NT - 11.06.1985, Blaðsíða 21
/ \/
Þriðjudagur 11. júní 1985 21
■ Mats Wilander - sigraði Lendl í úrslitunum og McEnroe í undanúrslitunum.
Undarlegur tími til móta:
Miðnæturmót
- hjá frjálsíþróttadeild
■ Sennilega er það allóvenju- .
legt að frjálsíþróttamót hefjist
klukkan 22 á Iaugardagskveldi,
en það var sá tími sem ákveðinn
var fyrir boðsmót ÍR, sem hald-
ið var um síðustu helgi.
í 100 m hlaupi kvenna sigraði
Svanhildur Kristjánsdóttir,
UBK, á 12,00 sek., en það er
besti löglegi tíminn sem hún
hefurnáð. EvaSifHeimisdóttir,
ÍR, varð önnur á 13,00 og
IR
Súsanna Helgadóttir, FH,
þriðja á 13,1. Nokkriryfirburðir
hjá Svanhildi.
Önnur úrslit urðu þessi:
100 m hlaup karla
1. Jóhann Jóhannsson, ÍR 10,8 sek.
2. Guðni Sigurjónsson, KR 11,2 sek.
3. Gunnlaugur Grettisson, ÍR 11,3 sek.
400 m hlaup kvenna.
1. Oddný Árnadóttir, ÍR 55,1 sek.
2. Súsanna Helgadóttir, FH 61,0 sek.
1500 m hlaup karla.
1. Sigurður P. Sigmarss., FH 4:01,6 mín.
2. Hannes Hrafnkelss., UBK 4:02,2 min.
3. Steinn Jóhannsson, ÍR 4:03,3 mín.
Johan Cruyff:
Ráðinn til Ajax
- sem tæknilegur ráðanautur
■ Johan Cruyff knattspyrnu-
snillingurinn hollenski, hefur
verið ráðinn „tæknilegur ráð-
gjafi“ hjá sínu gamla félagi
Ajax í Amsterdam. Cruyff er
nú 38 ára en hann lagði skóna á
hilluna nú í vor eftir 20 ára
glæstan feril. Hann lék með
Feyenoord síðustu tvö árin og
varð hollenskur meistari og
bikarmeistari með félaginu.
1983 neitaði stjórn Ajax að
endurnýja samning sinn við
Cruyff. og sagði að hann ynni
ekki lengur fyrir laununum
sínum, væri sífeilt meiddur og
léki ekki eins vel og fyrr. Cruyff
fór þá til skæðustu keppinaut-
anna í Rotterdam ogsannaði að
þessar fullyrðingar voru ósann-
ar.
Nú er allt fallið í Ijúfa löð
milli Cruyff og Ajax: „Ég er
ánægður og hlakka til að takast
á við nýja starfið. Þegar allt
kemur til alis hefur hugur minn
alltaf verið hjá Ajax enda lék ég
þar í tuttugu ár.“
Hástökk karla.
1. Þorsteinn Þórisson, ÍR 1,95 m.
2. Gunnlaugur Grettisson, ÍR 1,90 m.
3. Stefán Þ. Stefánsson, ÍR 1,85 m.
Mótinu lauk svo með grill-
veislu, gftarspili og söng.
MOLAR...
■ ...Benfíca tryggði sér
í fyrrakvöld réttinn til að
leika í Evrópukeppni
bikarhafa í haust, er liðið
sigraði Covilha 2-0 í
undanúrslitum portú-
galska bikarsins. í úr-
slitunum mætir liðið
Porto, sem sigraði Var-
zim 1-0. Þetta verður
sannkallaður draumaúr-
slitaleikur, því Porto
vann deildina með mikl-
um yfírburðum, en Ben-
fíca varð í 3. sæti...
■ Utrecht varð bikar-
meistari Hollands í knatt-
spyrnu er liðið sigraði
Holmond í úrslitaleik 1-0.
Jon van Lön skoraði
sigurmarkið á síðustu
mínútu leiksins.
■ Paraguay vann sann-
færandi 3-0 sigur á Bóli-
víu á sunnudag í undan-
keppni HM. Mendoza og
Macquet skoruðu fyrir hlé
og Romero snemma í síð-
ari hálfleik.
Lee Trevino sigraði á Opna Breska goifmótinu með
Draumahöggi
Cruyff - aftur til Ajax.
■ „Áhorfendur öskruðu svo
mikið að ég hélt að ég hefði
slegið kúluna beint ofan í hol-
una í öðru högginu og náð
aibatrossi,“ sagði Lee Trevino
eftir að hafa farið síðustu hol-
una á breska meistaramótinu í
golfi á eagle, eða tveimur högg-
um undir pari. Þar með innsigl-
aði Trevino sigur sinn á mótinu.
Hann lék holurnar 72 á 278
höggum, þar af lék hann síðasta
hringinn á 67 höggum eða fimm
undir pari.
En það var draumahöggið á
Opna franska meistaramótið í tennis:
Enginn átti von á
að ég ynni mótið
- ekki einu sinni ég, sagði Mats Wilander eftir sigurinn í Lendl
■ „Enginn átti von á því að ég
myndi vinna mótið, ekki einu
sinni ég sjálfur. Ég var því ekki
undir neinni pressu og gat ein-
beitt mér að leiknum,“ sagði
Svíinn Mats Wilander eftir að
hafa borið sigurorð af Ivan
Lendl frá Tékkóslóvakíu í úr-
slitaleik einliðaleiks karla á
opna franska meistaramótinu í
tennis á sunnudag. Lendl vann
fyrstu lotuna 6-3, en Wilander
næstu þrjár, 6-4, 6-2, og 6-2.
