NT - 10.03.1985, Side 15
Sunnudagur 10. mars 1985 f 5
M Vergeltungswaffe Nr. 1 eða V-l, var ómönnuð eldflaug, 8 metra löng sem vó um tvö tonn, þar af var eitt tonn sprengihleðsla.
V-1 var útbúin framknúnum bensínmótor, sem gat knúið flaugina á 600 km hraða. Hún dró allt að 250 km.
M Fyrstu loftárás Rússa var beint gegn vörnum Þjóðverja, en bitnaði mest á Dönum og þegar sprengjuflugvélarnar sneru aftur
í lirinum var búið að flytja alla íbúa á brott. T.v. sjást börn sem leitað hafa skjóls í kirkju og t.h. höfnin í Nexö þar sem einn
maður fórst og tugir skipa og fiskibáta löskuðust eða sukku.
2U. þúsund þýskir hermenn þarna,
þar af deild úr svokölluðum dauða-
sveitum.
Borgundarhólmur
í sprengjuregni
Fréttunum um uppgjöfina 4. og 5.
maí var fagnað á Borgundarhólmi
eins og annars staðar í Danmörku.
En einmitt þegar stríðinu átti að vera
lokið, kom óvænt áfall. Þjóðverjar
höfðu ákveðið að gefst upp fyrir
Bretum, en ekki náðist til neins
fulltrúa þeirra og von Kemptz neitaði
að gefast upp fyrir Rússum. 7. maí
skipaði hann loftvarnarskyttunum í
Nexö að skjóta á rússneskar eftirlits-
flugvélar, sem flugu yfir eyjuna að
morgni þess dags.
En um eitt-leytið sama dag komu
flugvélarnar til baka og nú fylgdu
þeim sprengjuflugvélar sem losuðu
farm sinn yfir Nexö og Rönne.
Árásin kom íbúunum algjörlega á
óvart, þar sem þeir voru að enda við
að fagna friði. I Nexö féll einn Dani
en í Rönne níu, þ.á.m. kafteinn
Holm, kona hans og tvö börn sem
sátu við hádegisyerð, en daginn áður
hafði Holm verið hylltur sem stríðs-
hetja, þegar hann sneri aftur til
Rönne. Seinna sama dag réðust rúss-
neskar flugvélar á þýsk skip sem voru
á leiðinni frá Rönne. Eftir árásina
köstuðu flugvélarnar niður dreifimið-
um, þar sem Þjóðverjar voru hvattir
til að gefast upp fyrir ki. 10 næsta
morgun.
Enda þótt tilkynnt hefði verið skil-
yrðislaus uppgjöf Þýskalands, neit-
aði von Kamptz að gefast upp fyrir
öðrum en Englendingum, og þar sem
hann fékkst ekki af þessari skoðun, var
morguninn 8. maí fyrirskipaður brott-
flutningur íbúa frá Nexö og Rönne.
Fimmtán mínútum áður en frestur
Rússanna rann út, rigndi íkveikju- og
tundursprengjum yfir hina yfirgefnu
bæi. Þegar íbúarnir, fjórum dögum
síðar, fengu leyfi til að snúa heim, var
varla nokkurt hús óskemmt og margir
fundu hús sín sem rústir einar.
Rússarnir koma
En á meðan á þessu stóð hafði
Wuthmann hershöfðingi,sém var
flóttamaður á eyjunni, tekið stjórnina
úr höndum von Kamptz og gefist upp
fyrir sveitum Rússa sem settar voru á
land í Rönne. Að viku liðinni var lokið
við að flytja alla Þjóðverja frá Borg-
undarhólmi. Engu að síður héldu
Rússar áfram að flytja her og hergögn
til eyjarinnar og sýndu ekkert farar-
snið á sér. Margir óttuðust því að
Borgundarhólmur yrði þrætuepli
stórveldanna að styrjöldinni lokinni,
en raunin varð önnur. í mars 1946
tilkynntu Rússar öllum að óvörum að
þeir myndu yfirgefa Borgundarhólm,
og 5. apríl fór Jakusjov hershöfðingi
og samstarfsmenn hans frá Rönne.
Þeir voru hylltir af íbúunum, bæði
vegna þess að framkoma Rauða hers-
ins var svo til árekstralaus og að
Borgundarhólmur var loksins laus
við hersetu.
Enduruppbygging tafðist vegna
mikilla hækkana á launurn og vöru-
verði, ásamt skorti á vinnuafli og
byggingarefni. Komist var hjá neyð,
vegna þess að Svíar gáfu 300 timbur-
hús, auk þess sem söfnuðust í Dan-
mörku milli sjö og átta milljónir d.kr.
Dró það töluvert úr þeirri beiskju
sem hafði gripið íbúa Borgundar-
hólms, sem urðu fyrir þeirri reynslu
að mega þola loftárásir meðan önnur
héruð í Danmörku fögnuðu stríðslok-
um.
Gísli Friðrik Gíslason
VALFODUR■■
INNIHALDSRIKT 06
FÓDURSPARANDI
Ifalfóöur er fljótandi dýrafóöur,
framleitt úr nýjum fiski. Við fram-
leiðsluna er ekki notast viö hita, sem
skaðar næringargildi hráefnisins.
Ifalfóður er fóðursparandi, vegna
þess hve prótein í öðru fóðri nýtist
vel, sé Valfóður gefið með.
V.»
ralfóður er mikilvaegt með öðru
fóðri, vegna líffræðilegs gildis þess.
V
'alfóður er ódýr, innlend fram-
leiðsla.
•eitið nánari upplýsinga.
VID SETJUM GEYMSLUTANK HEIM
Á BÆ, ÞÉR AD KOSTNADARLAUSU.
P.O. BOX 269
222 HAFNARFJÓRÐUR '
SIMI: 91-651211
Sl'MI i VERKSMIOJU: 92-2273
HEÐiNN
SEUAVEGI 2, SÍMI 24260.
Öll almenn prentun
Litprentun
Töivueyðublöð
Tölvusettir strikaformar
Hönnun # Setning
Filmu- og plötugerð
Prentun • Bókband,
PRENTSMIÐJA
n C^dda h f.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR, SÍMI 45000