NT - 10.03.1985, Blaðsíða 21
©s
--OZr
OU
>!• jfjcrr; .Ot
„Dökkhært sprund með
djarfa lund og kalda...“
Kveður við annan tón í spilaspádómum
■ Lesendur sögukornsins fá nú að heyra síðari hluta
spilaspádónra Jónasar frá Torfumýri í Skagaíirði og kveður
nú við nokkuð annan tón þegar ort er um hina svörtu liti.
Spádómar þessir. sem ortir eru einhverntíma á síðari hluta
19. aidar eða snemma á þessarri, eru komnir til undirritaðs í
slitnu handriti sem átti skagfirskur bóndi á þessari öld.
Hvort þessi kveðskapur er þar í eiginhandriti höfundar er
óljóst en undir vísnabálk þessum stendur skrifað; Jónas
Jónasson, sem er nafn höfundar. En þaðgat uppskrifari eins
sett undir til þess að lesandi vissi hvaðan fróðleikurinn var
kominn.
í síðasta sögukorni gat að líta spádóma sem áttu við þegar
leikmaður dró tígul eða hjarta og voru flestir jákvæðir. Pað
kveður við annan tón fyrir þann sem hittir á svart spil eins og
vísurnar hér bera með sér.
„Þá mig lísa laufi físa náir.
ásinn tjáir jm' vel þeink.
þn að fáir nýjan skeink.
Svo mun spaöa síðast það ég ræði,
hjér á líðir hafa grun,
hræðslu þíða ásinn mun.
Meinar líður laufa þýðir kóngur
einn óreglu mildnn mann
mörk sem dregla tæla kann.
Kóngur spaða kvnnir blaðið þíðir,
trúan vin einn slórgeröann.
Drottning laufa h'tt er dauf í bragði
lindinn klæða lífuð nóg,
lausgerð bæði og drambsöm þó.
hjóna skaðar heiðurinn.
drol
Gosinn hingað greilt peninga færir
iggur pláta öflugur
einn er kátur sjómaður.
Tíann bara boðar varasemi,
segja hyggjum hana vjer,
hættu liggja fyrir þér.
Laufa nvjan lísa því mun vilja,
hjartað bindi harmur nú,
hart brigðlindi reynir þú.
Gætum að hvað gosinn spaða segir,
hann þvi' spáir hart að þú,
hryggbrot fáir bráðum nú.
Týjan spaða tjáir það í blaði,
ást þín mun mislukkast
mínum grun í liggur fast.
Spaða nýjan spáir þn' án vaía,
bregðist vonir þínar þjer,
þettað tíðum svona fer.
geta svikið loforðinn.
Sjöið þetta sagt í frjettum getur,
þú hvað vilt mun framgang fá,
fylgja stillt þó varúð má.
þig að særi þraulólin,
þú ástkæran missir vin.
Sjöið spaða segir maður góður,
burtu hrindist heilsa nú,
hart brigðlindi reinir þú.
Jónas Jónasson.
Spádómar þessir eru þá á enda. Hér hefur verið valin sú
leið að birta vísur þessar næsta orðrétt til þess að lesendur
sjái hvernig stafsetningu afar okkar og langafar vöndust við
að rita. Flestir kartmenn voru þá skrifandi og margar konur
en fólk skrifaði eftir stafanna hljóðan án þess að hafa við
nokkra reglu að styðjast. Notkun á yfsiloni virðist harla
handahófskennd og gætir þar ekki alltaf samræmis í þessu
handriti. Hefur það sjálfsagt ekki þótt tiltökumál á þessum
tíma.
En það er annað sem þessir spádómar sýna okkur. Þeir
skýra þokukennda mynd okkar af baðstofulífi fyrri alda.
Hvað var þar gert sér til dundurs ( einangrun og kolsvörtu
skammdegi inn til húnvetnskra og skagfirskra dala? Jú spáð
Lausn á sídustu
krossgátu
i
Sunnudagur 10. mars 198{S 21
M Tító hefur nú myndað héraðsstjórn í Júgóslavíu. Hann heilsar hér upp á Winston Churchill, forsætisráðherra Breta.
Bandamenn streyma yfir Rín
■ Áfram bruna herdeildir
Bandaríkjamanna fyrir 40 árum
og hinn 4. mars er 1. herinn
kominn að Rín norðan við
Köln. Sama dag hertekur 14.
her Breta Meiktila sunnan við
Mandalay. Nú sérfyrirendann
á átökunum um Iwo Jima, því
þennan dag getur hætt komin
B-29 sprengjuflugvél í fyrsta
sin hagnýtt sér lendingarað-
stöðu þar.
Nú hafa veður skipast í lofti
í Finnlandi, því Finnar segja
nú vopnabræðrum sínum,
Pjóðverjum stríð á hendur, en
stríðsástand hafði raunar ríkt
á milli þessara aðila frá því í
september 1944.
Það er hinn 5. mars sem
Bandaríkjamenn halda inn í
úthverfi Kölnar. RAF flýgur
sprengjuárásarferðir yfir olíu-
vinnslustöðvarnar á Gelchenk-
irchen.
Ekki er tíðindalaust á aust-
urvígstöðvunum og hinn 6.
mars tekur Rokossowsky virk-
ið Grudziadz í Póllandi sem
verið hafði í umsátri um hríð.
Þjóðverjar hrinda nú í fram-
kvæmd áætluninni „Frúhling-
serwachen," (Vorvakning)
sem miðar að því að endur-
heimta Búdapest. SS skrið-
drekasveitir sækja fram og
hafa komist 32 kílómetra þann
8. mars.
Köln er nú að fullu hertekin
af Bandaríkjamönnum.
Stórkostlega þýðingu hefur
það fyrir Bandamenn, þegar 1.
her Bandaríkjamanna tekur
Ludendorff-brúna, óskemmda
en brú þessi lá yfir Rín við
Remagen. Nú streymir fyrsti
herinn yfir fljótið.
Suður í Burma taka Kínverj-
ar Lashio, sem er við hinn
svonefnda „Burma-veg."
Tító myndar héraðsstjórn í
Júgóslavíu.
2. her Breta tekur bæinn
Xanten á vesturvígstöðvunum
jsann 8. Nú standa bandamenn
á Rínarbökkum frá Nijmegen
til Koblenz.
lndverskir skriðdrekar aka
inn í Mandalay.
Það gerist einnig þann 8.
mars að V-2 flugskeyti fellur
niður á Farrington Market í
London og grandar þar 123
mönnum.
Þjóðverjar gera áhlaup á
höfnina í Granville í Nor-
mandy frá smáeyjum utan
strandar. Þeim tekst að sökkva
fjórum skipum og frelsa 67
þýska fanga.
„Eldáhlaup í mars,“ heitir
gríðarleg loftárás sem Banda-
ríkjamenn gera á Tokyo föstu-
daginn 9. mars. 279 „fljúgandi
virki“ af stærstu gerð varpa
1667 tonnum af napalm og
olíusprengjum á borgina. Eld-
ar geisa á 24 ferkílómetra
svæði og farast 84 þúsund
manns, en 102 þúsund særast.
Milljón manns missa heimili
sín. Áþekkar árásir eru gerðar
á Nagoya, Osaka og Kobe.
Þennan sama dag reka Jap-
anir stjórn (Vichy) Frakka í
Indo-Kína frá völdum og setja
á fót leppstjórn, sem kallast
„Keisararíkið Annam.“
Þeir Patton og Hodges (1.
og 9. herinn) mætast með lið
sitt við Remagen.
• Bresk herdeild á Kyrrahafsvígstöðvunum