NT - 13.03.1985, Page 12
líl'
Miðvikudagur 13. mars 1985 12
Vidtal
gert var. Og þegar menn eru að tala um að
einhver hafi borið byrðarnar af minnkandi
verðbólgu þá er enginn vafi á því að sjávarútveg-
urinn hefur líka gert það.
Hins vegar hefur iðnaðurinn yfirleitt gengið
vel og ársfjórðungsleg bréf Félags íslenskra
iðnrekenda bera það með sér.
Og í fyrra, þá vildi fiskvinnslan fella gengið
meira en iðnaðurinn gerði ekki þá kröfu.
Húsnæðismál,
lánskj ara vísitala
- Aðgerðir í húsnæðismálum?
í þessum 25 atriðum, sem við kynntum nýlega
og voru nú aðeins vinnuplagg fyrir ríkisstjórn-
ina, þá eru ýmis atriði sem þegar eru afgreidd.
Til dæmis þetta með ráðgjafaþjónustuna. Önnur
eru núna í vinnslu, t.d. þetta með sérstakan
skattafrádrátt fyrir þá sem eru að kaupa hús-
næði. Það er mál sem nú er verið að vinna að
frumvarpi um. Og ég geri ráð fyrir því að það
verði lagt fyrir ríkisstjórnina mjög fljótlega.
- Og tekur gildi á þessu ári?
- Því skal ég nú ekki svara. Það er ákaflega
erfitt að koma með skattafrumvarp, þó það hafi
nú verið tíðkað að koma með frumvarp á
skattaárinu.
- Nú hefur þessi möguleiki, að lengja lánin,
verði gagnrýndur og það er sagt að það gagni
húsbyggjendum lítið, en meinið liggi í lánskjara
vísitölunni. Er það rétt að þú hafír látið reikna
út hvað það mundi kosta ríkissjóð að hverfa frá
lánskjaravísitölunni?
- Já, það er búið að vinna mjög mikið í því,
bæði á mínum vegum og á vegum félagsmálaráð-
herra. Jú, það liggja á borðinu mínu ákveðnir
útreikningar á því.
Ég hef sagt sjálfur, að við ættum að afnema
lánskjaravísitöluna. Og við eigum þá að fara
með lán í húsnæðiskerfinu á fasta vexti og nota
framlag ríkissjóðs til að greiða vaxtamun ef það
er nauðsynlegt.
Þetta er gert í einhverjum mæli í dag, því að
t.d. það fjármagn sem lífeyrissjóðirnir lána í
þetta kerfi er með hærri vöxtum en lánað er út
á, þannig að ríkisframlagið greiðir þann mun.
En vandi húsbyggjenda er fyrst og fremst frá
liðnum tíma. Og það er ekki þessari ríkisstjórn
að kenna, þót NT hafi sagt það í leiðara.
í bréfi kjararannsóknarnefndar hvað eftir
annað, meðal annars nýútkomnu, þá er kaup-
mátturinn reiknaður. Og þar kemur í Ijós að
hann fór að falla 1982, og á milli fyrsta og annars
ársfjórðungs 1983 var hann fallinn úr 107 og
niður í 92. Og síðan áfram niður I 82 á síðasta
ári.
Og vitanlega var hrunið í þjóðarframleiðsl-
unni það sem gerðist og fyrri ríkisstjo'rn var
neydd til þess að skerða kaupmáttinn í nokkrum
takti við það. Þessi ríkisstjórn gerði það líka.
Þarna myndaðist vandinn. Hvernig ætla menn
að lagfæra þetta? Ég held að það sé alveg
vafalaust að með því þó að lengja lánin þá sé
mönnum hjálpað, því þá dreifist þessi viðbótar-
byrði á lengri tíma.
Við vitum ekki enn hvað mundi kosta að taka
þennan mun, og nota pennastriksaðferðina
hans Alberts og strika hann út. Og þarna verður
að gæta að því að sumir hafa staðið í skilum og
lagt mikið á sig, selt bílinn sinn og annað og
staðið í skilum. Eiga þeir þá einskis að njóta?
Eiga það bara að vera þeir sem ekki hafa staðið
í skilum, sem eiga að fá þennan bagga, á einn
máta eða annan, brott numinn.
