NT - 04.04.1985, Page 30
Volvo F10 1978
Ekinn 170 þús. km. Nýr mótor. Pallur
5.30m. St. Paul sturtur. Nýleg búkka-
dæla og fóðringar.
Scania 141 1978
Ekinn 400 þús. km. Ekinn 60 þús. km. á
vél oggírkassa. Serling pallur4.7m-10
rúmmetra.
/ -*• Jf;
Scania 110 1971
Nýupptekin vél frá umboðinu. Dráttar-
stóll - 6 nýsóluö dekk. 12 metra gáma-
vagn.
Hino HH 1979
Ekinn 120 þús. km. Sindra pallur árgerð
1001,5.2m — tviskipt álskjólborð. Sindra
sturtur.
Volvo F10 1979
Ekinn 130 þús. km. Ekinn 10 þús. km. á
vél. Robson drif. Hercules krani 3.5 ■
tonn. Sindra pallur 5.7 m.
MAN 19.280 1978
Ekinn 260 þús. km. Ekinn 60þús. km. á
vél. Sindra pallur 5.05m, krani 4 tonn -
Fassi M.3.
M. Benz 309 1978
Ekinn 170 þús. km. 25 sæti - skráður 21
manna. Stórar afturhurðir.
M. Benz 309 1979
Ekinn 285 þús. km. 21 sæti - lúgur
aftan, kúlutoppur. góð dekk.
Ford 6600 1977
Fjórhjóladrif, vél 4 cyl, 78 hö. Multipower
drif, ýtublað. Ham|árn 400 Bachoe.
Case 680G 1980
■ Ekin 4000 stundir. Mikil lyftigeta. Lyfti-
geta 8 m. meö Bachoe. Flotlappir.
Lenging á gröfuarmi.
BÍLA-OG VÉLASALAN Á(
HÖFÐATÚNI 2 SÍMI 2-48-60
JOKER
unglingaskrifborðin
loksins komin aftur
m
HUSGOGN OG
INNRÉTTINGAR
SUÐURLANDSBRAUT18
69 00
■ Michela Figini á fullri ferð niður brunbrautina. Hún hefur mikið sjálfstraust og fer eins hratt og hægt er.
Heimsbikarkeppnin í skíðaíþróttum:
FIGINIBEST
- nóg sjalfstraust og miklir hæfileikar hafa gert hana að bestu skíðakonu heims
■ „Þú verður að hafa viljann til að
keppa og geta sett í þig skap þannig að
þú sért virkilega tilbúinn til að takast á
við brautina. Þá máttu aldrei vera
hræddur við hraðann,“ segir hin frá-
bæra svissneska skíðakona Michela
Figini, sem er handhafi heimsbikarsins
í alpagreinum.
Þeir eiginleikar sem hún lýsir hér að
framan eru henni í blóð bornir. Hún
hefur gífurlegan vilja til að verða sú
besta og hún elskar hraða, - eiginleikar
sem hafa gert hana að nýjustu stjörn-
unni í heimi skíðaíþróttanna.
Þessi svissneska stúlka, sem er aðeins
■ Figini á verðlaunapalli (í miðið) en
því er hún vön.
18 ára, hefur haft yfirburði í heimsbik-
arkeppninni í alpagreinum kvenna og
er orðin þekkt fyrir uppskriftina að
vinningsieiðum í íþrótt sinni. Þessi
uppskrift inniheldur aðeins eitt efni -
gífurlegt sjálfsöryggi Figini sjálfrar.
Engin skíðastúlka, síðan Annemarie
Moser-Pröll frá Austurríki var uppá
sitt besta á áttunda áratugnum, hefur
haft slíka yfirburði í alpagreinum skíða-
íþróttanna eins og Figini hefur nú. Það
sem gerir þetta keppnistímabil hjá Fig-
ini svo frábært sem raun ber vitni er
hversu vel henni hefur tekist að halda
sér á toppnum alit tímabilið. Keppni í
alpagreinum skíðaíþróttanna er gífur-
lega hörð og það þarf mikinn vilja auk
æfínga og andlegs styrks til að halda sér
á toppnum allan þann tíma sem keppn-
in stendur. Þetta hefur Figini tekist.
