NT - 04.04.1985, Blaðsíða 16
■ Nýbökuðu brúðhjónin skera í brúðkaupstertuna sem er ekki af lakari endanum. Hvort
Sacher-terta hefur líka verið á boðstólum fylgir ekki fréttinni.
Sendiherra og hótelkóngur
í hjónaband
• Það varmikiðumdýrðirí
Kitzbiihel hér á dögunum,
þegar þau gengu í hjónaband
bandaríski sendiherrann í
Vín, Helene von Damm, og
forstjóri hins fræga gistihúss
Hotel Sacher. Það eina sem
skyggði á gleðina var að eng-
in kveðja barst frá húsbónda
brúðarinnar, Ronald Reagan
Bandaríkjaforseta.
Helene er á hálfgerðum
heimavelli í Vín, þar sem
hún er austurrísk að upp-
runa. Hún á viðburðaríkan
feril að baki, bæði í einkalífi
og starfi. Aðeins 18 ára göm-
ul hleypti hún heimdragan-
um og giftist bandarískum
hermanni. Ekki stóð það
hjónaband þó lengi, en um
það bil sem það var að fara í
hundana kynntist hún stjórn-
málamanninum Ronald Re-
agan og gerðist sjálfboðaliði í
kosningabaráttu hans. Síðar
vann hún sig upp í að verða
einkaritari hans og hann hef-
ur séð ástæðu til að verð-
launa hana fyrir gott starf
með því að gera hana að
sendiherra í Austurríki.
Einkalíf Helene hefur ver-
ið öllu brösóttara. Hún gerði
aðra tilraun til að búa í
hjónabandi með þýska
bankastjóranum Robert von
Damm, en þar sem þau
fundu sér enga smugu til að
hittast nema rétt um helgar,
fór það hjónaband líka út um
þúfur. Ekki missti hún þó
bjartsýnina og gerði 3 tíl-
raunina með margföldum
milljónamæringi. En það fór
eins og fyrri daginn og hjóna-
bandið endaði með skilnaði.
En nú þykist Helene, sem
er 46 ára viss í sinni sök. Hún
hafi nú loks fundið eina rétta
manninn, Peter Gúrtler, en
hann er 39 ára. Að vísu bar
brúðkaupið nokkuð brátt að,
því að upphaflega hafði bara
staðið til að skella sér í smáfrí
í Kitzbúhel, en svo var
ákveðið að stíga stóra
skrefið. En fyrirvarinn var
svo naumur, að bréf sem hún
skrifaði Reagan aðeins tveim
dögum fyrir athöfnina, var
ekki komið á leiðarenda þeg-
ar dagurinn stóri rann upp.
Það er skýringin á því að eng-
in kveðja barst frá forsetan-
um á þessum merkisdegi.
Fimmtudagur 4. apríl 1985 16
■ Sqphi;
leika Onnu Karenínu.
Fær Sophia Loren að leika Onnu Karenínu?
- það er undir Gorbachev komið hvort svo verður
■ Sophia Loren situr nú í
blómum skrýddri hótelsvítu í
New York og æfir sig í að bera
fram nafn sovéska leiðtogans.
„Félagi Borg-a-chev, félagi
Dor-ba-chev, a! félagi Gorbac-
hev, kannski hann geti
hjálpað," segir Sophia um leið
og hún hellir expressó kaffi í
hvítan postulínsbolla handa
gesti sínum.
Sophia Loren hefur leikið
aðalhlutverkið í 100 kvik-
myndum og er ein skærasta
stjarna kvikmyndanna en hún á
sér draum sem cnn er ekki orð-
inn að veruleika - hana langar
sumsé til að leika Önnu Karen-
ínu, og hún vill leika hana í
Rússlandi þar sem snjórinn er
raunverulegur og veturinn
ískaldur.
Hún hefur leikið stríðs-
flóttamann , kafara, banka-
stjóradóttur, og alls konar
konur gagnteknar af þrá og/
eða tæringu. Og hún hefur
m.a.s. leikið sína eigin móður
fyrir bandarískt sjónvarp (sú
mynd hefur reyndar verið sýnd
í íslenska sjónvarpinu).
En hún hefur aldrei leikið
Önnu Karenínu, söguhetju
Tolstoys sem bindur enda á
„ólöglegt" ástarsamband sitt
með því að kasta sér fyrir járn-
brautarlest í sönnum 19. aldar
„maður-verður-að-greiða-
syndir-sýnar-dýru-verði“
anda.
Þetta er eina hlutverkið sem
hana hefur alltaf langað til að
leika og nú segir hún að eini
möguleikinn til þess að sú ósk
rætist sé að Gorbachev bjóði
henni til Rússlands til þess 'að
gera myndina.
Anna Karenína hefur oft
verið kvikmynduð en Sophia
er þeirrar skoðunar að hún hafi
aðeins einu sinni verið stór-
kostlega leikin. Það var þegar
Greta Garbo lék hana. Jacq-
ueline Bisset, sem er fertug og
tíu árum yngri en Sophia er nýj-
asta Karenínan, og leikur hún
ítina dæmdu ungu rússnesku
konu í framleiðslu CBS sjón-
varpsstöðvarinnar.
En þó að Sophia hafi enn
ekki fengið að leika Önnu Kar-
enínu þarf hún ekki að kvarta
yfir atvinnuleysi. Hún hefur nú
nýlokið við að leika á móti vini
sínum, Marcello Mastroianni,
í „dásamlegri ástarsögu
tveggja miðaldra elskenda sem
er þrungin afbrýðisemi," að
sögn leikkonunnar sem fer
ekki út í frekari smáatriði. En
„hlutverkið passar mér eins og
kjóll,“ bætirhún við.
Sophia er nú í New York
sem „skapandi ráðgjafi" hótel-
eigenda sem ætla að konta sér
upp nýju hóteli í Florida sem á
að líta út eins og ítalskt þorp
við Miðjarðarhafið.
En Loren er á því að nú þeg-
ar Ítalía er farin að flytja út
þorpin sín hafi harðnað á daln-
um í kvikmyndaútflutningn-
um. „ítalski kvikmyndaiðnað-
urinn er í slæmu ástandi núna.
Hann er í kreppu. Myndirnar
kosta of mikið. Það eru fram-
leiddar of margar dónalegar og
ofbeldisfullar myndir. Þær eru
lélegar og ljótar,“ segir hún
hreint út, „en þó eru enn miklir
listamenn að verki á Ítalíu."