NT - 11.06.1985, Blaðsíða 11
FrímerkjasöfnunV
Greining
merkjanna
■ Þegar við svo greinum merkin, þá
er fyrsta greining auðvelu. Við grein-
um merkin eftir því til hvers við
ætlum að nota þau. Ef við söfnum
hinum ýmsu löndum, þá greinum við
þau eftir landanöfnunum sern standa
á þeim. Ætlum við að safna ákveðinni
tegund, tegundasafni, þá greinum við
öl! merki með myndum af skipum,
bílum, mönnum o.s.frv. saman. Ef
um er að ræða þemasafn, að segja
einhverja sögu með frímerkjunum,
þá greinunt við öll merki með mynd-
um er fallið geta inn í frásögnina út af
fyrir sig. Þetta getum við kallað grófa
greiningu. Þá skulunt við einnig
greina sér merki með greinilegum
stimplum, einkum eldri stimplum,
sem við eignumst oft afleyst.
Næst kemur svo að því að greina
merkin svokallaðri fíngreiningu. Þá
þurfum við að nota verðlista eða
handbækur. Frímerkjaskrár eru
margar til. Allt frá skrám yfir einstök
lönd, sbr. íslenska frímerkjaverðlist-
ann, „íslensk frímerki1- upp í heims-
lista, Scott, Michel, Yvert o.fl. Þá eru
einnig til svæðalistar, Facit, AFA,
Borek o.fl.
Frímerkjasöfnuit VI
Geymsla
merkjanna
■ Þá kemur að því að ákvarða
hvernig við ætlum að geyma merkin
okkar. Varla kemur annað til mála en
að velja fallegustu ejntökin úr fyrir
eigið safn og setja þau upp í safnbók
(albúm). Þá er um ýmislegt að ræða.
Fá má margskonar safnbækur með
áprentuðum reitum á síðunum til að
setja í eitt af hverju merki, jafnvel
eru algengustu afbrigði tekin með í
sumar slíkar safnbækur. Þá eru
nokkrar svo vel útbúnar að á reitun-
um eru sérstakir vasar til að stinga
merkjununt í. Allarþessar safnbækur
má nota meðan verið er að ná saman
heilu slíku safni frínterkja. Þá má
einnig bæta inn blöðum fyrir viðbót-
armerki er safnarinn vill hafa með,
afbrigði, litarblæbrigði o.þ.h.
Sé hinsvegar um tegundasafn eða
þemasafn að ræða, þá er lítið af
tilbúnum safnbókum fyrir slíkt og
viðkomandi safnari verður að útvega
sér sérstakar safnbækur sem ýmist
eru hvít, grá eða í öðrum lit, auk þess
sem þau fást með mismunandi þéttri
rúðustrikun, þá oftast í mjög daufum
lit.
En hvað skal svo gera við auka-
merkin?
Sé ekki um mjög mikið magn að
ræða, má sem best geyma þau í
innstungubókum, sem eru til af mörg-
um gerðum og stærðum. Sé hinsvegar
um mikið magn að ræða má geyma
þau í glærum umslögum, sem sérstak-
lega eru gerð til geymslu. Er þú hefir
valið úr bestu merkin fyrir safnið þitt,
er rétt að setja þau merki, sem eru
mjög góð eintök inn í innstungubók,
en það sem þá er eftir, miður góð
eintök, má svo geyma í umslögunum.
Þá má grípa til þeirra ef maður er í
vandræðum. Umslögunum má raða
upp í kassa og merkja þau, svo
fljótlegra sé að finna merkin aftur.
Hvernig á svo að skipuleggja
geymsluna, bæði í innstungubókun-
um og í umslögunum?
Tilvalið er að raða merkjunum í
númeraröð samkvæmt frímerkjaskrá,
þ.e.a.s. í aldursröð. Þegar um teg-
undasafn eða þemasafn er að ræða,
heldur viðkomandi hverri tegund fyr-
ir sig, tegundasafninu aðgreindu und-
ir mismunandi lönd og í aldursröð
innan þeirra, en þemanu í þeirri röð
sem sagan er sögð.