Leikurinn stóð yfir í rúmar
þrjár klukkustundir og var ekki
mjög skemmtilegur til að byrja
með. En síðan æstist leikurinn.
Lendl gekk illa að gefa boltann
upp, sem venjulega er hans
sterkasta hlið og eftir leikinn
sagði hann að það hefði farið
mjög í taugarnar á sér. „En ég
mun vinna aftur næsta ár, þá
mun ég leggja miklu harðar að
mér,“ sagði Lendl, sem sigraði
á mótinu f fyrra. Wilander sigraði
á mótinu fyrir þremur árum.
í einliðaleik kvenna sigraði
Chris Evert-Lloyd Martinu
Navratilovu 6-3, 6-7 og 7-5 í
úrslitunum. Þetta var 6. sigur
Evert-Lloyd á mótinu og hefur
engin kona unnið þetta mót svo
oft. Björn Borg hefur unnið
einliðaleik karla sex sinnum.
„Þetta var einhver erfiðasti
leikur, sem ég hef leikið, sagði
Évert-Lloyd eftir leikinn.
„Navratilova er sú besta í heim-
inum og því var enn meira
gaman að vinna hana,“ sagði
hún. „Þetta var stórkostlegur
leikur og það er slæmt að ein-
hver skyldi þurfa að vinna. Það
mundi ég einnig hafa sagt ef ég
hefði sjálf unnið,“ sagði
Navratilova eftir leikinn.
En Navratilova sneri þó ekki
tómhent frá París. Hún sigraði
ásamt Pam Shriver þær Claudiu
Kohde-Kilsch og Flelenu Suk-
ovu í tvíliðaleik kvenna 4-6, 6-2
og 6-2. Og í tvenndarkeppninni
sigruðu þau Heinz Gúnthardt
Francisco Gonzalez og Paulu
Smith 2-6, 6-3 og 6-2.
Ástralíumennirnir Mark
Edmondson og Kim Warwick
unnu Shlomo Glickstein og
Hans Simonsson 6-3,6-4,6-7 og
6-3 í tvíliðaleik karla.
■ Chris Everf Lloyd - allra kvenna oftast unnið opna franska
meistaramótið, eða sex sinnum.
Undankeppni HM í knattspyrnu:
Maradona með mark
- og Argentínumönnum gengur vel
■ Argentína lék sér að
Venezúela er liðin mættust í 1.
riðli undankeppni Suður-Amer-
íku fyrir HM í knattspyrnu.
Lokatölur urðu 3-0 og eru Arg-
entínumenn því langefstir í riðl-
inum.
Angel Russo skoraði fyrsta
markið á 28. mín. og á síðustu
þremur mínútum leiksins skor-
uðu Argentínumenn tvisvar.
Fyrst Nestor Clausen og síðan
snillingurinn Diego Maradona.
Venezúelabúar áttu ekki skot
að marki heimamanna allan
leikinn.
Þá gerðu Perú og Kólumbía
markalaust jafntefli ísama riðli.
Staöan í riðlinum er nú þessi:
Argentína......... 3 3 0 0 9 3 6
Perú..................3 1 1 1 1 1 3
Kólumbía..............3 1 1 1 2 3 3
Venezúela............ 3 0 0 3 2 7 0
Frakkland:
Mónakó meistari
síðustu holunni sem allt snerist
um. Kúlan þaut um 240 metra
og lenti 15 cm frá holunni.
Eftirleikurinn var því Trevino
auðveldur. „Ég mun ekki
gleyma þessu höggi í langan
tíma, því þetta er það besta sem
ég hef nokkurn tíma náð við
þessar aðstæður.
Roger Davis varð í öðru sæti
á mótinu með 281 högg og Nick
Faldo, Paul Way og Severiano
Ballesteros urðu jafnir í því
þriðja með 283 högg.
- unnu bikarkeppnina
■ Mónakó varð franskur
bikarmeistari í knattspyrnu á
laugardaginn er iiðið sigraði
Paris Saint Germain með einu
marki gegn engu í úrslitaleik.
Leikurinn var jafn og barátta
í fyrirrúmi en eina mark leiksins
skoraði franski landsliðsmaður-
inn Bernard Genghini á 14.
mínútu. Mónakó sem hefur níu
landsliðsmenn frá fjórum lönd-
um innan sinna vébanda, réð
lögum og lofum í fyrri hálfleik
en Parísarliðið sótti stíft í þeim
seinni. Mónakó getur þakkað
góðri vörn fyrir að París S. G.
tókst ekki að jafna. Þetta er
annar bikarsigur Mónakó á síð-
ustu fimm árum.
■ Maradona - innsiglaði
sigurinn.
ToshacktilSpánar
■ John Toshack, fyrrverandi
leikmaður Liverpool og Swan-
sea og framkvæmdastjóri þess
síðarnefnda, skrifaði um helg-
ina undir tveggja ára samning
hjá Real Sociedad í spænsku 1.
deildinni.
Toshack mun taka við stjórn-
artaumunum af Alberto
Ormaetexa. I vetur var hann
framkvæmdastjóri Sporting
Lissabon og undir hans stjórn
náði félagið öðru sætinu í
portúgölsku 1. deildinni.
ÞórlagðiÍBÍ
■ Þór frá Akureyri
lagði ísafjörð 1-3 á útivelli
á laugardag í 1. deild
kvenna. Anna Einars-
dóttir skoraði tvö marka
Akureyrarstúlknanna, en
Kolbrún Jónsdóttir hið
þriðja. Ingibjörg Einars-
dóttir svaraði fyrir þær
ísfírsku.