NT - 10.03.1985, Blaðsíða 19

NT - 10.03.1985, Blaðsíða 19
Sunnudagur 10. mars 1985 19 ■ Það er þýski Ijósmyndarinn Otto Umbehr sem við kynnum lesendum í Ljósbroti að þessu sinni, en hann merkti myndir sínar „Umbo“, stutt og laggott. Umbo var fæddur árið 1902 og hann var einn þeirra mætu ' listamanna sem hlutu uppeldi sitt í Bauhausskólanum fræga í Weimar, sem Walter Gropius veitti forstöðu. Það má segja að Bauhausskólinn ,hafi brúað það bil sem verið hafði á miili listamannsins og hins tæknilega fullkomna listiðnaðarmanns og áhrifa hans hefur gætt í evrópskri og bandarískri bstsköpun allt fram á þennan dag, en skólinn fluttist að hluta til Bandaríkjanna eftir að stjórn nasista bannaði starfsemi hans 1933. Umbo vann bæði sem málari og Ijósmyndari og á síðarnefnda sviðinu fékkst hann við auglýsinga- og „portrait" Ijósmyndun. Hann átti þátt í framþróun blaðaljósmyndunar í Þýskalandi ásamt Simon Guttman og Dephot-hópnum. Því miður eyðilagðist mikill hluti verka hans í heimsstyrjöldinni, sem einnig setti punktinn aftan við áðurnefnt samstarf. Eftir stríðið vann hann um hríð við frétta- og auglýsingaljósmyndun sem áður, en vann við kennslu í Ijósmyndalist frá 1957-1974. Lítum á myndirnar hér með. Gata er séð úr lofti, fólkið er eins og óverulegar myndir á ferli um undarlega mynstraða jörð. Plankarnir sem byrgja uggvænlega svart ginnungagap eru fallvölt brú lífsins yfir hyldýpi dauðans. Sjáið götumyndina frá Karstadt í Berlín frá 1928. Hver augnabliksmynd á sér ótal hliðar og ranghverfur. Letrið á glerinu minnir á augað sem horfir til baka, - inn í sjálft sig. Meðal frægari „portrait" mynda listamannsins er „ Akt“ frá 1930. Umbo var meistari skynvillunnar. Hann notaði myndavélina til þess að gæða mótívið ákveðnu tvíræði. I stað þess að Ijósmyndin sé leið til þess að festa og njörva niður andartakið fær áhorfandinn á tilfinninguna að hreyfingunni sé ekki lokið, ekki öll sagan sögð.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.