NT - 11.06.1985, Blaðsíða 19

NT - 11.06.1985, Blaðsíða 19
 atvinna í boði Laus staða Staða ritara á Vita- og hafnarmálaskrifstof- unni er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna. Umsókn ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist fyrir 14. júní. Vita- og hafnarmálaskrifstofan Seljavegi 32 Sími 27733 Verkstjóri Óskum eftir að ráða verkstjóra á bifreiðaverk- stæði. Einnig mann vanan bifreiðaréttingum. Allar nánari upplýsingar gefur Gunnar Ric- hardsson í símum 95-4128 og 95-4545. Vélsmiðja Húnvetninga. tilkynningar Framhaldsaðalfundur Stýrimannafélags íslands verður haldinn í Borgartúni 18, miðvikudag 12. júní kl. 20.30. Dagskrá samkvæmt félagslögum. 1968 til sölu. Einnig bíl til flutninga fyrir jarðýtu. Selst saman eða sitt í hvoru lagi. Tilboð óskasL Sími 32101. Viftureimar. platinur. kveikjuhamar og þéttir. bremsuvokvi. varahjolbaröi. tjakkur og nokkur verkfæri. Sjúkrakassi og slökkvitæki hafa hjálpaö mörgum a neyöarstundum UMFEROAR RAÐ t Baldur Þorgilsson, frá Vestmannaeyjum áður til heimilis að Miðstræti 3 er látinn. Jaröarförin ferfram frá Dómkirkjunni föstudaginn 14. júní kl. 10.30. Ruth Einarsdóttir, Þorgils Þröstur Baldursson. Hjartanlega þökkum við öllum þeim, sem veittu hjálp og sýndu okkur samúö og vinarhug, viö fráfall og útför eiginmanns míns og sonar okkar, Sigurðar Arnar Aðalsteinssonar er lést af slysförum 26. mai siðastl. Fyrir hönd barna, systkina og annarra vandamanna. Ingibjörg A. Sveinsdóttir, Aðalsteinn Örnólfsson Elín Eiríksdóttir Þridjudagur 11. júní 1985 19 Útlönd I fótspor Rómverja: Skriff innskan þvælist fyrir„fótgönguliðum“ ■ Tíu seinni tíma „rómverskir fótgönguliðar“ þramma nú þung- vopnaðir vfir Alpafjöllin frá Ver- ona á Norður-Italíu í áttina til Augsburg í Bavaríu. Þeir eru vel vopnum búnir eins og vera ber tollayfirvöldum og öðrum skiffinnum til mikils hryll- ings þar sem strangar reglur gilda um allan vopnaflutning niilli landa auk þess sem ítalir banna t.d. vopnaburð á almannafæri. En þeir vonast samt til að komast yfir landamærin án þess að þurfa að grípa til vopna. Tilefni ferðar þeirra er að nú eru tvö þúsund ár frá því að Rómverjar komu fyrst til þess staðar sem nú gengur undir nafn- inu Augsburg. Rómverjar kölluðu staðinn þá Augusta Vendelicum. Þýski styrjaldasagnfræðingur- inn Marcus Junkelmann átti frum- kvæðið að hergöngunni sem er um fimm hundruð kílómetrar. Junk- elmann, sem er 35 ára gamall, hóf undirbúning göngunnar fyrir tveimur árum. Hann telur að sagnfræðingar fjalli yfirleitt allt of fræðilega um söguna og geri sér ekki grein fyrir því að sögulegir atburðir hafi raunverulega gerst. Junkelmann fékk í fyrstu vilyrði fyrir fjárhagsstuðningi frá borgar- yfirvöldum í Augsburg. En þegar borgarstjórnin hafði aflað sér nán- ari upplýsinga um kostnað uppá- tækisins runnu á hana tvær grímur og hún hætti við að gefa fé tii göngunnar. Junkelmann gafst samt ekki upp heldur seldi hann heimili sitt til þess að afla 200.000 marka (2,7 milljónir ísl.kr.). í för með styrjaldasagnfræð- ingnum eru m.a. lögregluþjónn frá Bavaríu, starfsmaður flugfé- lagsins Lufthansa, tryggingasölu- maður og brynjusmiður. Þeir reyna að hafa gönguna alla sem sannsögulegasta og eru þess vegna þungvopnaðir í bókstaflegri Þungvopnaðir fótgönguliðar þramma nú um Evrópu. Tollyfirvöld eru lítið hrifin af hergöngumönnunum. merkingu. Þeir eru í tíu kílóa hringabrynju og halda á tíu kílóa skjöldum. Samtals vegur búnaður hvers og eins um fjörutíu kíló. Til samanburðar má nefna að búnað- ur nútímahermanna í Þýskalandi vegur 21 kíló. Tveir múlasnar voru ætlaðir til burðar á leðurtjöldum og öðrum búnaðir. En múlasnarnir komast enganveginn yfir landamæri vegna strangra reglna um dýrainnflutn- ing. Fótgönguliðarnir hafa búið