvel þau börn sem ekki eru allra skriðu fyrst í fangið á Sveini af öllum á heim- ilinu. Hann var sá mesti faðir sem ég nokkru sinni hef þekkt. Hann elskaði börn og dýr. Það gleymist aldrei að hafa komið í fjósið á Svarfhóli, hreint og snyrtilegt og sjá Svein strjúka hvítu köttunum sem var sérstakt kyn sem hann hafði mikið dálæti á. Sveinn er einn örfárra manna sem ég hef heyrt alla tala um með virðingu og hlýju. Hann á það allt skilið og miklu meira til. Hann var sönn fyrirmynd þess fólks sem lifir ekki sjálfu sér heldur öðrum og allt líferni þess einkennist af hógværð og skynsemi - þetta fólk sem er salt jarðar. Hamingja lífs hans fólst í eiginkonunni og börnunum en hann kvæntist Línu Arngríms- dóttur og þau eiga átta börn, þar af þrenna tvíbura. Öll börn- in eru á lífi nema annar af yngstu tvíburunum - lítil tepa sem dó skömmu eftir fæðingu. Börnin, auðæfin þeirra eru lík foreldrunum að mannkostum, samheldin fjölskylda sem hafa launað foreldrunum gott upp- eldi. Það segir sig sjálft að brjóta jörð til ræktunar, ala upp stóran barnahóp er ekki auðvelt verk. Á því heimili var aldrei talað um erfiði. Hjónin voru svo sam- hent og samstillt u'm allt að sú togstreita sem einkennir líf margra þeirra sem hafa meiri tíma - og meiri peninga fyrir- fannst ekki. Sveinn var boginn af erfiði og líkamlega útþrælaður maður en andinn var sífrjór og vökull og hefði ég ýjað að því að hann hefði slitið sér út um of, hefði hann líklega horft spurull á mig. Hann fegraði landið, skildi við rennislétt tún, velbyggt hus og miklar jarðbætur þegar hann varð að hverfa frá Svarfhóli. Hann dvaldi oft hjá Guðfinnu Soffíu dóttur sinni á Katanesi eftir að hann brá búi og fluttist til Reykjavíkur. Tengsl hans við sveitina rofnuðu aldrei. Það var mikil miskunnsemi að hann þurfti ekki að liggja langa sjúkralegu heldur kom hvíldin snöggt og fyrirvaralítið. í dag þegar moldin geymir líkama bóndans og erfiðismannsins fylgja honum miklarþakkirfyrir þá fyrirmynd sem hann skildi eftir. Minningin um skarp- greindan mann sem líklega fékk ekki að njóta gáfna sinna vegna líkamlegrar hömlunar, mann- kostamannsins sem var öllum heill, bóndans sem var prýði stéttar sinnar. Bóndi er bústólpi, bú er landstólpi, ■því skal hann virður vel. Það ætti að hafa þessi orð Jónasar oftar í huga. Moldin verður Sveini Hjálm- arssyni frá Svarfhóli létt sem lauf því óbugaður andi hans fylgir okkur. Ef eitthvað réttlæti er til held ég að það hafi verið tekið á móti honum með ljósi á því landi sem sumir nefna óvissu- og rökkurland, því hann bar alltaf Ijós skynsemi og hjálp- semi. Innilegar samúðarkveðjur elsku Lína mín til þín og barn- anna, barnabarnanna og ann- arra ættingja. Eftir lifir minning um „vamm- lausan hal og vítalausan“. Erna Arngrímsdóttir Afmælis- og minningargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og eða minningargreinum í blaöinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveim dögum fyrir birtingardag. Þær þurfa aö vera vélritaöar.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.