Málið er alls ekki einfalt. Það er mjög góð
hugmynd sem félagsmálaráðherra er að vinna
að núna, sem er svokölluð biðreikningahug-
mynd. Hún felst í því að þegar kaupmáttur
eykst meira en lánskjaravísitala þá borgi menn
meira inn á biðreikning, og fengju þar fulla
vexti. Þegar kaupmátturinn dettur niður fyrir
lánskjaravísitöluna þá yrðu þessir reikningar
notaðir til að greiða inn á lánin, og jafnvel
meira. Það gæti skapast skuld á þessum reikn-
ingum.
Vandinn er síðan hvernig gerir maður þetta
aftur í tímann.
Ég álít hins vegar að það sé svo stórt
vandamál að ríkisvaldið hljóti að taka á þessum
málum, og þá kannski í samráði við verkalýðs-
hreyfinguna.
Finnar ?erðu þetta
67. Afnámu verð-
tryggingu fjármagns
og borguðu muninn
úr ríkissjóði í nokkur
ár. Við vitum ekki
nákvæmlega hvað
þetta myndi kosta,
enda fer það allt eftir
því hvað verðbólga er
mikil.
- En hefurðu tölur um hvað það myndi kosta
ríkisvaldið að hverfa frá lánskjaravísitölu og
fara að nota t.d. byggingarvísitölu?
- Ef lánskjaravísitölu verður breytt þannig
að hún byggist eingöngu á byggingavísitölu,
bæði innlán og útlán, þá verður það út af fyrir
sig engin breyting.
En fyrri skuldbindingum verður ekki breytt.
Það er hægt að breyta upp á framtíðina, hætta
að nota lánskjaravísitölu, en þá er það spurning
hvort ríkissjóður, eins og í gegnum húsnæðis-
kerfið, ætlar að lána á vöxtum undir verðbólgu-
stigi og borga muninn. Það fer allt eftir því hvað
verðbólgan er mikil.
Finnar gerðu þetta ’67. Afnámu verðtrygg-
ingu fjármagns og borguðu muninn úr ríkissjóði
í nokkur ár. Við vitum ekki nákvæmlega hvað
það myndi kosta, enda fer það allt eftir hvað
verðbólga er mikil.
Þeir náðu síðan verðbólgunni hratt niður í
4-5% og eru komnir með raunvexti og hafa
engar áhyggjur af því síðan, svo það var góð
reynsla.
Ég hef satt að segja, ekki miklar áhyggjur af
framtíðinni í þessu tilliti.
Og ég verð að segja það að þó að líklega sé
pólitískt óhjákvæmilegt annað en að afnema
lánskjaravísitöluna, ef við ætlum ekki að greiða
vísitölu á laun, þá sé ég ekki í fljótu bragði að
launþegar græði mikið á því, ef að kaupmáttur
og lánskjaravísitala haldast nokkurn veginn í
hendur.
Og svoég vísi nú aftur í bréf kjararannsóknar-
nefndar, þá hefur kaupmáttur lítillega hækkað
frá fyrsta ársfjórðungi 1984, eða úr rúmlega 81,
í yfir 82 stig.
En það er viðurkennt að frá áramótunum
’83-’84 til loka þessa árs, þá verður ekki mikill
munur á kaupmætti og lánskjaravísitölu, að
meðaltali.
Hins vegar fara þeir sem tóku lán í október
og borga aftur í marsVoðalega illa út úr því.
- En er ekki óeðlilegt að hækkanir á áfengi
hafí hækkun á verði íbúða í för með sér?
- Jú, það finnst mér óeðlilegt og það hefði
verið gott að breyta því, en það er svo mikil
andstaða hjá t.d. Seðlabankanum við breytingar
sem þessar. Þeir segja að ef farið er að hræra í
þessu fram og til baka þá rugli það grundvöllinn.
- En þú talaðir um pólitíska nauðsyn þess að
1 afnema lánskjaravísitöluna?
- Já, ég held að það sé nauðsynlegt.
- Á þessu ári?
- Ja, nú hefur verðbólgan hjaðnað mikið, og
mér finnst að það þurfi að hafa einhvern
aðdraganda. En mér finnst að það kæmi vel til
greina að ákveða að það yrði frá og með næstu
áramótum.
En það verður að gæta sín á öllum svona
koilsteypum í peningamálum.