Það er sameiginlegt hjálpartækjun-
um, sem nefnd voru í síðasta kafla,
og hjálpartækjum þeim sem hér eiga
við, að hægt er að fá margar gerðir og
mismunandi, bæði að verði og
gæðum. Því skyldi það brýnt fyrir
söfnurum að kynna sér vel hvað er á
markaðnum og ákveða hvað þeir
vilja nota, áður en ráðist er í kaupin.
Auk þess eiga frímerkjaverslanirnar
bæklinga um þau hjálpartæki sem
þær hafa umboð fyrir, auk sölulista er
þær gefa sjálfar út. Því ættu safnarar
og ekki síst byrjendur að leita vel
fyrir sér, áður en ákvörðun er tekin.
Aðalatríðin við geymslu merkj-
anna er að ganga svo vel frá þeim að
þau verði ekki fyrir neinum
skemmdum, auk þess sem þægilegt sé
að finna þau aftur hvenær sem er og
grípa til þeirra, annað hvort til eigin
notkunar eða skipta við aðra frí-
merkjasafnara. Því getur verið gott
að setja lítil spjöld milli umslaganna
í pappakassanum, t.d. með landaheit-
um, tegundaheitum eða jafnvel 10.
hverju númeri. Þá er fljótlegra að
finna það sem leitað er að.
Þá má geyma fyrsta dags stimpluð
bréf og önnur heil bréf sem geymd
eru í t.d. skókössum og raða þeim
skipulega með merkispjöldum á milli.
Allt þetta auðveldar seinni vinnu
með merkin eða umslögin.
Sigurður H. Þorsteinsson.
Auk frímerkjatangarinnar þurfum
við nú einnig fleiri hjálpartæki.
Vatnsmerkjaleitara, takkamál, lit-
greiningarbók eða sýnishorn, stækk-
unargler og nákvæmt mælitæki fyrir
bæði pappírsþykkt og stærð myndllat-
ar frímerkjanna, sem getur verið
mismunandi.
Við skulum taka fyrir síðu úr
íslensk frímerki og skoða hvaö hún
hefir að segja okkur. Við sjáurn strax
á meðfylgjandi mynd að þetta eru
ekki svo fá atriði, en til þess að greina
nú merkin örugglega rétt, þurfum við
að kunna að nota frímerkjaskrána.
Svo eru til ýms merki, sérstaklega
eldri, sem greina þarf eftir mismun-
andi prentunum og jafnvel í kvarts-
lampa, þá þurfum við að grípa til
frímerkjahandbóka eins og t.d.
Handbók um íslensk frímerki, eða
Kohl hins þýska, þegar um íslensk
merki er að ræða.
En skoðum nú betur síðu frí-
merkjaskrárinnar:
1) Útgáfudagur og ár.
2) Tilefni útgáfu.
3) Númer frímerkisins í viðkom-
andi skrá.
4) Burðargjaldsverð frímerkisins.
5) Litur/Iitir viðkomandi frímerkis.
6) Upplag frímerkisins.
7) Verð ónotaðra frímerkja.
8) Verð notaðra/stimplaðra frí-
merkja.
9) Afbrigði í frímerkinu.
10) Teiknari/myndefni frímerkj-
anna.
11) Prentunarstaður frímerkjanna.
12) Tökkun frímerkjanna.
13) Mynd af frímerkjunum.
14) Afbrigði í pappír.
15) Sérstakar útgáfur/yfirprentanir
frímerkjanna.
16) Á hvaða frímerki (aðalnúmer)
fór yfirprentun fram.
17) Verð bréfa, hér stimplaðra á
fyrsta notkunardegi.
Af öllu þessu sjáum við að fíngrein-
ing merkjanna er ekki svo lítið verk.
Þegar henni er lokið kemur svo að því
að koma merkjunum fyrir á þann hátt
er við hyggjumst geyma þau.
Einn er sá hlutur er við skyldum
alltaf hafa í huga er við fíngreinum
merki, en það er að taka frá öll gölluð
merki og beinlínis henda þeim ef þau
eru rifin eða mikið skemmd á annan
hátt. Vanti einn takka á gömul dýr
merki, má geyma þau sér, en reynið
aldrei að selja þau eða skipta á þeim
sem ógölluðum. Sama er að segja um
merki illa stimpluð, þá er átt við þar
sem stimpill hefir klínst, eða ef um
vélstimpil, bárur, er að ræða.
