NT - 22.05.1985, Qupperneq 24
LURIR ÞU A FR
Við tökum við abendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrirhverja ábendingu sem leið ir til
fréttar i blaðinu og 10.000 krónurfyrir ábendingu sem leiðirtil bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 óg 687695 • íþróttir 686495
Davíð sterkari en sam
eiginlegt framboð hinna
- sem þó er vænlegra en sérframboð flokkanna
■ Þór Rögnvaldsson og Helga Þórsdóttir.
Enginn vinstri
flokkur í landinu
■ „Ég er ekkert undrandi á
þessu. Flokkarnireru uppteknir
af sínum eigin áhugamálum.
Alþýöubandalagið er orðiö að
samtökum áhugamanna um
regnhlífar, Framsóknarflokkur-
inn hefur bara áhuga á mjólk-
urframleiðslu, Alþýðuflokkur-
inn á málefnum Hvíta hússins,
Kvennaframboðið á að koma
réttu kyni á sannlcikann," sagði
Þór Rögnvaldsson.
„Hvernig er hægt að kjósa til
vinstri við þessar aðstæður? Ég
kem ekki auga á neinn vinstri
tlokk í landinu og það er engin
furða að kjósendur lendi í vand-
ræðum. Ég held að þetta fylgi
sameiginlegs lista sé svar fólks
við því að það hafi engar for-
sendur til að velja neinn af
gömlu flokkunum umfram
annan," sagði Þór Rögnvalds-
son og hvarf inn á Lækjar-
brekku ásamt dóttur sinni.
■ Haraldur ferinir bílinn.
Gott að gera stóra
flokkinn hræddan
■ Ég hefði nú aldrei trúað
því að þessir hópar næðu saman
en þetta verður þeim kannski
hvatning til þess,“ sagði Harald-
ur Kjartansson vörubílstjóri,
sem var að lesta bíl sinn niðri
við höfn þegar NT bar þar að
garði.
„Ég álít nú að það sé ekki
hollt að einn stór flokkur sé of
lengi við völd og það gerði
ekkert til þótt skipt væri um
stjórn. En ég viðurkenni það að
ég á svolítið erfitt með að gera
upp á milli þessara flokka.Ég hef
gaman af Jóni Baldvin en hann
er nú ckki í framboði til borgar-
stjórnar.
Annars kann ég ágætlega við
Davíð, en það er gott að gera
stóra flokkinn hræddan," sagði
Haraldur Kjartansson.
■ „Enginn leiðtogi vinstri flokkanna hcfur „tharisma“.“
„Ekki búinn að gleyma vinstri stjórninni ’78-’82, og kaus
ég hana þó.“
Þetta voru m.a. svör sem blaðamaður NT fékk er hann
leitaði álits vegfarenda á sameiginlegu framboði félags-
hyggjuflokka til borgarstjórnar á næsta ári, en í niðurstöð-
um skoðanakönnunar sem DV birti í fyrradag og í gær,
kom frarn að slíkt framboð nyti meira fylgis en sameigin-
legt fylgi þessara flokka væri, ef hver byði fram sér.
Meginúrslit könnunarinnar voru þó þau að ailt útlit er
fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn, undir forystu Davíðs Odds-
sonar, muni vinna sinn stærsta kosningasigur í Reykjavík
í næstu borgarstjórnarkosningum og hljóta 12 borgarfull-
trúa af 15, komi ekki til sameginlegs framboðs hinna
flokkanna, en 9 fulltrúa komi til slíks framboðs.
Niðurstöður könnunarinnar, þ.e. að sameiginlegt fram-
boð félagshyggjuflokkanna nyti meira fyigis en flokkarnir
einir sér, vöktu nokkra athygíi þar sem slíkt framboð mun
aðeins hafa verið rætt í þröngum hópum og ekki fengið
mikla umfjöllun fjölmiðla. Því þótti NT fróðlegt að
spyrjast fyrir um hvers vegna slíkt framboð þætti vænlegt
og valdi því nokkra vegfarendur af handahófi, og taka skal
fram að viðtöl eru birt við alla þá sem talað var við.
