NT


NT - 11.06.1985, Síða 6

NT - 11.06.1985, Síða 6
Hí Þriðjudagur 11. júní 1985 6 Páll Sigurjónsson, Galtalæk: Hagvöxturerlykil- orð samtíðarinnar Frjálshyggjupostular viljadragasvoúrland- búnaðarframleiðslu, aðinnflutningur verði talinn raunhssf leið ■ Allt sem hugurinn girnist er hagvöxtur, enda skal öllu til kostað. Hvers virði er til dæmis lífsfylling einstaklings í draumaríki frjálshyggjunn- ar? Svarið við þessari spurn- ingu er að finna í peninga- málastefnu þeirri, sem nú er fylgt hér á landi, og víðar í hinum vestræna hcimi. Á það ber þó að líta, að við hér á landi höfum ekki gengið götuna þá á enda. Og til marks um að svo sé, er nærtækast að vitna í þann mismun, sem er á atvinnu- leysi hér á landi og höfuðvíg- um frjálshyggjunnar, Banda- ríkjunum og Bretaveldi. Hinu er þó ekki að leyna, að stefnan hefur verið mörkuð. Ég tcl ástæðu til að rökstyðja þessa fullyrðingu nokkuð nánar. Bæði til þess að menn átti sig á, hvað ég er að fara, og vegna þess að þessum orðum verður að finna nokk- urn stað. Kröfur verslunarráðs um heimild til innflutnings á grænmeti, þar með töldum kartöflum, er krafa um at- vinnuleysi þess fólks, sem af garðrækt og gróðurhúsa, hef- ur haft sitt framfæri. Petta er krafa um atvinnuleysi, vegna þess, að þjóðin er ekki í stakk búin til að útvega ný atvinnu- tækifæri, í stað þeirra, sem brott mundu falla. Varla telja menn að annar landbúnaður eða sjávarútvegur geti tekið við því fólki, sem missti at- vinnuna vegna „Lífsrúms“, þess er frjálshyggjan krefst innflutnings versluninni til handa. Að hinu leytinu er svo það, að aðförin að landbúnaðinum í heild sinni er í því augna- miði gerð að fá fólk til að trúa því að hagkvæmt sé að draga svo úr búvöruframleiðslu, að innflutningur sé raunhæfasta leiðin til að mæta árstíða- bundnum sveiflum í fram- leiðslunni, og helst skuli alltaf flytja nokkuð inn. Pau leyna sér ekki blóðtengsl DV og frjálshyggju-postula kaup- mannasamtakanna. En því miður eru fleiri en DV-istar á sömu buxunum. Jón Baldvin hefur t.d. tekið mjög í sama streng, umfram framleiðsla búvara sé svo mjög af hinu illa, að slíkt megi ekki fyrir nokkurn mun henda. Pað getur vel verið að auð- velt sé að slá upp á vasatölvu einfölduðunt dæmum, og segja sem svo, að allar millj- ónirnar, sem fara í útflutnings- bætur sé tapað fé. Þcss vegna ber þeim, sem reikna og hlaupa svo með sínar fljót- færnislegu útkomur á torg æpandi þær yfir allan landslýð, að færa rök fyrir máli sínu. Hins vegar er þess naumast að vænta, því hvoru tveggja mun vera, að vand- sönnuð sé þjóðhagsleg hag- kvæmni þess að leggja niður innlenda framleiðslu, til þess að skapa kaupmönnum tæki- færi á að flytja inn varning sem unnt er að framleiða í landinu sjálfu. Og naumast hafa „vasatölvukóngarnir", heldur lausnir á þeim vanda sem skapast við stórfellda fækkun bænda, sem af brott- námi útflutningsuppbóta leiðir. Ég tel naumast ofrausn að gera þá kröfu, að þeim detti í hug að fækkun bænda geti haft áhrif á atvinnu og af- komu annarra landsmanna. Og vegna þess er við hæfi að leita svara hjá DV-istum og krötum alls konar, hvernig eigi að standa að fækkun í bændastétt? Er við hæfi að láta lögmál hendingarinnar ráða? Eða mega landsmenn vænta skipulegrar úrvinnslu á „vandamálinu landbúnaði“? Svona til hægðarauka, og vegna hagkvæmni í niður- skurðinum, vil ég benda á, að lögmáli hendingarinnar fylgja þeir kostir, ef kosti skyldi kalla, að fækkun um eins og einn bónda í hverri sveit, þýðir óhagkvæinni vegna þess að þá dregst saman fram- leiðsla um land allt, án þess að unnt sé að koma við hag- kvæmni í vinnslu og dreif- ingu. Þannig yrði fastakostn- aður sá sami í heildina tekið, sem þýðir aftur það, að á því færri einingar, sem heildar- kostnaðurreiknast, því meira kostar hver eining. Þ.e.a.s. milliliðakostnaður hækkaði, bæði neytendum og bændum til hrellingar. Ef hins vegar, hagfræði reiknistokkanna