Figini sjálf hefur líka sagt að hún sé
hvað ánægðust með hversu jöfn hún
hefur verið allt tímabilið. „Það krefst
mjög mikils að vera fremst í flokki allan
veturinn og ég er mjög ánægð með mig
hvað það varðar. Þrátt fyrir marga titla
þá er ég þó ánægðust með sigurinn í
bruni á heimsmeistaramótinu í Bormíó
á Ítalíu fyrr í vetur“.
„Það er erfítt að segja hversu lengi
ég held áfram að keppa. Ólympíu-
leikarnir í Calgary í Kanada árið 1988
eru hugsanlegur endapunktur,“ segir
Figini. Hún verður aðeins 21 árs þá og
gæti hæglega verið á toppnum.
Þjálfari svissneska landsliðsins í
bruni, Dieter Bartsch, segir um Figini.
„Hún er fæddur sigurvegari á öllum
sviðum. Hún hefur litla þolinmæði og
það kemur henni oft til góða þar sem
hún á auðvelt með að koma sér í
stemmningu fyrir keppni. Þá er hún
snjöll í að sjá fyrir í hvernig stuði
andstæðingar hennar eru“.
I hvert skipti er hún kemur í mark
eftir að hafa flogið niður bratta fjalls-
hlíðina á ógnarhraða bíða blaðamenn í
hrönnum. Þeir skjóta á hana spurning-
um á ítölsku,, frönsku, þýsku og ensku
og hún svarar öllum jafnt. Hún er þó
ekki sú manneskja sem vill vera í
sviðsljósinu. „Hún svarar auðvitað öll-
um spurningum en henni er ekkert
gefíð um allt það umstang sem í
kringum hana er. Viðtöl þreyta hana
meira en keppnin sjálf,“ segir Bartsch.
Svissneski blaðamaðurinn Giorgio
Keller sem skrifað hefur ágrip af „æfí-
sögu“ Figini segir að hún viti svo
sannarlega hvað hún vilji. „Þegar hún
var aðeins 16 ára hætti hún í skóla rétt
áður en prófín byrjuðu til að geta
einbeitt sér að skíðunum,“ segir Keller.
Aðalkeppinautar Figini í bruni, Mar-
ia Walliser frá Sviss og kanadíska
stúlkan Laurie Graham eru báðar sam-
mála um að það sem gerir Figini nær
ósigrandi sé hið gífurlega sjálfstraust
sem hún hefur og hinn mikli vilji til að
sigra.
Meistaramótið í borðtennis:
Kínverjar unnu
tvöfaldan sigur
íslendingar urðu heldur aftarlega
■ Kínverjar sigruðu bæði
kvenna- og karla keppnina á
heimsmeistaramótinu í borð-
tenhis seni lauk í Gautaborg í
Svíþjóð í gær.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Kínverjar bera sigur úr býtum í
þessari grein íþrótta. Karlasveit
Kínverja hefur orðið heims-
meistari í borðtennis í níu skipti
af síðustu þrettán sem keppnin
hefur verið haldin. Sannarlega
glæsilegur árangur.
í úrslitaviðureigninni í gær þá
sigruðu karlarnir frá Kína sjálfa
gestgjafana Svía með fimm
vinningum gegn engum. Kvenna-
■ Tveir af bestu Kínverjunum,
Zhihao og Yinghua.
sveit Kína spilaði við Norður-
Kóreu og unnu auðveldan sigur
3-0.
íslendingar sendu lið til keppn-
innar, bæði í karla og kvenna-
flokki. Karlarnir höfnuðu í, 57.
sæti á mótinu en konurnar í því
55.
Sá skondni atburður átti sér
stað er úrslitaleikurinn í
kvennaflokki stóð yfir að þjálf-
ara kínversku stúlknanna var
vísað frá stjórnendabekknuni
þar sem hún þótti vera að gefa
full miklar leiðbeiningar til
keppenda sinna. Höfðu menn á
orði að þetta væri algjör óþarfi
þar sem yfirburðir þeirra kín-
versku voru svo mikiir.