NT - 11.06.1985, Blaðsíða 8
Þriðjudagur 11. júní 1985 8
Menntaskólanum á ísafirði slitið:
Aldrei fleiri nem-
endur í sögu skólans
■ Laugardaginn 25. maí 1985
var Menntaskólanum á Isafirði
slitið í 15. skipti. Skólaslitaat-
höfnin fórfram í Alþýðuhúsinu.
Að þessu sinni voru braut-
skráðir 26 stúdentar og að auki
einn austurrískur skiptinemi,
sem lauk námi í brautarkjarna
4. árs á náttúrufræðibraut en
hafði áður lokið stúdentsprófi í
heimalandi sínu. Þá brautskráð-
ust fimm nemendur af tveggja
ára viðskiptabraut, en þeir hafa
raunar heimild til að halda
áfram námi við skólann til stúd-
entsprófs, og munu flestir gera
það.
Á liðnum vetri voru 143 nem-
endur við nám í dagskólanum,
en 31 nemandi kom við sögu í
öldungadeild skólans. Nemend-
ur voru því samtals 174, og hafa
líklega aldrei verið fleiri á sama
vetri í sögu skólans.
Hæstu einkunn á stúdents-
prófi hlaut að þessu sinni Sólrún
Geirsdóttir úr Bolungarvík, 1.
einkunn 8,6, sem er vegið með-
altal einkunna frá öllum fjórum ’
námsárunum. Næsthæst varð
Inga Bára Þórðardóttir frá ísa-
firði með 8,3. Hæstu einkunn á
viðskiptabraut á stúdentsprófi
hlaut Guðbjörg Konráðsdóttir
frá ísafirði, 8,2, en þetta var í
fyrsta skipti sem útskrifaðir
voru stúdentar af viðskiptabraut
skólans. Hæstu einkunn á stúd-
entsprófi á náttúrufræðibraut
hlaut Ingi R. Jónsson frá Lauga-
bóli í Nauteyrarhreppi, en
hæstu einkunn á eðli'sfræðibraut
hlaut Theodór Norðkvist frá
ísafirði.
I haust og vetur voru teknar í
notkun í hinu nýja skóiahúsi
fullbúnar kennslustofur fyrir
verklegar greinar, bæði efna-
fræði og eðlisfræði. Fengnar
voru sjö örtölvur af Apple-gerð
og kennsla í tölvunarfræðum
aukin. Nýtt og glæsilegt bóka-
safn skólans er að mestu komið
í gagnið. Á neðri hæð hins nýja
skólahúss er áformað að inn-
rétta kennslustofur fyrir bók-
lega kennslu á vegum Iðnskól-
ans á ísafirði, sem nú býr við
úreltan húsakost. Fullyrða má,
að við fáa eða enga menntaskóla
er nú betur búið að kennurum
en í Menntaskólanum á ísafirði,
en þar hafa kennararnir fengið
nokkur skrifstofuherbergi til
sinna afnota.
Ákveðið hefur verið að stofn-
setja tónlistarbraut við skólann
nú á næsta hausti, og verður
hún starfrækt í náinni samvinnu
við Tónlistarskólann á ísafirði.
Iðnaðarbankinn:
*
Alþjóðleg verðlaun
fyrirársskýrslu’83
■ Ársskýrsla Iðnaðarbankans fyrir árið 1983 hlaut nýlega 2.
verðlaun í samkeppni á vegum alþjóðlegra samtaka 85
auglýsingastofa í 20 löndum. Verðlaunin eru fyrir hönnun og
útlit. Sama ársskýrsla hlaut einnig verðlaun frá Stjórnunarfé-
laginu á síðasta ári fyrir vandaðan ársreikning.
Það var Auglýsingastofan hf., sem hannaði ársskýrslu
Iðnaðarbankans og á myndinni hér að ofan má sjá Val
Valsson bankastjóra og Halldór Guðmundsson frá Áuglýs-
ingastofunni halda verðlaunaskjalinu á milli sín.
Búvörudeild Sambandsins:
Kynntu nýjungar
í framleiðslunni
■ Búvörudeild Sambandsins
hélt um helgina vörukynningu
fyrir kaupmenn og verslunar-
stjóra á Reykjavíkursvæðinu.
Þar voru kynntar flestar þær
vörur sem Afurðasala og Kjöt-
iðnaðarstöð Sambandsins hafa
á boðstólum.