Og þá er líka spurningin hvort eigi að banna
lánskjaravísitöluna. Seðlabankinn verður að
reikna hana áfram, því það eru svo margar
skuldbindingar með þessum kvöðum. En mér
finnst hins vegar að það eigi að afnema hana úr
húsnæðislánakerfinu.
Pólitískt nef
Nú hefur Framsóknarflokkurinn farið mjög
illa út úr skoðanakönnunum og þú talar um
pólitíska nauðsyn þess að afnema lánskjaravísi-
töluna - hafíð þið nógu langt pólitískt nef?
f fullt samráð næst
við verkalýðshreyf ing
una fyrir haustið þá
er framtíðin björt
- Það er nú svo, að ég tel að við höfum sterka
tilfinningu fyrir því hvað er pólitískt vinsælt en
ég er sannfærður um að sumt af því sem er
pólitískt vinsælt, er ekki alltaf skynsamlegt. Ég
er sannfærður um það.
En það kom líka fram að ríkisstjórnin stóð
mjög sterkt eftir mjög harða stjórn í 8 mánuði
- mjög sterkt. En eftir þessa 8 mánuði var, að
samkomulagi stjórnarflokkanna, farið út í visst
stig af frjálshyggju. Losað um vextina. Ég held
að það hafi verið mistök. Ég held að við höfum
alls ekki verið tilbúnir. Reyndar skín í gegnum
þá samþykkt sem ríkisstjórnin gerði að menn
töldu að þetta þýddi um 2% hækkun á vöxtum,
en bað varð miklu meira.
Ég held sem sé að umrótið í þjóðfélaginu sé
svo mikið að menn hafi alls ekki verið tilbúnir til
þess að horfast í augu við svona hluti. Svo er
náttúrlega alveg ljóst að sú kollsteypa sem varð
í haust hefði riðið flestum ríkisstjórnum að fullu.
í febrúar tókust frjálsir samningar vel að
mínu mati, mjög vel, við spiluðum inn í þetta
svona eins og þurfti. Þeir tókust ekki í haust.
Og það er náttúrlega dálítið hart að þurfa að
hlusta á suma, eins og suma skríbenta blaðanna,
sem tala um frjálshyggjuna með öðru munnvik-
inu, en ásaka svo ríkisstjórnina fyrir að hafa
ekki gripið fyrr inn í.
- Nú hefur ríkisstjórnin verið ásökuð um
óþarfa hörku í uphafí verkfallsins í haust eins og
t.d. að greiða ekki út laun?
- Það var umdeilt. Það er engin launung að
við vildum margir greiða út laun, en hins vegar
var það fjármálaráðherra sem ákvað að greiða
ekki út laun. Nú hefur það verið dæmt í
héraðsdómi að það hefði ekki átt að greiða út
laun, jú þetta hleypti vissulega einhverri hörku
í deiluna. En ég átti við að það er deilt á okkur
fyrir að koma ekki miklu fyrr með skattalækkun
og þess háttar.
Frjálshyggjan
- Er það frjálshyggjan sem setti allt úr
böndum. Þarf að snúa aftur frá því sem gert
hefur verið í anda frjálshyggjunnar?
- Ég vil nú kannski ekki segja:-. að hún hafi
sett allt úr böndum, en það er engin launung að
það eru skiptar skoðanir um frjálshyggjuna ekki
bara á milli flokkanna heldur einnig t.d. innan
Sjálfstæðisflokksins það er alveg Ijóst.
Ég er alls ekki að útiloka að hér geti verið
frjálsir vextir eins og víða erlendis. En þar sem
svona svelti er á fjárhagsmarkaðnum, eins og
hér, hef ég ekki trú á frjálsum vöxtum.
Hins vegar, að stíga skrefið til baka frá því
sem nú er er ekki auðvelt. Ég verð líka að
viðurkenna það, sem kannski á lítið skylt við
frjálshyggjuna að hér er 55% og kannski
meira af fjármagninu erlent fjármagn.