Sigurður H. Þorsteinsson.
Þriðjudagur 11. júní 1985 11
24 islensk frimerki
anna og eru pað prufuprent- anir/Tho 20 aurar is lound im- perlorate in alt the colours and are proofs. 227. 25 aurar, grænt 200.- 300.- 228 30 aurar, brúnt 200.- 300.- 229. 40 aurar, fjólubláft 200.- 300.- F.D.C. Ldes 1938 1100 -
219. 35 aurar, höiðblátt (500.000)
Blettur vinstra megin á spás-
síöu ...................
^220^ 40 aurar. brúnt (200.000) . . .
***22*1 * *45 aur'ár, b'l'átt.'Þvkkur pappir
6.1 .'40 (600.00« . . .
Þunnur pappipfeoO.OOQ) 26.3.
1945 ...................
222. SO aurar. dökkgrænt (500 000)
Böaurar, blátt (700.000) 1.5.'43
Oúlakkaö ............................
224. ikröna^i^rtblétt (1 millj.)
Takkað: IIVí.
225. 60 aurar.blátt (500.000)
' 15.1.1947 ...............
226. 1 króna, svarlblátt (500.000)
15.1.1947 ...............
Sett (10) ...............
F.D.C. 217,218.219og 222.
1. apríl 1938 .......
F.D.C.220og 240-244,10.
mai 1939 ................
' F.D.C. 221,245og 248.6. jan.
1940 ..................
F.D.C.223.247,250.251 OQ
■F.D.C. 224,246,249 og 254,
26 marz1945 ............
ÍI93B, 1. des. Háskóli íslánds/ C
' University of lcelancj. '■
20 ára sjalfstæði/gdth Anniv. of
Independence?
C ) Teikning: Guðjón Samúelsson
. Prentun: Thomas de la Rue.
W' Takkað: 13'A "
Upplag: 100.000.
' MíTtœmizwimffi
JltMvEttStTAS tSUNOÍÁÉ
1941. Endurútgála. aldrei sett
i umferö/Reprinted never ollic-
iallyissued.
Prentun: Rfkisprentsmiðjan Gutenberg.
230. 5/35 aurar.bláttínr. 206)
(450 000) . ”~* ! 20T
Tvöföldylirprentun (1Q0) ■ .
r.P.C.S7 maTrÍ939 ... .
231. 25-3 aurar, grágrænt (nr. 203)
(500.000) .................. 20,-
F.D.C. 6. mars 1941 ........
25.-
5500.-
1939, 30. apríl. Heimssýningin í .
New York/New York World Falr.
Prentun: Thomas de la Rue.
Ýmsar teikningar: Halldór Pótursson.
Takkað:14.
iT3".nii
oznSzcD
{32. 20aurar,rautt. Kulaogkeila
v(350 000) nr:236 .......... 100.-
233. 35aurar,"heíöblatt. Skip Leils
Elrikssonar og leiö hans til
Dráttarvéladekk:
600x16 6PLY
600x19
650x16
750x16
900x16
10x28
11x28
12x28
13x28
14x30
14x34
Vagndekk:
10.0x15
11.5x15
12.5x15
6PLY
6PLY
6PLY
10PLY
6PLY
6PLY
6PLY
6PLY
6PLY
6PLY
10PLY
10PLY
14PLY
Verð meðsölusk.
kr. 3.685.-
kr. 3.523.-
kr. 3.875.-
kr. 4.997.-
kr. 11.003.-
kr. 12.765.-
kr. 15.260.-
kr. 16.439.-
kr. 19.978.-
kr. 26.560.-
kr. 30.663.-
kr. 6.943.-
kr. 8.608.-
uppseld- væntanleg
13.0x16 10PLY kr. 11.665.-
Heyvinnuvéladekk:
300x4 kr. 594.-
400x4 kr. 654.-
350x6 kr. 748.-
350x8 kr. 789.-
400x8 kr. 962.-
400x12 JF kr. 1.123.-
s BUNADARDEILE
> SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 108 REYKJAVÍK SiMI 38900