NT - 13.03.1985, Page 4
Miðvikudagur 13. mars 1985 4
Fréttir ~~~~~~~~
Hjónin Esther Magnúsdóttir og Halldór Einarsson.
Litið á vélakostinn í nviu Hennes-fataverksmiðjunni.
Um 150 umsóknir um 17
stöður í verksmiðjunni
■ í tilefni af opnun Hennes
var gestum sýndur sportfatnað-
ur frá Henson-verksmiðjunum.
NT-myndir Stefán Lórus Pálsson.
Nýrri fata-
verksmiðju
Hennes hf.
fagnað
á Akranesi:
Frá fréttaritara NT á Akrancsi, S.L.P.:
■ Ný fataverksmiðja á Akra-
nesi var formlega opnuð föstu-
daginnS. marss.l. Verksmiðjan
er í eigu Hennes hf. sem er
dótturfyrirtæki hins velþekkta
fyrirtækis Henson í Reykjavík
og rekiðaf Halldóri Einarssyni.
Hennes hf. bauð til veislu í
húsakynnum verksmiðjunnar á
Akranesi. Þar lýsti Halldór Ein-
arsson aðdragandanum aö
stofnun Hcnnes og byggingar-
sögu verksmiðjunnar. Sagði
hann að á síðasta ári hefði hann
ákveðið að auka framleiðslu-
getu fyrirtækisins, sem rekur
verksmiðjur í Reykjavík og á
Selfossi, og hefði Akranesbær
boðið upp á ákjósanleg skilyrði.
Framkvæmdir hófust fyrir um 6
mánuðum. Hús verksmiðjunn-
ar er um 800 ferm. og er reist úr
steinsteyptum einingum sem
framleiddar eru af Skipasmiðju
Þorgeirs og Ellerts. Mjög góð
reynsla hafði fengist af þess
háttar einingum við Fjölbrauta-
skólann á Akranesi. Verkfræði-
og teiknistofan á Akranesi
hannaði húsið eftir hugmyndum
eigenda. Er það í alla staði
vistlegt og bjart. Burðarvirki í
þaki eru úr I ímtré og vegghleðsl-
ur úr sænskum múrsteini og
setur það mjög aðlaðandi svip á
vinnustaðinn.
Sautján manns hefja störf hjá
Hennes við að framleiða íþrótta-
og sportfatnað, en gert er ráð
fyrir að þegar þjálfun þeirra
verður komin vel á veg verði
starfsfólki fjölgað í allt að 40-50.
Mikil ásókn er í störf hjá Henn-
es hf. Þannig sóttu um 150
manns um störf þegar auglýstar
voru þessar 17 stöður. Halldór
kvaðst gera ráð fyrir mun meiri
stöðugleika í starfsmannahaldi
hér en á stór-Reykjavíkursvæð-
inu.
Sigrún Ciausen, formaður
kvennadeildar Verkalýðsfélags
Akraness sagði í ávarpi, að hún
fagnaði þessu nýja fyrirtæki og
væri vonandi að fleiri fylgdu
þessu myndarlega fordæmi
Hennesar. Síðan var efnt til
tískusýningar á vörum frá
Henson. Forstöðumaður verk-
smiðjunnar verður Skagamað-
urinn Sigurður Lárusson.
■ Allir togararnir sem þátt
taka í rannsóknunum eru smíð-
aðir í Japan fyrir um 12 árum.
Hér er einn þeirra, Drangey SK
1.
■ Allar upplýsingar frá leið-
angrinum verða jafnharðan
færðar inn á tölvu til úrvinnslu.
Hér er Þórunn Þórðardóttir
deildarstjóri ásamt þremur
starfsmönnum stofnunarinnar.
NT-mynd GE
Góð samvinna sjómanna
við Hafrannsóknarstofnun
■ Mikil og góð samvinna tókst
milli sjómanna og Hafrannsókn-
arstofnunar um undirbúning
fyrir umfangsmiklar rannsóknir
Hafrannsóknarstofnunar sem nú
standa yfir.
í fréttatilkynningu frá stofn-
uninni segir að skipstjórar úr
öllum landshlutum hafi valið
helming þeirra 600 staða þar
sem togað verður en fiski-
fræðingar hina.
