NT - 09.03.1985, Qupperneq 21
Útlönd
Laugardagur 9. mars 1985 21
Verðstöðvun
í Svíþjóð
Guðrún Garðarsdóttir, fréttaritari NT í
Svíþjóð.
■ Stjórn sænskra jafnaðar-
manna í Svíþjóð hefur tilkynnt
að hún muni setja á verðstöðvun
um óákveðinn tima frá og með
miðvikudegi í næstu viku.
Með verðstöðvuninni vill
stjórnin meðal annars stuðla að
því að verkalýðsfélögin sætti sig
við litlar launahækkanir í samn-
ingaviðræðum við atvinnurek-
endur sem hefjast í næsta mán-
uði. Stjórnin hefur sagt að
launahækkanir á árinu megi
ekki fara yfir fimm prósent.
Forystumenn verkalýðsfélag-
anna segjast fagna verðstöðvun-
inni en atvinnurekendur for-
dæma hana og segja hana for-
dæmislaus afskipti af samninga-
viðræðunum sem séu framund-
an.
Verðstöðvunin nær ekki til
innfluttra vara og atvinnurek-
endur mega hækka vörur sem
svarar verðhækkun á hráefni
eða hlutum sem þeir fá erlendis
frá og nota við framleiðsluna.
Markmið verðstöðvunarinn-
ar er fyrst og fremst að draga úr
verðbólgu í Svíþjóð sem var
8,2% á síðasta ári. Þá hafði
stjórnin sett sér það markmið
að verðbólgan skyldi ekki fara
yfir 4%. Nú segist hún stefna að
því að verðbólgan fari ekki yfir
3% á árinu. Það verða kosning-
ar í Svíþjóð í september á þessu
ári og jafnaðarmenn leggja ríka
áherslu á að ná afgerandi ár-
angri í baráttunni gegn verð-
bólgunni fyrir þann tíma.
■ Sprengja sprakk á fimmtu-
daginn í stórverslun við göngu-
götu í Dortmunt í V-Þýska-
landi. A.m.k. níu manns
særðust, tveir voru fluttir í
gjörgæslu. Blóðið rann um gólf
verslunarinnar. Að undanförnu
hafa mörg sprengjutilræði verið
framkvæmd í V-Þýskalandi.
Samtökin „Byltingarhóparnir“
lýstu ábyrgð á þrem sprengjutil-
ræðum í gær til stuðnings bresk-
um kolanámumönnum.
Allsherjar-
verkfall
í Bólivíu
La Paz-Reuter
■ Verkalýðssamband Bólivíu
hóf ótímabundið allsherjar-
verkfall í gær til að krefjast
hærri launa, verðstöðvunar og
meira framboðs á matvælum.
Talsmenn verkalýðssam-
bandsins segja að verði ekki
komið til móts við kröfur sam-
bandsins muni það komá upp
vegatálmunum tveim sólar-
hringum eftir að verkfallið
hófst. Verðbólga í Bólivíu er nú
rétt um 2.200 prósent á ári.
Stjórnvöld hafa hótað því að
lýsa yfir neyðarástandi verði
verkfallinu ekki aflýst og varn-
armálaráðherra landsins, Man-
uel Cardenas, segir að herinn
verði hugsanlega fenginn til að
hindra tilraunir fagfélagssinna
til að steypa stjórninni.
Herinn í Bólivíu afsalaði sér
völdum eftir 18 ára valdatíð
árið 1982 í hendur borgaralegr-
ar ríkisstjórnar undir forsæti
Siles Zuazo.
13% alls rafmagns
kjarnorkuframleidd
Vín-Reuler
■ Samkvæmt upplýsingum
Alþjóðakjarnorkustofnunar-
innar voru um 13 prósent alls
rafmagns í heiminum kjarn-
orkuframleidd í árslok 1984,
sem er einu prósenti meira en
árið þar á undan.
Á seinasta ári voru 33 nýir
kjarnaofnar sem framleiddu
31.000 megawött af rafmagni,
teknir í notkun. Heilarfjöldi
kjarnorkuofna til rafmagns-
framleiðslu komst þá upp í 344
í 26 löndum og heildarfram-
leiðslugeta þeirra var 219.115
megawött.
180 nýir kjarnaofnar voru í
smíði nú um áramótin og munu
þeir bæta 162.894 megawöttum
við framleiðslugetu kjarnorku-
vera heimsins þegar þeir verða
teknir í notkun.
Frakkar nota hlutfallslega
mest af kjarnorkuframleiddu
rafmagni. 58,7% af öllu raf-
magni, sem framleitt er í Frakk:
landi, kemur frá kjarnorkuver-
um. Kjarnorkuver framleiða
50,8% allrar raforku í Belgíu og
Finnar fá 41,1% allrar raforku
sinnar frá kjarnorkuverum.
13,5% raforku í Bandaríkjun-
um eru kjarnorkuframleidd en
aðeins um níu prósent í Sovét-
ríkjunum.
Alþjóðakjarnorkustofnunin
var stofnuð árið 1957 með það
fyrir augum að efla friðsamlega
notkun kjarnorkunnar.
Kolanámumenn studdir
með sprengjutilræðum
Þussiaraþorp. V-Þýskalandi: Reuter
■ Vinstrisinnuð neðanjarðar-
hreyfing hefúr lýst sig ábyrga fyrir
þremur sprengjutilræðum gegn
þýskum námuiðnaði. Samtökin
ásaka iðnaðinn um að hafa ekki
stutt verkfall kolanámumanna á
Bretlandi.
