NT

Ulloq

NT - 13.04.1985, Qupperneq 4

NT - 13.04.1985, Qupperneq 4
Er allt lánskjaravísitölunni að kenna? Kaupmáttur nú sá sami og í sept.’83 - samkvæmt vísitölu ASÍ-taxta ■ I’að misgengi launa og lánskjaravísitölu, sem mikið hefur verið til umræðu upp á síðkastið (og margir virðast farnir að trúa að sé að éta upp eignir þeirra frá mánuöi til mánaðar), hefur ekki verið til staðar síðasta hálfa annað árið. Fyrrnefnt misgengi launa og lánskjaravísitölu hefur t.d. lít- ið eða ekkert bitnað á þeim sem tekið hafa verðtryggð lán eftir ágústmánuð 1983 og fram til þessa. Fyrir þann sem hefði tekið slíkt lán í september 1983, með tveim afborgunum á ári - og hefði því væntanlega greitt 3. afborgun af láninu nú í mars - hefði það t.d. engu breytt hvort borgað hefði verið af því samkvæmt hinni al- ræmdu lánskjaravísitölu elleg- ar kauptaxtavísitölu ASI. Það misgengi sem hækkað hefur verðtryggð lán (skuldir) langt umfram laun koma til frá því síðari hluta árs 1982 og \ \ Varahlutir í gamla góða rússann V \ \ \ \V Eigum fyrirliggjandi boddy-hluti áv GAZ-69 á sérstöku tilboösveröi, takmarkaöar birgöir. ' ' ' Skiftjboro Verslun 38600 39230 Verkstaeft SöludelJd 39760 31236 Bifreiöar & Landbúnaöarvélar hf Su6ur1andsbraut 14 TÓNUSTARHÁTÍDÍ KÓPAVOGI ■ í tilefni af ári æskunnar og tónlistarári Evrópu- ársins efnir skólanefnd Kópavogs til tónleika dag- ana 16. 17. 18. og 24. apríl víðs vegar um bæinn. Þriðjudaginn 16. apríl hefst hátíðin í íþróttahúsi Kársnesskóla kl. 14.00 nteð því að skólahljómsveit Kópavogs spilar, einnig koma fram skólakór Kárs- nesskóla, börn af dagvistarheimilum bæjarins með söng og leik, einnigsyngja börn úr Hjalla- Digranes- og Kópavogsskólum. Popptónleikar verða í Digranesi I7. apríl, þar sem poppgrúppur skólanna koma fram og Jassband Hornaflokks Kópavogs spilar af lífi og sál. Fimmtu- daginn 18. apríl verða kvöldtónleikar í Kópavogs- kirkju. Þar koma fram nemendur Tónlistarskóla Kópavogs, Skólakór Kárnes- og Þinghólsskóla og Kór Menntaskólans í Kópavogi. Hátíðinni lýkur með tónleikum eldri barna í Digranesi sunnudaginn 21. apríl og hefjast þeir kl. 15.00. Þar koma fram Skólahljómsveit Kópavogs, MK kvartettinn, Hljómsveit Tónlistarskóla Kópa- vogs og Skólakór Kársnes og Þinghólsskóla. Mikið undirbúningsstarf hefur farið fram fyrir þessa tónlistarhátfð, bæði meðan þátttakenda svo og stjórnenda þeirra kóra og hljómsveita sem koma fram. Að sögn Guðjóns Magnússonar, skólafulltrúa sem annast alla framkvæmd hátíðarinnar af hálfu skólanefndar er reiknað með almennri þátttöku bæjarbúa í þessari hátíð og vonast er til að hún megi vera æsku Kópavogsbæjar til sónta. FILIDICASAFENDI MEÐ VOR I REYKJAVIK ' í dag opnar mjög sérstæð garnverslun, sannkallað Garn-Gallerí, á Skólavörðustíg 20. í Garn-Gallerí er tískugarn beint frá tískuborginni Flórens á Ítalíu, sjálft |Fili-De-Casa Fendi|garnið — í ótrúlegu úrvali og litavali. Að sjálfsögðu höfum við einnig lopalfnuna frá Álafossi og Gefjunni. fallegir, það er sannkallað ítalskt vor á Skólavörðustígnum. Vor og sumarlitirnir frálFili-De-Casa Fendi eru