NT - 05.05.1985, Blaðsíða 4
Sunnudagur 5. maí 1985 4
■ Ev.e Arnold er. virtur
bandarískur Ijósmyndari sem
hefur ferðast víða og gefið út
Ijósmyndabækur um hin ýmsu
lönd heimsins. Fyrir stuttu
kom hún til Bandaríkjanna frá
Kína og var þá fengin til.þess
að gera bók um Ameríku og
eru meðfylgjandi myndir og
ritgerð úr þeirri bók.
Þegar ég kom heim til
Bandaríkjanna, til þess að
vinna að útgáfu bókar með
Ijósmyndum sem ég hafði tekið
í Kína, voru áhrifin frá Kína-
ævintýri mínu svo sterk að þau
lituðu mjög viðhorf mitt til
New York. Ég stóð mig að því,
að ímynda mér hvernig Kín-
verji myndi líta á Bandaríkin,
en það varð til þess að ég
uppgötvaði mér til mikillar
furðu að ég gerði mér sjálf
ekki grein fyrir tilfinningum
mínum og viðhorfi til lands og
þjóðar.
Þrátt fyrir að ég sé Amerík-
ani, þá er ég að ýmsu leyti
útlendingur í Ameríku. Ég hef
búið og starfað erlendis í ein
20 ár og þó ég hafi alltaf komið
heim einu sinni eða tvisvar á
ári, hefur það alltaf verið í
■ Seattle: Laotian kona að kenna.
stuttan tíma í einu. Ég hef þá
verið hálfgerður gestur. Því
uppgötvaði ég, að ég sá New
York með augum útlendings-
ins. Hún vakti áhuga ntinn á
sama hátt og Moskva, Kabúl
og nú síðast Peking höfðu
gert. Þó var einn blessunarleg-
ur munur - hér skildi ég tungu-
niálið. Mér fannst það því mjög
freistandi þegar útgefandinn
minn bauð mér að gera ljós-
myndabók um Ameríku.
Það var þó ekki fyrr en eftir
nokkurra vikna vangaveltur að
ég ákvað að takast á við þetta
verkefni, þrátt fyrir að ég gerði
mér fyllilega grein fyrir stærð
þess og umfangi og þeim óhjá-
kvæmilegu vandamálum sem
því fylgdu. Það varð að ráði að
í tvö ár myndi ég ferðast um og
taka myndir en þriðja árið
gerði ég sjálfa bókina. Frá
byrjun leit ég á Ameríku sem
ævintýri sem bauð mér
faðminn, tækifæri til þess að
læra eitthvað nýtt. Mig iangaði
til að fá landið og þjóðina til
þess að sitja fyrir á afslappaðan
og náinn hátt, þannig að út-
koman yrði raunsæ og lifandi
andlitsmynd. Ef til vill var
tuttugu ára fjarvera það sem
■ New York: Fyrirsæta í Pekky Ellis.
Ameríka með augum
Ljósmyndarinn Eve Arnold túlkar lífið í Ameríku frá sérstæðum sjónarhól
■ Salt Lake City: Kirkjukór. ■ Wisconsin: Bóndi.