■ Hallfríður Þórarinsdóttir, Ingibjörg Gunnarsdóttir og Agnar
Birgir Oskarsson.
Vinstri menn eiga
sér engan leiðtoga
■ Hallfríður Þórarinsdóttir,
Ingibjörg Gunnarsdóttir og
Agnar Birgir Óskarsson nutu
sólarinnar í bakarabrekkunni
þegar við réðust að þeim með
spurningum um pólitík. Þau
sögðust taka skoðanakönnun-
um með varúð. Hallfríður sagði
þó að það myndi styrkja stöðu
vinstri hreyfingarinnar ef flokk-
arnir ynnu saman fyrir kosning-
arnar, Agnar var ekki á því að
flokkarnir gætu komið sér sam-
an um sameiginlegan lista.
Hallfríður var á annarri
skoðun. Það kom á daginn að
hún var á fundi félagshyggju-
manna á dögunum. þar sem
þessi mál voru rædd. „Það er í
rauninni enginn málefnaágrein-
ingur," sagði hún. „Ef flokkarn-
ir vinna ekki saman geta þeir
alveg eins gleymt þessu,“ sagði
hún. „Þar að auki má benda á
að það kemur til með að hafa
mikil áhrif annars staðar á land-
inu, ef þessir flokkar vinna sam-
an í Reykjavík.“
En af hverju þetta mikla fylgi
Sjálfstæðisflokksins? Ingibjörg
sagði að Sjálfstæðisflokkurinn
eigi menn með „charisma“,
menn sem koma fram út á við
sem leiðtogar. „Vinstri flokk-
arnireiga engan leiðtoga,“ sagði
hún og hin tóku undir það.
■ Jón Bóasson, Herjolf Skogland, Hans Friðjónsson og Hjalti
Asgeirsson. NT-myndir Srerrir.
Dytti ekki í hug
að fara á kjörstað
■ „Það er vonlaust að greiða
minnihlutaflokkunum atkvæði,
mér dytti ekki cinu sinni í hug að
fara á kjörstað," sagði Jón Bóas-
son, en við tókum hann og nokkra
félaga hans tali við höfnina.
„Fólk myndi treysta þeim betur
ef þeir kæmu fram sameinaðir
fyrir kosningar. Þá yrðu þeir að
hafa skýr kosningaloforð, eða mál-
efnasamning þannig að þeir hlypu
síður saman í rifrildi," sagði félagi
hans, Hans Friðjónsson.
Hjalti Ásgeirsson sagði að hann
teldi að meiri árangur myndi nást
með sameiginlegu framboði. „Mér
finnst nú reyndar að þessar tölur
úr skoðanakönnuninni þyrftu að
snúast við, vinstri flokkunum í
hagT
„Ég tek skýrt fram," sagði Jón
Bóasson, „að ég er ekki búinn að
gleyma vinstri stjórninni í borginni
1978-1982. Það var stjórn sem ég
var ckki ánægður með og kaus ég
hana þó.“
■ Magnús Finnbogason og Halldóra Júlíusdóttir.
Þeir gætu gengið að
stórum markaði fólks
■ „Éghefstutt Aiþýðubandalag-
ið og reyndar hef ég ekkert á móti
Steingrími heldur, en ég vil að
hann starfi með vinstri flokkun-
um,“ sagði Magnús Finnbogason,
en hann var að afgreiða í verslun
sinni á útimarkaðnum við Útvegs-
bankann er við tókum hann tali
ásamt konu sinni, Halldóru Júlíus-
dóttur.
„Ef þetta fólk talar saman þá
getur það gengið að stórum mark-
aði sem er vinnandi fólk í landinu,
en þá verður það líka að tala
saman og vinna sanian.
Fólk styður þessa flokka frekar
ef þeir standa saman. Þeir tapa á
því að vera sundraðir. Verkafólk-
ið, fólkið í frystihúsunum og ann-
ars staðar, það er illt. kaupið er
lágt og erfitt að komast af og
fólkið á erfitt með að gera upp á
milli flokkanna."