NT - 19.04.1985, Page 1
14. tölublað
2. árgangur
Föstudagur
19. apríl
1985
„Aðdragandinn að tónlist-
inni í Hringnum var sá að ég
hitti Friðrik í fyrrasumar og þá
sagði hann mér frá þessu
skemmtilega plani sem hami
væri með á prjónunum, að
gera kvikmynd um hringveg-
inn sem væri eingöngu músík
og mynd. Hann spurði hvort
ég vildi semja músíkina og ég
var afskaplega ánægður með
það.“
- Hvemig vannstu músíkina?
„Ég var ekki að eltast við
neitt sem bar fyrir augu á
veginum heldur beindi ég at-
hygli minni meira að landslag-
inu og landshlutunum sem
keyrt er í gegnum. Ég var
búinn að sjá myndina nokkrum
sinnum á vídeói og síðan varð
tónlistin til í stúdíóinu að
meira eða minna leyti, ég pikk-
aði upp hljóma og melódíur og
impróviseraði síðan út frá
þeim. í raun fær hver lands-
hluti sitt sérstaka tónatal. Þetta
var töluverð vinna að semja
þessar 80 músíkmínútur og ég
eyddi 50 tímum í þetta en þar
sem ég spilaði þetta allt sjálfur
þá tók prósessinn ekki lengri
tíma en þetta.“
- Stóð alltaf til að setja þessa
tónlist á plötu?
„Nei, það kom ekki til fyrr
en seinna. Ási í Gramminu var
eitthvað að vappa þarna niðri
í stúdíói Mjöt og þetta kom til
tals. Við vorum reyndar búnir
að láta okkur detta í hug að
gefa þetta út, aukakostnaður'
við plötuútgáfu er sáralítill
þegar þetta er á annað borð
tilbúið og þetta er plata sem
borgar sig á 100-150 eintökum.
Áhættan er því lítil í sjálfu sér
en útgáfan var ákveðin með 5
daga fyrirvara."
Ólík áhrif
- Þú hefur einnig samið tón-
listina í Skammdegi, kvikmynd
Þráins Bertelssonar. Er mikill
munur á tónlistinni í þessum
tveim myndum?
„í Hringnum skapa músíkin
og myndin eina heild en þetta
er öðruvísi í Skammdegi. Það
er mikil músík í þeirri mynd,
líklega allt að helmingur og
allt frumsamið en áhrifin sem
er verið að fá fram eru allt
önnur og því er mikill munur á
tónlistinni í þessum myndum.
í Skammdegi eru þetta stuttir
og langir bútar, sem eiga að
undirstrika og kalla fram áhrif
og það er mikilvægt að allar
tímasetningar séu réttar. Tón-
listin í Skammdegi er að vísu
öll unnin á synthesizer, eins
og tónlistin í Hringnum, en
það er verið að reyna að ná
fram allt öðrum áhrifum með
tónlistinni.“
- Er rnikill munur á því að
vinna kvikmyndatónlist og
aðra tónlist?
„Það er náttúrlega allt önnur
staða í kvikmyndatónlistinni.
Þar er unnið út frá myndinni til
að fá fram ákveðin áhrif meðan
að maður hefur meira frjálsar
hendur við aðrar tónsmíðar.
En þar er maður auðvitað
bundinn af hljóðfæraskipan-
inni og í elektróníkinni er
maður bundinn af tækjunum.
En það hefur verið gaman að
vinna við þessar kvikmyndir
og breyta til frá því sem ég hef
verið að gera í námi mínu úti
því þetta er nokkuð í öðrum
dúr en sú harðlínunútímamú-
sík sem ég hef fengist við.“
- Hvar hefurðu alið mann-
inn og hvað hefurðu verið að
■ Lárus Grímsson hefur sett svip sinn á tónlistarflóruna hér á
klakanum undanfarið. Hann hefur samið tónlistina fyrir ieikritin
Grænijöðrunga og Skjaldbakan kemst þangað líka og útvarps-
leikritið Landið gullna Elidor. Hann hefur samið verk fyrir
Háskólakórinn og tónlist hans hefur verið flutt á festivölum í
Austurríki og Hollandi. Þá hefur hann samið tónlist fyrir nýjustu
mynd Þráins Bertelssoanr, Skammdegi og hann á heiðurinn að
músíkinni í Hringnum, kvikmynd Friðríks Þórs Fríðríkssonar.
Tónlistin úr Hringnum hefur nýlega verið gefln út á plötu og er
það Grammið sem hefur séð um útgáfuna.
NT fékk Lárus í spjall á dögunum og var hann fyrst spurður
um aðdragandann að þátttöku sinni í Hríngnum.
gera í þessu námi?
„Ég hef verið í Hollandi s.l.
