NT - 04.04.1985, Qupperneq 12
ÍT1Í7 Fimmtudagur 4. apríl 1985 12
IlLÍ Fréttir
Patreksfirðingar:
Mótmæla árásum
úr þyrlu á
■ Dómsmálaráöherra var í
gærmorgun afhent mótmæla-
skjal frá 202 íbúum á Patreks-
firði vegna þess að fé var drepið
á Tálknanum. Yfirskrift skjals-
ins hljóðar svo: „Við undirritað-
ir íbúar Patrekshrepps mótmæl-
um þeirri árás sem gerð var úr
þyrlu á sauðfé þann 15. mars.
Við lýsum hryggð okkar og
undrun og teljum að tilfinning-
um okkar, siðgæðis- og réttar-
vitund hafi verið algerlega mis-
boðið með þessum aðgerðum.
fé
Við krefjumst þess að dóms-
málaráðherra geri ráðstafanir
til þess að slíkir atburðir endur-
taki sig ekki, hvorki á Patreks-
firði né annarsstaðar á landinu."
■ Bergur Vilhjálmsson, bóndi
og einn af eigendum kindanna
aflicndir Jóni Helgasyni, dóms-
málaráðherra, mótmælaskjalið.
NT-mynd: Róbert
Markaðshlutdeild innlendrar iðnaðarvöru:
Aukning í kaffi og málningarvöru
■ Markaðshlutdeild innlendr-
ar kaffibrennslu á 4. ársfjórð-
ungi 1984 var 6,6% meiri en á
3. ársfjórðungi santa árs, eða
82,1% í stað 75,5% áður.
Markaðshlutdeildin fyrir allt
árið 1984 var 79,9%, en til
samanburðar má geta þess, að
árið 1983 var hún 76,6%.
Þetta kemur fram í nýjasta
fréttabréfi Félags íslenskra iðn-
rekenda, þar sem sagt er frá
ársfjórðungslegri könnun á
markaðshlutdeild fjögurra
greina iðnaðar.
Markaðshlutdeild innlendrar
málningarvöruframleiðslu á 4.
ársfjórðungi 1984 jókst um
1,1% miðað við 3. ársfjórðung,
og var hún 56,8%. Þetta er
einnig aukning miðað við 4.
ársfjórðung næsta árs á undan.
Heildarmarkaðshlutdeild á ár-
inu 1984 var 55,8%, en árið
1983 var hún 57,5%.
Innlend hreinlætisvörufram-
leiðsla bætti stöðu sína á mark-
aðinum á 4. ársfjórðungi miðað
við þann 3. og var 59,2% í stað
56,6%. Markaðshlutdeildin á 4.
ársfjórungi 1984 minnkaði aftur
á móti um 5,4% miðað við sama
tíma 1983. Markaðshlutdeildin
í heild árið 1984 var 60,6%.
Sömu sögu er að segja af
innlendri sælgætisframleiðslu.
Markaðshlutdeild hennar á 4.
ársfjóðrungi 1984jókstum 10%
miðað við næsta ársfjórðung á
undan, eða úr 35,5% í 45,1%.
Hlutdeildin minnkaði aftur á
móti miðað við 4. ársfjórðung
1983, en þá var hún 46,9%.
Markaðshltudeild fyrir 1984 í
heild var 43,3%, en var 49,5%
á árinu á undan.
Neskirkja:
Samkirkjuleg guðsþjónusta
■ Hvítasunnumaður predik-
ar, kaþólikki les guðspjall, kór
aðventista syngur og þjóð-
kirkjumaður leiðir guðsþjón-
ustu í Neskirkju á morgun,
skírdag. Guðsþjónustunniverð-
ur útvarpað, en sú hefð er
komin á að á skírdag sé útvarp-
að samkirkjulegri messu.
Það verður Sam Daniel Glad,
aðstoðarforstöðumaður Hvíta-
sunnusafnaðarins, sem predlkar
og Hjalti Þorkelsson prestur
Kristskirkju og Óskar Jónsson
hjá Hjálpræðishernum lesa úr
ritningunni. Sönghópar Hvíta-
sunnumanna og Kristskirkju
syngja. Kór Neskirkju leiðir
almennan söng og Jón H. Jóns-
son prestur aðventista syngur
einsöng og einnig syngur kór
aðventista. Reynir Jónasson
organisti Neskirkju leikur á org-
el ásamt Krystynu Cortes og
Solveigu Jonsson. Sr. Kristján
Búason flytur bænir og leiðir
guðsþjónustuna að öðru leyti,
en Kristján er formaður sam-
starfsnefndar kristinna trúfé-
laga á Islandi.