sig vel undir ferðina líkamlega. Sumir þeirra hafa daglega gengið langar vegalengdir í blývestum til að venja sig við langar og þungar göngur. Indónesía: Kommúnistar skotnir - þráttfyriralþjóðlegmótmæli Jakarta-Reuter ■ Stjórnvöld í Indónesíu til- kynntu nú um helgina að þau væru staðráðin í því að láta skjóta þrjá kommúníska fanga þrátt fyrir áskoranir ástralskra og hollenskra stjórnvalda og annarra um að kommúnistunum verði þyrmt. Mennirnir þrír voru dæmdir til dauða vegna þátttöku sinnar í misheppnaðri tilraun til valdbylt- ingar á Indónesíu fyrir tuttugu árum. Þeir voru handteknir seint á sjöunda áratugnum og dæmdir til dauða um miðjan síðasta áratug. Aftöku mannanna, sem heita Rustomo, DjokoUntungogGatot Sutaryo, hefur lengi verið frestað. En nú hafa stjórnvöld ákveðið að fresta aftökunum ekki lengur. Fyr- ir mánuði var Mohammad Munir fyrrverandi kommúnisti og fagfé- lagsleiðtogi leiddur fyrir aftöku- sveit. Hann hafði verði í fangelsi frá því árið 1968 og árið 1973 var hann dæmdur til dauða. Utanríkisráðherra Indónesíu, Mochtar Kusumaatmadja, segir aftökurnar innanríkismál. Það hefði afdrifaríkar afleiðingar fyrir Indónesa að veita kommúnistun- um uppgjöf saka. Þeir hafi verið félagar í Kommúnistaflokki Indó- nesíu og svikið indónesísku þjóð- ina. Bretland: Sovéskir sendi- ráðsmenn súrir - vilja fá fleiri starfsmenn London-Reutcr ■ Sovétmenn hafa beðið um að fá að fjölga starfs- mönnum í sendiráöi sínu í London. Þykir Sovétmönn- um heldur vera farið að sax- ast á fjöldann eftir að starfs- mönnum þeirra hefur átta sinnum verið vísað úr landi á síðustu 4 árum, ásakaðir um njósnir. Sovéski sendiherrann, Viktor Popov fór fyrr í þess- ari viku á fund Geoffrey Howe lávarðar, utanríkis- ráðherra Breta í þeim til- gangi að biðja hann að hækka kvóta leyfilegra starfsmanna sendiráðsins í sömu tölu og árið 1981 eða 47 menn. Breska utanríkis- ráðuneytið hefur fylgt þeirri stefnu að lækka leyfilegan fjölda sovéskra sendiráðs- starfsmanna í hvcrt sinn sem starfsmanni þess hefur verið vísað úr landi fyrir njósnir. Nú mega starfsmennirnir ekki vera fleiri en 37 þar eð í apríl síðastliðnum var einn starfsmaður sovéska flugfélagsins Aeroflot og fjórir sendiráðsstarfsmenn sendir heim ásakaðir um njósnir. Embætlismenn utanríkis- ráðuneytisins vildu hvorki skýra frá því hvort takmark- anir á núverandi fjölda starfsmannanna hefðu verið teknar til endurskoðunar né um hvað sendiherrann og utanríkisráðherrann hefðu talað, annað en um málefni ríkjanna tveggja. Stefna þessi að minnka kvóta sendiráðsstarfsmann- anna eftir hvern brottrekstur var sett á laggirnar árið 1971 þegar Bretar ráku 105 sov- éska embættismenn og sendi- ráðsstarfsmenn úr landi. Leynilegur varnarsamningur Breta við Chile enn í gildi L.ondon-Reuler ■ Breska tímaritið New Stat- csman heldur því fram að Bretar hafi gert leynilegan varnar- samning við stjórnvöld í Chile þegar Falklandseyjastríðið var árið 1982 og að þessi samningur hafi verið í gildi síðan. Tímaritið vitnar í leynileg skjöl sem þingmaður í stjórnar- andstöðunni hafi komist yfir. Blaðið segir að þar komi fram að Bretar hafi gert samning við stjórn Pinochets um að selja Chilemönnum vopn og aðstoða við þjálfun hersins. Geoffrey Howe utanríkisráð- herra Breta fól embættismönn- um í utanríkisráðuneytinu að gera tillögur um aðgerðir gegn Chile eftir að Pinochet kom aftur á herlögum í nóvembcr á seinasta ári. New Statesman segir að em- bættismennirnir hafi bent á vopnasölubann sem öfluga aðgergð, sem Bretar gætu gripið til. En slíkt bann komi niður á því samstarfi sem Bretar hafi við Chilestjórn á sviði varnar- mála og tengist Falklandseyj- um. Því gcti Bretar ekki sett vopnasölubann á Chile.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.