Fimm togarar taka þátt í
rannsóknunum, og verður eins
og áður segir, togað á 600
stöðum umhverfis landið, ailt
frá grunnslóð og út á 500 metra
dýpi.
Um borð í hverjum togara
eru fimm starfsmenn Hafrann-
sóknarstofnunar sem safna upp-
lýsingum. Þær eru settar jafn-
harðan inn á tölvu til að flýta
úrvinnslu.
Tilgangur þessara rannsókna
er að afla meiri vitneskju um
þorskstofninn og aðra
botnfisktegundir en nú er fyrir
hendi segir í fréttatilkynning-
unni.
Ef vel tekst til nú, stendur til
að endurtaka rannsóknirnar ár-
lega með stöðluðum veiðarfær-
um.
Togararnir, sem þátt taka í
rannsóknunum, eru Páll Páls-
son ÍS 102, sem verður fyrir
Vesturlandi og Vestfjörðum,
Arnar HU 1, sem veröur fyrir
Norðurlandi, Drangey SK 1,
sem verður við norðaustanvert
landið, Hoffell SU 80, við sunn-
anverða Austfirði og Suðaust-
urland, og Vestmannaey VE
54, sem verður út af Suðvestur-
landi.
Undirbúningi leiðangursins
stjórnaði Ólafur K. Pálsson
fiskifræðingur, en leiðangurs-
stjórar um borð i togurunum
eru fiskifræðingarnir Viðar
Helgason, Sigfús A. Schopka,
Guðni Þorsteinsson. Ólafur K.
Pálsson og Einar Jónsson.
Hávaðamengun út af flugi á Norðurlöndum:
Verði dregið verulega úr
henni fyrir árið 2000!
■ Vandamálin sem skapast af
háværri flugumferð eru nú orðin
svo umfangsmikil að við verð-
um að komast að samkomulagi
um framkvæmdir til að draga úr
hávaðanum, sögðu umhverf-
ismálaráðherrar Norðurland-
anna á sameiginlegum fundi sín-
um á þingi Norðurlandaráðs.
Urðu menn sammála um að
draga yrði verulega úr hávaða-
mengun vegna fiugs fyrir árið
2000, sérstaklega í grennd við
stærri flugvelli á Norðurlöndun-
um.
Komust ráðherrarnir að
þeirri niðurstöðu að vinna bæri
að sameiginiegri áætlun með
þetta í huga, sérstaklega bæri
að vinna að því að endurnýja
núverandi flugflota með vélum
sem væru hljóðlátari. Var sam-
þykkt að gera skýrslu um málið
í samvinnu við flugumferðar-
stjórnir viðkomandi landa og
þau flugfélög sem málið snerti.
Það kemur fram í tilkynningu
frá fundinum að nærri 1 milljón
manna búi á svæðunum í grennd
við stærstu flugvellina og valdi
hávaði frá flugi þeim óþægind-
um daglega. Vegna þess hversu
samtengt flug er á Norðurlönd-
um er talið eðlilegt að vinna að
þessu máli í sameiningu. Bent
er á að flugfélög á Norðurlönd-
um muni á næstu 10 árurn
endurnýja meginþorra flugflota
síns, til að spara eldsneyti og
draga úr hávaðamengun, og
telja umhverfismálaráðherrarn-
ir rétt að reyna að hraða sem
mest þeirri endurnýjun.
Ferðast fyrir
Þjóðhátíðargjöf
■ Veitt hefur verið fé úr
sjóðnum Þjóðhátíðargjöf
Norðmanna í níunda sinn en
fyrst var veitt úr honum 1976.
Til úthlutunar í þetta sinn
voru 512.000 krónur, og fengu
eftirtaldir aðilar ferðastyrki:
Sérkennarar við grunnskóla
Reykjavíkur. ungtemplarar,
Þjálfunarskóli ríkisins, Hjálpar-
stofnun kirkjunnar, Björgunar-
hundasveit íslands, Norsku-
kennsla Miðbæjarskóla, Hrafn-
ista, Sjúkrahótel Rauða kross-
ins og Sálfræðideild skóla.
Sjóðurinn varð til við sam-
þykkt norska stórþingsins 1974,
er þingið færði Islendingum 1
milijón norskra króna í ferða-
sjóð. Sjóðurinn er geymdur í
Noregi og ávaxtaður þar.
Vaxtatekjur sjóðsins eru síðan
til úthlutunar.