5 ár, í skóla í Utrecht sem heitir,
Institutt for Sonology, þar sem
þessi elektróníska músík er
kennd og einnig er mjög góð,
vinnuaðstaða þarna til tón-
smíða og aðgangur að tækjum,
enda eru margir sem nýta sér
þá vinnuaðstöðu. Umhverfið
er örvandi fyrir tónlistarmenn,
tónleikahald og fleira í þeim
dúr. í grófum dráttum er nám-
inu þannig hagað að fyrsta árið
er almennt, síðan tekur við
meiri sérhæfing og vinna með
einum kennara. Ég ætlaði mér
bara að vera þarna í einn vetur
en fann að það var ekki nóg,
þegar til kom og síðan hef ég
ílengst þama ytra.“
- Ertu mikilvirkt tónskáld?
„Ég hef samið þó nokkuð af
verkum, t.d. ein þrjú eingöngu
fyrir tape og sex fyrir tape og
hljóðfæri svo eitthvað sé nefnt.
Þau verk hafa öll verið samin
fyrir hollenska hljóðfæra-
leikara sem ég hef starfað með.
Um tape verkin er það að
segja að þau hafa verið send
tvist og bast um heiminn til
flutnings en það er nauðsynlegt
að vera viðstaddur þegar verk
fyrir hljóðfæraleikara og tape
eru flutt, því það þarf að
samræma tíma og hljóðfæra-
leik og laga verkið að getu
hljóðfæraleikarans, en ég reyni
að auðvelda hlutina eins og
hægt er.“
Frakkland og Holland
- Tónleikar á döflnni?
„Ég er á förum út til að
undirbúa flutning á verki eftir
mig á þremur stöðum í Frakk-
landi í maí, auk þess sem það
verður flutt í Amsterdam. Síð-
an liggur leiðin á árlega tónlist-
arhátíð í Bourges í Frakklandi
sem eingöngu snýst urn elek-
tróníska músík. Þar verður
fólk allstaðar að og stendur
hátíðin yfir í eina viku og eru
að jafnaði flutt um 50 verk á
þeim tíma.“
- Ertu eini íslendingurinn
sem átt verk á þessari hátíð?
„Jú og ætli ég sé ekki jafn-
framt fyrsti íslendingurinn sem
flutt er verk eftir á þessari
hátíð. Það er sama verk og
verður flutt í Frakklandi í maí
og heitir „Einu sinni poppari -
ávallt poppari" og er undir
popp og jazzáhrifum, eins kon-
ar samsull af því sem ég var að
gera á árum áður og nýju efni.
Verkið er skrifað fyrir tvo
: hljóðfæraleikara, rafgítar/
gítar, semball/píanó og tape.“
. - Ertu ennþá eitthvað í popp-
inu?
„Já, ég bregð því fyrir mig,
hef t.d. komið fram með
hljómsveitinni „Með nöktum“
en það er ekkert af fullum
krafti. Það losna kraftar úr
læðingi við það að spila með
þessum strákum, sem aðallega
eru í „New Wave“ tónlistinni
og þetta er ekki eins mikið mál
og var áður þegar öll bönd
þurftu að hafa góða spilara og
sólóin voru miklir fimleikar,
allt uppí heilu æviágripin."
- Hvað flnnst þér um ís-
lenskt popp í dag?
„Það eru alltaf bylgjur í þessu
en því er ekki ao neita að
íslenskt popp er í miklurn
öldudal núna, ef ékki grynn-
ingum. Þar kemur margt til en
að hluta til liggur sökin hjá
poppurunum sjálfum. Það er
ekki nóg að vera áhugasamur,
menn verða einnig að fram-
kvæma hlutina og það er langt
í frá að stéttvísi og samheldni
.einkenni stéttina."
Ég kemstagætlega af
- Að lokum Lárus. Eru næg
verkefni framundan hjá þér?
„Það er nóg að gera á næst-
unni. Fékk nýlega styrk í Hol-
landi til að sqmja verk fyrir
sembal, synthesizer og tape,
sem þarf að vera tilbúið í haust,
síðan fer ég að vinna að kvik-
mynd með Karli Óskarssyni og
Ásgeiri Bjarnasyni en það er
mikil músík fyrirhuguð í
henni, m.a. popptónlist sem
verður unnin í samvinnu við
Magnús Guðmundsson söngv-
ara „Með nöktum" og Sigtrygg
trommara í KUKL. Síðan
verður verkið sem ég samdi
fyrir Háskólakórinn, „I Sing
The Body Electric“, sem er
verk fyrir kór og tape, flutt í
Helsinki í haust. Og síðast en
ekki síst verður konsert í Hol-
landi í september F haust, þar
sem verkin verða eingöngu
eftir mig“, segir Lárus og glott-
ir ögn. Það er greinilega meira
en nóg að gera hjá honum og
ég spyr hann að lokum hvort
hann græði eitthvað í þessum
bransa.
„Ég kemst ágætlega af.“ Svo
mörg voru þau orð.
Texti: áþj
Myndir: Sverrir