yrði látin ráða, mætti vafalaust finna út að nóg mætti framleiða af mjólk og kjötí á um það bil hálfulandinu. Þarmeð mætti, með sömu hagfræði, kasta fyrir róða allri uppbyggingu á þeim hluta landsins, sem goð- in höfnuðu. Þetta mundi líka þjóna vel draumum verslun- arráðs um innflutning bú- vara, vegna þess að eftir því, sem framleiðslan yrði á tak- markaðra svæði, væru meiri líkur á að áföll af völdum sjúkdóma og tíðarfars yllu verulegum skakkaföllum. Þar nægir að minna á kalárin norðan, austan og vestan- lands á áttunda áratugnum og vonda vorið ásamt óþurrkasumrunum ’83 og ’84 á Suður- og Vesturlandi. Við skulum vera okkur þess meðvituð, að þýðing landbúnaðar er meiri en svo að ráðlegt sé að vega að honum á þann hátt sem nú er gert. Ég vil því minna lesend- ur á að svara, hver fyrir sig, spurningum eins og þess- ari. Hver er þýðing landbún- aðarins fyrir Blönduós, Egilsstaði, Selfoss, Borgar- nes. Ég sleppi því að minnast á fleiri staði, því ef þessir ekki þola skakkann, þarf naumast að bjóða í þá sem smærri eru. Atvinnumál kauptúna dreifbýlisins, eru það tengd landbúnaðinum að þar verður naumast skilið á milli. Að lokum vil ég segja að mikil sé ábyrgð þeirra manna, sem leynt og ljóst hafa grafið undan íslenskum landbúnaði á liðnum árum. „Aum finnst mér öldin atgerfið mornar" kvað Grímur Thomsen, forðum. Hvað mundi hann kveða nú, ef lifði? Páll Sigurjónsson Galtalæk Reiður Svavar ■ Svavar Gestsson er reiður í DV í gær þar sem hann segir álit sitt á niðurstöðum skoðana- könnunar blaðsins. En Alþýðu- bandalagið fengi samkvæmt henni aðeins 10,5% atkvæða ef kosið yrði nú. Bandalagið hefur ekki fyrr farið svo langt niður í skoðanakönnunum þó það hafi greinilega verið á niðurleið og fengi nú aðeins 6 þingmenn. Svavar telur ástæð- una vera „rógsherferð gegn Alþýðubandalaginu“ sem sé farin að bera árangur. Víst er um það að spjótin hafi mjög staðið á Alþýðubandalaginu seinni hluta vetrar, en spurn- ingin er hvort um er að ræða rógsherferð sem kemur að utan eða hvort skrif blaða einkum DV séu afleiðing af því að í Alþýðubandalaginu eru menn ekki á eitt sáttir um stefnuna. Um það þarf raunar enginn að efast. Vitnin eru fyrst og fremst hvað margir hafa sagt sig úr flokknum undanfarin misseri. Ástæðurn- ar fyrir „kreppu" Alþýðu- bandalagsins eru reyndar næsta augljósar. Flokkurinn hefur hvorki orðið sá stóri, víðsýni og demókratíski flokk- ur sem menn horfðu til á síð- asta áratug, né harður og gegn- umheill verkalýðsflokkur. Þetta síðara er hægara um að tala en í að komast, þar sem verkalýðshreyfingin hefur ver- ið mjög innbyrðis ósamstæð síðastliðinn áratug og náði það Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins: hámarki sínu í verkfalli BSRB í haust, þegar hún gekk tvær götur en í umræðum um verka- lýðshreyfingu er nauðsynlegt Rógurinn berárangur „Ætli þaö sé ekki þessi rógsherferö gegn Alþýðubandalaginu sem er far- in aö bera árangur,” sagöi Svavar formaöur þess, þegar DV leitaði álits hans í morgun á stööu bandalagsins í skoðanakönnun blaös- „Þessar tiöu skoöanakannanir eru skoöanamyndandi. Þegar saman viö þær er blandaö heilum opnum og leiðurum og stanslausum rógi og áróðri gegn einu stjómmálaafli sér- staklega, hlýtur þaö aö koma fram ( þessum skoöanakönnunum. DV hef- ur sannarlega ekki legiö á liði sínu. A þessari niöurstööu blaðsins nú er raunar engin önnur skýring.” HERB að taka bæði ASÍ og BSRB sem fullgilt mengi í því orði. Skoðanakannanir eru skoðanamyndandi En Svavar bendir á annað og það finnst mér laukrétt hjá honum. Það að skoðanakann- anir eru í sjálfu sér skoðana- myndandi. Það gerist t.d. þannig að þegar einn flokkur byrjar að dala og það staðfest- ist í könnun þá eru miklar líkur á að honum haldi áfram að hraka því að kannanirnar móta umræðuna. Þess vegna má beita skoðanakönnunum sem pólitísku vopni. Fram-

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.