■ „Við kynntum endurskipu-
lagningu Kjötiðnaðarstöðvar-
innar fyrir viðskiptavinum
okkar, en hún hefur í för með
sér breytingar á vinnslunni,“
sagði Magnús Friðgeirsson,
framkvæmdastjóri Búvöru-
deildarinnar. „Hér er á ferðinni
endurskipulagning gæðamála,
endurhæfing uppskrifta og inn-
leiðing nýjunga í framíeiðsl-
unni.“
Búvörudeildin er um þessar
mundir að setja af stað stærstu
og fullkomnustu vélasamstæðu
í landinu, sem sér um sögun og
pökkun á dilkakjöti, þannig að
viðskiptavinir geta keypt
skrokka niðurhlutaða á mis-
munandi vegu. Deildin hefur
fengið umboð fyrir Cryovac,
eitt þekktasta vörumerkið á
sviði lofttæmingarpökkunar.
í tilefni af þessari nýju þjón-
ustu hafa verið hannaðar nýjar
umbúðir utan um kjötvöruna,
sem verða teknar í notkun á
komandi mánuðum.
Listasafn Einars Jónssonar:
■ Gísli Árnason, verkstjóri, Steinþór Þorsteinsson, forstöðumaður Afurðasölu, Hans Kristian
Olesen, yfirkennari í Hróarskeldu, Úlfar Reynisson, forstöðumaður Kjötiðnaðarstöðvar og Gísli
Sigurðsson, verkstjóri kynntu nýjungar hjá Búvörudeild Sambandsins. NT-mynd: Ámi Bjama.
Opiðí
sumar
■ Listasafn Einars Jónssonar
er opið frá 1. júní alla daga
nema mánudaga frá kl. 13.30-
16. Höggmyndagarður safnsins
er opinn daglega frá kl. 11-17.
Geðhjálp
— fyrirlestur
■ Félagið Geðhjálp stendur
fyrir fyrirlestri fimmtudaginn
13. júní 1985 kl. 20.30. Ragna Ól-
afsdóttir, sálfræðingur talar um
Sálarástand kvenna tengt með-
göngu og fæðingu. Fyrirlestur-
inn er haldinn á Geðdeild
Landsspítalans í kennslustofu á
3. hæð og er opið öllum.
UMBOÐSMENN VANTAR
Á EFTIRTÖLDUM
STÖÐUM:
ísafirði, Sandgerði og Grindavík.
Upplýsingar gefur Kjartan Ásmundsson í
síma 91-686300.
Safnað til aðstoðar þróunarlandakonum
■ Alþjóðahópur íslenskra
kvenna vegna kvennaáratugs
Sameinuðu þjóðanna hratt fyrr
á þessu vori af stað söfnun í
samvinnu við „85-nefndina“ til
aðstoðar við konur í þróunar-
löndunum. Verður það sem inn
kemur lagt í sjóð sem margar
þjóðir standa að og er verkefnið
að koma fræðslu um heilbrigð-
ismál, brunna, hreinlæti, með-
ferð ungbarna o.fl. til kvenna í
afskekktum þorpum með nýrri
tækni - myndbandatækni, en
konurnar eru flestar ólæsar og
ekki hefur tekist að ná almenni-
lega til þeirra á hefðbundinn
hátt. Fyrsta myndbandið er um
vatnsöflun, brunna og meðferð
vatns, unnið af Kenyakonum
sem hafa hlotið sérstaka þjálfun
í því. Þykir þetta á alþjóðavett-
vangi, hjá Barnahjálparsjóðn-
íum, Heilbrigðisstofnun S.Þ.
So.fl., mjög mikilvægt framtak
sem getur haft langvarandi og
þfdrifaríkar afleiðingar í þá veru
að bæta ástandið í afskekktu
þorpunum sem verst er að ná til.
Hafa safnast um 70 þúsund
krónur inn á gíróreikning
146016 í útibúi Samvinnubank-
ans við Suðurlandsbraut, mest
komið frá fundum kvenna og
félögum. Eru konur því hvattar
til að minna á söfnunina og
safna fé (í fötur) á samkomum
sínum. Er ætlunin að reyna að
gera átak í sambandi við trjá-
ræktarátakið í tilefni Kvenna-
áratugarins og láta söfnunarföt-
ur vera á þeim stöðum sem
konur koma saman á til að
planta.
Þann 16. júní kemur Elín
Bruusgaard, norsk kona sem
staðið hefur að þessu og fleiri
verkefnum kvenna á Kvenna-
áratugnum, og mun hún flytja
ávarp á Þingvöllum á samkomu
19. júní nefndarinnar, auk þess
sem hún mun reyna að fræða
íslenskar konur um það verk-
efni sem söfnunin styður. Eru
íslenskar konur hvattar til að
gleyma ekki þessu mikilvæga
verkefni, að styðja kynsystur
sínar í þróunarlöndunum og
leggja inn á fyrrnefndan gíró-
reikning í Samvinnubankanum.