Samtök’in sem kalla sig „Bylt-
ingarhóparnir" sögðust hafa
framkvæmt árás á skrifstofur
félags námumanna í Bochum.
Þau gerðu einnig sprengjuárás á
skrifstofur námufyrirtækis í Ess-
en og skrifstofur skipafélags í
Hamborg.
í bréfi sem sent var v-þýskri
fréttastofu segir að þeir aðilar
sem ráðist var á séu „grafarar"
sem hafí átt samstarf við „breska
kolakapítalista‘_‘.
Að sögn lögreglunnar brotn-
uðu rúður og hurðir eyðilögðust
í sprengingunum í Bochum og
Essen, en enginn særðist.
Lögreglan í Hamborg stað-
festi ekki að sprengja hafi valdið
skemmdum hjá skipafélaginu,
en sagði það mögulegt.
í gær var lögreglunni í Essen
tilkynnt í símtali að fleiri
sprengjur yrðu sprengdar á
næstunni. Sá er hringdi lét ekki
nafns síns getið.
Eþíópía:
Frakkar
auka
aðstoð
París-Reulcr
■ Frönsk stjórnvöld hafa
ákveðið að senda 8000 tonn
af hveiti til Eþíópíu til við-
bótar þeim 5000 tonnum
sem Eþíópíumönnum hafði
þegar verið lofað.
Að auki mun franska
stjórnin auka fjárstuðning
sinn til Eþíópíu um upphæð
sem á að nægja til að kaupa
100.000 tonn af korni til
viðbótar. Frakkarmunuein-
nig gefa Eþíópíumönnum
15 millj- franka (rúml. 60
milljónir ísl.kr.) í þróunar-
aðstoð og til kaupa á flutn-
ingatækjum til að koma mat-
vælum til hungursvæðanna.
Belgía:
Kynhverfir
ámótipáfa
Ghent-Reuter
■ Hópur kynhverfra Belga
hefur stofnað nefnd til að
andæfa heimsókn Jóhannes-
ar Páls páfa til Belgíu í maí.
Talsmaður nefndarinnar
segir að kynhverfir óttist að
heimsókn páfans verði til að
efla íhaldssöm öfl og auka
undirokun kynhverfa. í yfir-
lýsingu frá nefndinni segir
m.a. að fjandskapur páfa og
kaþolsku kirkjunnar í garð
kynhverfra hafi leitt til mis-
réttis sem m.a. birtist í því
að kynhverfum kennurum
hafi verið vikið úr störfum í
einkaskólum.
Castro vill vingast
við Bandaríkjastjórn
Havana, Kúba-Reuter
■ Kúbumenn virðast
staðráðnir í að bæta sam-
skiptin við Bandaríkin, en
vcstrænir sendiráðsfulltrúar
í Havana efast um árangur.
Sendiráðsfulltrúarnir
sögðu að áætlun Kúbu-
manna um að kalla heim 100
hernaðarráðgjafa frá Nicar-
agua sem var opinberuð í
vikunni sé nýjasta tilraun
Kúbumanna til að bæta sam-
skiptin við Bandaríkjamenn
og draga úr spennu í Mið-
Ameríku.
Þeir sögðu að Fidel Castro
leiðtogi kúbönsku þjóðar-
innar og Daniel Ortega,
forseti Nicaragua, hefðu
komið sér saman um brott-
flutning ráðgjafanna, á
leynilegum fundi í Havana
fyrir tveim vikum. Hernað-
arráðgjafarnir eiga að fara
frá Nicaragua í maí.
Sendiráðsfulltrúarnir
sögðu að þýða í samskiptum
ríkjanna sé ólíkleg eftir 25
ára kalt stríð. Bandaríkja-
menn krefjast þess að tengsl
Kúbu og Sovétríkjanna
rakni og að Kúbumenn hætti
að „flytja út“ byltingar.
■ Að minnsta kosti 40 manns létust í öflugri sprengingu í hverfi múhameðstrúarmanna í Beirút í gær. Þessi mynd var tekin skömmu
eftir sprenginguna þegar flestir þeirra 150 manna, sem særðust í sprengingunni, höfðu verið fluttir á sjúkrahús. Eins og sjá má á myndinni
hrundu útveggir á fjölbýlishúsi rétt hjá þar sem sprengingin varð. Símamvnd-POLFOTO
Blóðbað í Beirút
Mesta mannfall í sprengjutilræði í 16 mánuði
Beirut-Reuter
■ Fjörutíu manns létust og
150 særðust í Líbanon í gær
þegar bílasprengja sprakk á
fjölförnu stræti í hverfi múham-
eðstrúarmanna í Beirút í gær.
Sprengjan sprakk nærri heim-
ili strangtrúarklerksins Sheikh
Mohammad Husseins Fadallah,
en hann tilheyrir trúflokki síta
og er einn helsti leiðtogi þeirra.
Þetta er mannskæðasta
sprengjutilræðið í Líbanon í 16
mánuði.
Eftir sprenginguna ruddust
stjórnarhermenn með sjálfvirka
riffla út á göturnar og opnuðu
leið gegnum mannþröngina fyr-
ir sjúkrabíla með því að skjóta
upp í loftið. Sjúkrahús í Beirút
fylltust af særðu fólki og út-
varpsstöðvar í Beirút útvörpuðu
neyðartilkynningum til fólks um
að það gæfi blóð.
Ekki er enn vitað hverjir bera
ábyrgð á sprengjutilræðinu.