NT


NT - 11.06.1985, Síða 14

NT - 11.06.1985, Síða 14
Sjónvarp kl. 22.05: Sjónvarp kl. 20.40: Kortagerð fyrr og nú Þriðjudagur 11. júní 1985 14 ijonvarp ■ Gefa fegurðarsamkeppnir fallegum stúlkum ómetanleg tækifæri til að sjá sig um í heiminum og Öðlast lífsrcynslu? TN-raynd: Ari. ■ Kortagerð að fornu og nýju nefnist kanadísk fræðslu- mynd um landabréf, sem sýnd verður í sjónvarpi í kvöld kl. 20.40. Þar er rakin saga kortagerð- ar frá upphafi og athygli vakin á því að nútímaaðferðir byggj- ast enn þann dag í dag á þeim lögmálum sem Forn-Grikkir uppgötvuðu á sínum tíma. I þættinum verða sýndir furðu nákvæmir uppdrættir gerðir af nokkrum hinna ævintýra- gjörnu sæfara sem upphaflega könnuðu ókunn úthöf, svo sem Kristófer Kólumbusi, Samuel De Champlain, Cook kafteini o.s.frv. í þættinum eru sýndar þær aðferðir sem notast er við til að gera kort, allt frá loftmynda- tökum eða geimhnattasend- ingum til fullfrágengins landa- bréfs. Þar er einnig sýnd ný tækni sem gerir vísinda- mönnum fært að komast að raun um hvar er að finna náttúruauðlindir. Sú tækni ger- ir vísindamönnum einnig kleift að kanna yfirborð fjarlægra himinhnatta án þess að þurfa að hreyfa sig úr stólnum á rannsóknarstofum sínum. Þýðandi og þulur er Bogi Arnar Finnbogason. ■ Það skiptir miklu máli fyrir þá sem stýra farartækjum á láöi og legi aö hafa sem nákvæmust kort. Þátturinn í sjónvarpi í kvöld skýrir hvernig staðið er að slíkri kortagerð. Umræðuþáttur um fegurðarsamkeppnir ■ I kvöld kl. 22.05 liefst urn- ræðuþáttur í beinni útscndingu í sjónvarpi undir umsjón Ein- ars Arnar Stefánssonar frétta- nianns. Umræðuefnið er feg- urðarsamkeppnir. Sem kunnugt er eru skoðan- ir mjög skiptar um ágæti fegurðarsamkeppna. Sumir halda fram þeirri skoðun að hér sé um saklausa skemmtun að ræða, sem í besta falli gefi ungum fallegum og hæfileika- ríkum stúlkum tækifæri til að koma sér áfram í veröldinni. Aðrir, og sú skoðun á sér einkum hljómgrunn meðal kvenna, líta svo á, að hér sé ekki einungis um algert hé- gómamál að ræða, heldur sé hreinlega verið að svívirða konur með þessum uppákom- um. Vafalaust eiga bæði þessi sjónarmið sér málsvara í þættinum í kvöld en viðmæl- endur Einars Arnar eru Baldv- in Jónsson, en hann veitir for- stöðu fegurðarsamkeppninni hér á landi, María jóhanna Lárusdóttir, ein þeirra kvenna sem mættu á borgarstjórnar- fund á dögunum, Theódóra Þórðardóttir, Fegurðardrottn- ing íslands 1963 ogséra Baldur Kristjánsson. ■ Eða eru feguröarsam- keppnir konum til háðungar? NT-mynd: Arni Bjarna Beint útvarp frá Alþingi ■ í kvöld kl. 20 hefst bein útsending frá almennum stjórnmálaumræðum í samein- uðu þingi, eldhúsdagsumræð- um, og þykir mörgum senni- lega forvitnilegt að heyra hvað þingmennirnir hafa að færa þjóðinni nú í þinglok. Umferðirnar verða tvær, og fær hver þingflokkur til um- ráða 15-20 mínútur í fyrri um- ferð og 10-15 mínútur í hinni síðari. Þriðjudagur 11. júní 7.00 Veðurtregnir. Fréttir Bæn. „Morgunútvarpið" 7.20 Leikfimi. Tilkynningar. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Valdimars Gunnarssonar frá kvöldinu áöur. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð Hró- bjartur Árnason talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Börn eru besta fólk“ eftir Stef- án Jonsson Þórunn Hjartardóttir les (15). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For- ustugr. dagbl. (útdr.) Tónleikar. 10.45 „Man ég það sem löngu leið“ Ragnheiöur Viggósdsóttir sér um þáttinn. 11.15 í fórum mínum Umsjón Inga ■ Eydal (RÚVAK) 12.00 Dagskrá. Tilkynningar 12.30 Frétlir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.30 Inn og út um gluggann Um- sjón Sverrir Guðjónsson. 13.40 Tónleikar 14.00 „Hákarlarnir" eftir Jens Björnebo Dagný Kristjánsdóttir þýddi. Kristján Jóhann Jónsson les (7). 14.30 Miðdegistónleikar a. „Draum- ar og ástríður", þáttur úr „Óra- hljómkviðunni" eftir Hector Berlioz. Sinfóníuhljómsveitin í Chicago leikur; Georg Solti stjórnar. b. Sin- fónía í C-dúr eftir Igor Stravinský. Suisse Romande-hljómsveitin leikur; Charles Dutoit stjórnar. 15.15 Út og suður Endurtekinn þáttur Friðriks Páls Jónssonar frá sunnu- degi. 15.45 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Upptaktur Guðmundur Ben- ediktsson. 17.00 Fréttir á ensku 17.05 „Sumar á Flambardssetri“ eftir K.M. Peyton Silja Aðalsteins- dóttir les þýöingu sina (4). 17.35 Tónleikar 17.50 Síðdegisútvarp Sverrir Gauti Diego. 18.20 tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. 19.45 Tilkynning- ar. Dagiegt mál. Sigurður G. Tóm- asson flytur þáttinn. 20.00 Útvarp frá Alþingi Almennar stjórnmálaumræður í sameinuðu þingi (eldhúsdagsumræður). Um- ferðir verða tvær, og fær hver þingflokkur til umráða 15-20 mín- útur í fyrri umferð og 10-15mínútur í hinni síðari. Veðurfregnir. Tón- leikar. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Þriðjudagur 11. júní 10:00-12:00 Morgunþáttur. Stjórn- andi: Þorsteinn G. Gunnarsson. 14:00-15:00 Vagg og velta Létt lög leikin af hljómplötum. Stjórnandi: Gisli Sveinn Loftsson. 15:00-16:00 Með sínu lagi. Lög leikin af islenskum hljómplötum. Stjórn- andi: Svavar Gests. 16:00-17:00 Þjóðlagaþáttur. Komið viö vitt og breitt í heimi þjóðlagatónlistarinnar. Stjórnandi: Kristján Sigurjónsson 17:00-18:00 Frístund. Unglingaþátt- ur. Stjórnandi: Eðvarð Ingólfsson. Þriggja mínútna fréttir sagðar klukkan: 11:00, 15:00, 16:00 og 17:00. Þriðjudagur 11. júní 19.25 Guðir og hetjur í fornum sögnum. Annar þáttur. Ástralsk- svissnesksur myndaflokkur í sex þáttum um grískar og rómverskar góösagnir. Þýðandi og þulur Bald- ur Hólmgeirsson. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Kortagerð að fornu og nýju kanadísk fræðslumynd um landabréf. I myndinni er lýst aö- ferðum Forn-Grikkja og land- könnuða fyrri alda og síðan þeirri tækni sem nú er beitt, Ijósmyndum úr lofti og tölvuvinnslu. Þýðandi og þulur Bogi Arnar Finnbogason. 21.15 Verðir laganna. Frumskóga- fár - fyrri hluti. Bandarískur fram- haldsmyndaflokkur um iögreglu- störf í stórborg. Aöalhlutverk: Dan- iel J. Travanti, Veronica Hamel og Michael Conrad. Þýðandi Bogi Arnar Finnbogason. 22.05 Umræðuþáttur Umsjón: Einar Örn Stefánsson, fréttamaður. 23.00 Fréttir f dagskrárlok.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.