Skólavörðustfg 30 Sími l -35 30 Opið í dag frá k 1.10 — 16. Vísit. Lánskj. Ka“Pm- ASÍ-t. vísit. , m V. lanskj.v. framan af ári 1983 - og heldur áfram að íþyngja þeim sem eru að greiða af lánum sem tekin voru fyrir eða á fyrr- nefndu tímabili, nema að lög- um verði breytt eða að laun hækki langt umfram verðlags- hækkanir. Frá því í september 1983 - þegar áhrif undanfar- andi óðaverðbólgutímabils voru komin fram í framfærslu- og síðan lánskjaravísitölu má hins vegar segja að kauptaxtar ASÍ og lánskjaravísitalan hafi í stórum dráttum hækkað í takt hvort við annað. Kaup- máttur taxtakaups hefur stundum farið örlítið fram úr lánskjaravísitölunni og stund- um örlítið niður fyrir hana. Á tímabilinu í heild, september 1983 - mars 1985, hafa kaup- taxtar ASÍ og lánskjaravísital- an hækkað nákvæmlega jafn mikið, þ.e. um 37%, eins og fram kemur í meðfylgjandi tölfu. Hér að framan hefur verið miðað við vísitölu reiknaða út frá kauptöxtum ASÍ. Hins vegar má geta þess að í nýjasta hefti Hagtalna mánaðarins frá Seðlabanka kemur fram að ráðstöfunartekjur einstaklinga á mann hafi að meðaltali hækkað verulega umfram kauptaxta launþega á undan- förnum árum. Þannig hafi ráð- stöfunartekjurnar hækkað um 58% niilli áranna 1982 og 1983 meðan kauptaxtarnir hækk- uðu um 49,5% og uni 25,4% milli áranna 1983 og 1984 þeg- ar kauptaxtarnir hækkuðu aðeins um 18,8%. Samkvæmt hagtölunum, hafa kauptaxtar allra launþega hækkað um 29,3% að meðaltali frá janúar 1984 til janúar 1985. 1983: Sept. 786 786 100,0 Okt. 817 797 102,6 Nóv. 817 821 99,6 Des. 817 836 97,7 1984: Jan. 817 846 96,5 Febr. 836 850 98,4 Mars 873 854 102,2 Apríl 873 865 100,9 Maí 873 879 99,2 Júni 891 885 100,6 Júlí 891 903 98,6 Ágúst 891 910 97,8 Sept. 904 920 98,2 Okt. 904 929 97,1 Nóv. 991 938 105,6 Des. 1004 959 104,7 1985: Jan. 1052 1006 104,5 Febr. 1052 1050 100,2 Mars 1077 1077 100,0 Sept.1983- Mars.1985 37% 37% ■ Á þessari töflu má sjá samanburð á þróun kauntaxta ASÍ annars vegar og lánskjara-' vístölu hins vegar frá því að árhrif óðaverðbólgu fyrri hluta ársins 1983 voru komin fram í lánskjaravísitölunni í september 1983, og til marsmánaðar s.l. Vísitala ASÍ taxta (samkvæmt gögnum frá ASÍ) er hér færð á sama punkt og lánskjaravísital- an í september 1983 til að gera auðveldara að bera saman þró- unina síðan. íaftasta dálkinum settum við kaupmátt ASÍ taxta miðað við lánskjaravísitölu, á 100 í september 1983. Hann hefur síðan hækkað og lækkað lítillega frá mánuði til mánaðar, en svo vill til að hann var nú í mars nákvæmlega sá sami og fyrir rúmu hálfu öðru ári, þ.e. í september 1983. Á þessuni 19 mánuðum hafa bæði vísitala ASÍ taxta og lánskjaravísitala hækkað um 37%, ■ Torfi Jónsson sýnir vatnslitamyndir í anddyri Norræna hússins. Norræna húsið: Torfi Jónsson með sýningu ■ Torfi Jónsson heldur sýningu á vatns- litamyndum í anddyri Norræna hússins, daoana 14.-24. apríl. I tilefni opnunarinnar flytja Ingveldur Hjaltested og Jónína Gísladóttir norræn lög í sal Norræna hússins þann 14.aprfl, klukkan 3.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.