Við þá vexti ráðum við ekki neitt. Sjávarút-
vegurinn greiðir nú yfir 10% í vexti af gengislán-
Ríkisstjórnin stóð
mjög sterkt eftir
mjög harða stjórn í
átta mánuði — mjög
sterkt. En eftir þessa
átta mánuði var, að
samkomulagi stjórn-
arflokkanna, farið út
í visst stig af frjáls-
hyggju-
um. Við ráðum ekkert við það. Og þá segja
náttúrulega sumir, er þá eitthvað réttlæti að
halda niðri vöxtum á innlendu fjármagni sem er
þá miklu ódýrara heldur en erlent fjármagn sem
sumir eru neyddir til að nota?
Ég held að svarið sé já. Við ættum að reyna
að hafa eins og 3% raunvexti á innlendu
fjármagni um tíma; reyna að halda því þar. Það
er líka annað sem ég verð að viðurkenna. Hér
er gífurlega stór markaður fyrir utan bankana.
Það eru ekki nema svona 20-25% lánsfé sem
kemur frá bönkum. Það kemur frá lífeyrissjóð-
unum og það er hér mikil skuldabréfasala.
Gj aldey risr eikningar
erlendis
Við erum ákaflega opið þjóðfélag að þessu
leyti. Geta menn ráðið við að peningarnir fari
ekki inn á gjaldeyrisreikninga erlendis. Hvað
eru gjaldeyrisreikningarnir orðnir háir? Eitt-
hvað á annan milljarð. Og ávöxtuðust ekki
dollarareikningarnir um 34-35%? Þjóðfélagið
er orðið svo opið. Þetta verð ég að viðurkenna,
um leið og ég segi að við höfum ekki verið
tilbúnir fyrir frjálsu vextina.
Og fyrst þið minntust á kartöflurnar, þá verð
ég að segja að mér finnst þeir vera orðnir
kaþólskari en páfinn, ef við megum ekki, eins
og þessi lönd í kringum okkur, vernda innlenda
framleiðslu sem er ekki háð neinum samningum
milli landa, með því að neita um innflutning.
Við fáum ekki að flytja inn ost til Bandaríkj-
anna, eins og við viljum. Við fáum úthlutað
kvóta, 600 tonn á ári og fáum ekki að flytja inn
nema í gegnum einhvern mann sem þeir velja
sjálfir þarna úti.
- Þú talar um vexti ágjaldeyrisreikningum og
reikningum erlendis. Eg er viss um að þetta
hljómar eins og gríska fyrir flesta þá sem lesa
þetta. Er að vaxa upp hér ákveðin stétt manna
sem er auðug?
- Ég held að hún sé ekkert að vaxa upp
endilega núna. Og ég hef spurt menn um þetta,
sem til þekkja, og þeir segja að menn sem eiga
mikla peninga núna, áttu miklar eignir áður. Og
ég held að það sé miklu frekar fólk sem
auðgaðist í eignum þegar vextir voru neikvæðir
og menn gátu fengið lán. Nú hafi þeir sumir selt
þessar eignir og hafa nú betra upp úr því að
leggja fé sitt inn í banka.
Ég las um einn sem seldi húsið sitt og keypti
seglbát, og ætlar að sigla það sem eftir er
æfinnar. Þetta var vörubílstjóri, en hann hafði
þó eignast nægar eignir til þess. Mérfannst þetta
mjög skynsamlegt hjá honum. Hann lagði
afganginn inn á banka og ætlar að lifa á
vöxtunum.
En ég efast mjög um að það hafi myndast
einhver ný stétt, þótt nú beri meira á henni, því
nú kýs hún að fara öðruvísi með sínar eignir.
Bleyjubörn
velferðarsamfélagslns
- Framsóknarflokkurinn stendur illa, miðað
við skoðanakannanir, og hefur alltaf farið illa út
úr samstarfí við Sjálfstæðisflokkinn. Nú spyrja
1 menn hvort hann sé kominn í stærðarflokk með
Alþýðubandalaginu og Kvennalistanum?
- Nei, það held ég ekki. En það er rétt að við
höfum oft átt í erfiðleikum í samstarfi við
Sjálfstæðisflokkinn og það er hópur manna
innan hans raða sem lítur samstarfið mjög
hornauga, en ég verð nú ekki var við annað en
að það sé líka stór hópur innan hans raða sem
lítur samstarf við Alþýðubandalagið hornauga
t.d.
Ég er þeirrar skoðunar að það séu mjög
I F.v. Magnús Ólafsson, Baldur Kristjánsson, Sverrir AJbertsson og Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra.