NT - 04.04.1985, Síða 32

NT - 04.04.1985, Síða 32
Bankastjórar fá 450 þúsund í bílastyrk: 550 öryrkjar fá 84 þús- und króna niðurfellingu - en400fá enga - „Vísitölubinding er lögbrot" segir Steingrímur Hermannsson Síðustu fréttir: Ríkisstjórnin fundar ■ Á þessu ári verður á fimmta hundrað öryrkjum synjað um 84.000 kr. niðurfellingu á að-' flutningsgjöldum nýrra bif- reiða. Bankastjórar ríkisbank- anna fá 450.000 krónur hver í „bílastyrk“. Frétt NT í gær um „iauna- auka“ bankastjóranna vakti mikla athygli og höfðu fjölmarg- ir lesenda blaðsins samband við ritstjórnina og lýstu andúð sinni á þessum bílafríðindum. Bankastjórar eru hins vegar ekki þeir einu sem hafa fengið aðflutningsgjöld bifreiða sinna felld niður, og má þar nefna ráðherra og fatlaða. Á ári hverju er úthlutað 550 ieyfum, fötluðum til handa, til að fella niður allt að 84.000 krónur af aðflutningsgjöldum. Á þessu ári sóttu 950 manns um þessa niðurfeilingu, þannig að um 400 hafa farið bónleiðir til búðar. Þeir sem á annað borð hafa rétt til að sækja um slíka niður- fellingu, vegna fötlunar sinnar, geta sótt um á fjögurra ára fresti, en ekki er þar með sagt að umsóknirnar séu teknar tii greina fjórða hvert ár. Þeir sem bundnir eru við hjólastóla eða eru verulega hreyfihamlaðir geta sótt um þriðja hvert ár, og eru þá öll aðflutningsgjöld felld niður af bílum þeirra. ■ Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra hefur gert ráð- stafanir til þess, að launaauki bankastjóra ríkisbankanna upp á 450 þúsund krónur, verði tekinn fyrír á fundi ríkisstjórn- arinnar á þriðjudag eftir páska. „Þetta nær vitanlega ekki nokkurri átt, og ef það er rétt, að þetta sé vísitölubundið, þá er það að sjálfsögðu brot á lögum,“ sagði Steingrímur Her- mannsson í samtali við NT í gærkvöldi. Steingrímur sagði, að þessi launaauki yrði ekki greiddur til forstjóra Framkvæmdastofnun- ar, á meðan hann réði einhverju um það, en Framkvæmdastofn- un heyrír undir forsætisráðu- neytið. Ríkisstjórnin vissi ekki af þessari hækkun til bankastjór- anna og aðspurður hvort hægt væri að taka þetta til baka, sagði Steingrímur að bankaráð- in réðu kjörum bankastjóra. Ríkisstjórnin gæti hins vegar gert samþykkt þar sem því væri beint til bankaráða að uppbótin yrði afturkölluð. „En ég get ekkert sagt um það á þessari stundu. Það þarf að skoða þetta betur,“ sagði Steingrímur Her- mannsson. Sjómannafélag Reykjavíkur: Bátasamn- ingarnir felldir ■ Bátasamningarnir Ívoru felldir af félögum í Sjómannafélagi Reykja- víkur í allsherjaratkvæða- greiðslu. Þetta varð Ijóst í gær, þegar atkvæði höfðu verið talin. Á móti samn- ingunum voru 28 en 16 meðmæltir þeim. Guðmundur Hallvarðs- son formaður Sjómannafé- lags Reykjavíkur sagði í samtali við NT í gær, að verkfalli hefði verið frest- að á bátunum á meðan verið væri að leita að nýj- um samningsgrundvelli við Útvegsmannafélag Reykjavíkur. Sjómenn á stóru togur- unum samþykktu aftur á móti sína samninga með 20 atkvæðum gegn 14. Fulltrúar Sjómannafé- lags Reykjavíkur munu fara vestur til ísafjarðar eftir páska til skrafs og ráðagerða við forystu- menn sjómannasamtak- anna þar. Bílafloti bankastjóranna ■ Bunkastjórur ríkisbank- anna, sem fá 450 þúsund krónur á ári vegna bílakaupa, ofan á önnur laun, eiga allir nýlega eða nýja bíla. Hér á eftir fer listi yfir bílaeign þeirra. Landsbankinn: Jónas Haralz: Peugeot 505 árg. 1983. Nýr bíll af þessari tegund kostar minnst 550 þúsund, en verð á algengustu gerð er um 650 þúsund. Helgi Bergs: Buick Limited árg. 1984. Nýr bíll af þessari tegund kostar um 1.4 miiljónir króna. Björgvin Vilmundarson: Merc- edes Benz 280 SE árg. 1983 og Plymouth Trail Duster árg. 1981. Nýr Benz af sömu gerð kostar um 1.5 milljónir króna. Búnaðarbankinn: Stcfán Hilmarsson: Mitsubishi Galant 2000 árg. 1985. Nýr kostar svona bíll 589 þúsund krónur. Stefán Pálsson: Volkswagen Jetta árg. 1985. Svona bíll kost- ar 450 þúsund krónur í dag. Jón Adolf Guðjónsson: Peug- eot 505 árg. 1983. Algeng gerð af þessari tegund kostar um 650 þúsund krónur. Útvegsbankinn: Lárus Jónsson: Volvo 760 árg. 1984. Nýr bíll af þessari tegund kostar 1170 þúsund krónur. Halldór Guðbjarnason: Volvo 760 árg. 1983. Nýr kostar hann 1170 þúsiind krónur. Ólafur Helgason: Saab 900 árg. - 1985. Svona bíll kostar 760 þúsund krónur hjá umboðinu. Seðlabankinn: Jóhanncs Nordal: Saab 900 GLE árg. 1983. Nýr kostar svona bíll 760 þúsund krónur. Davíð Ólafsson: BMW 525 árg. 1985 og BMW 525 árg. 1981. Nýr bíll af þessari tegund kostar unr 1 milljón króna, og er þá miðað við nokkra algenga aukahluti. Tómas Árnason: Mercedes Benz 280 SE árg. 1984. Nýr kostar hann um 1.5 milljónir króna. Stjórn Framkvæmdastofnun- ar hefur enn ekki fjallað um það hvort forstjórarnir tveir fái svip- aða bílapeninga og bankastjór- arnir. Hins vegar hafa þeir verið ráðnir til stofnunarinnar á bankastjórakjörum. Stjórnin mun væntanlega fjalla um mál- ið á fundi í lok þessa mánaðar. á Vísitölubanni aflétt: Rauð strik í vor? Ráðherrafundir í gær ■ „Rauð strik verða líkleg- ast tekin upp í vor,“ sagði ónefndur leiðtogi í verka- lýðshreyfingunni, sem NT ræddi við í gær en ríkisstjórn- in hei'ur nú ákveðið að fram- lengja ekki lög um bann við vísitölubindingu launa. Jafnframt voru afnumin þau ákvæði Ólafslaga, sem hefðu komið vísitölubindingu launa sjáifkrafa á. Helstu leiðtogar ASI, þau Ásmundur Stefánsson, Björn Þórhallsson, Guðríður Elíasdóttir og Guðmundur Þ. Jónsson, ræddu í gær við fjóra ráðherra, þá Steingrím Hermannsson, Alexander Stefánssón, Matthías Mat- hiesen og Geir Hallgríms- son. Þettavarþriðjisamráðs- fundur aðilanna. Verði rauð strik tekin upp, þýðir það að verðtrygging gangi ekki í gildi nema verðlag fari upp fyrir ákveðið „rautt strik." Talið er að þessi ákvörðun ríkisstjórnarinnar um afnám bannsins, sé ein af forsend- um þess, að sæmilegt samráð takist með þessum aðilum í viðræðum komandi mánaða. ■ Þúsundir manna lögðu leið sína frá höfuðborginni í gær í upphafi páskafrís. Myndin var tekin af ungmennum á Reykjavíkurflugvelli á leið á skíði. Nr.mvnd: irni Bjan * inátun fArhega -c

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.