Aids rannsóknin:
Blóðsýnið tekið
fyrir tveim árum
■ „Það er síður en svo að
það sé einhver paník í heil-
brigðiskerfinu vegna þessa
máls. Sýnið, sem um er að
ræða, var tekið fyrir tveinr
árum og viðkomandi maður
er stálheilbrigður og ekkert
sem bendir til að hann hafi
sýkst af Aids,“ sagði Guðjón
Magnússon landlæknir í sam-
tali við NT í gær. Tilefnið var
fréttir um að mótefni gegn
Aids hafi mælst í blóðsýni úr
íslendingi í fyrsta sinn.
„Þetta gamla sýni var sent
út ásamt fleiri sýnum fyrir
nokkru, en fyrir tvcim árunr
voru ekki til nein Aids próf,
þau komu ekki til sögunnar
fyrr en á síðasta ári,“ sagði
landlæknir. Hann sagði að
prófið yrði endurtekið, en
varaði við að of mikið væri
gert úr þessu máli.
„Kynhverfir menn ogaðrir
sem taldir eru tilheyra áhættu-
hópnum eru skiljanlega
áhyggjufullir vegna þessa
sjúkdóms, og það er ekki
ástæða til að gera meiri úr
hættunni en efni standa til,“
sagði landlæknir.
Ekki er unnt að gera nein
Aids próf hérlendis, heldur
verður að senda öll blóðsýni
utan til rannsókna. Land-
læknir taldi að fljótlega yrði
farið að gera slíkar prófanir
hér heima.
Björgunarsveitirnar:
Tilkynningarþjónusta fyr-
ir ferdamenn um páskana
■ Landsamband Flugbjörgun-
arsveita og Landsamband hjálp-
arsveita skáta munu starfrækja
tilkynningaþjónustu fyrir ferða-
fólk um páskahelgina. Síma-
númerið sem fólki gefst kostur
á að hringja í er 91-621400.
Tilkynningaþjónustan er
þannig hugsuð að fólki sem
heldur til óbyggða getur hringt
í þjónustuna og tilkynnt um
ferðatilhögun, fjölda þátttak-
enda svo og fyrirhugaðan heim-
komutíma. Upplýsingar um
breytta ferðatilhögun, og tíma
skal tilkynna þegar í stað. Gangi
allt að óskum mun ferðafólkið
strax láta vita um heimkomu
sína. Það er mjög mikilvægt,
því ella verða gerðar ráðstafanir
til leitar og aöstoðar.
Boðið verður upp á þessa
þjónustu frá og með 3. apríl og.
fram til þriðjudagsins 9. apríl í
stjórnstöð L.H.S. Staðin verður
sólarhringsvakt allan tímann.
Þá hvetja L.H.S. og L.F.B.S.
alla þá sem leið eiga um fjöll,
eða huga að útivist um páskana,
til að sýna aðgæslu.
■ Kristbjörg Sigurbjörnsdóttir og Svavar Stefánsson, eigendur Strásins, sem nýlega var opnað á
Laugavegi 62.
Stráið opnað við Laugaveg
■ Hjónin Kristbjörg Sigur-
björnsdóttir og Svavar Stefáns-
son opnuðu nýlega Blóma- og
gjafavöruverslunina Stráið að
Laugavegi 62. Þau hjónin ráku
áður verslun með sama nafni á
Egilsstöðum í tólf ár.
Kristbjörg lauk á síðastliðnu
ári prófi frá American Floral
Art School í Chicago og hefur
einnig tekið þátt í fjölda blóma-
skreytingarnámskeiða.
Sérstök áhersla verður lögð á
blómaskreytingar við öll tæki-
færi ásamt krossa, kransa- og
kistuskreytingum.
Verslunin er opin alla virka
daga frá 9-19 en um helgar frá
10-16. Um páskana verðurbúð-
in opin á skírdag og annan í
páskum frá kl. 10-18 báða dag-
ana.