NT - 27.06.1985, Blaðsíða 1

NT - 27.06.1985, Blaðsíða 1
fl« Tjarnarskólinn: Frítt húsnæði hjá borginni ■ Davíð Oddsson borgarstjóri og Ragnar Júlíusson fornraður fræðsluráðs hafa heitið nýja einkaskólanum í Reykjavík, Tjarnarskóla, endurgjaldslausu eða mjög ódýru húsnæði til starfseminnar í gamla Miðbæj- arskólanum, þar sem Vestur- bæjarskóli og Námsflokkar Reykjavíkur eru m.a. til húsa. Jafnframt er því heitið að skól- inn fái til afnota þann fermetra- fjölda senr áskilinn er sam- kvæmt grunnskólalögum, en það eru skilyrði sem Vestur- bæjarskólinn hefur aldrei búið við. Málið hefur ekki verið lagt fyrir fræðsluráð, borgarráð eða borgarstjórn. Ragnhildur Helgá- dóttir menntamálaráðherra hef- ur þegar veitt skólanum Starl's- leyfi. Við niðurröðun nemenda í bekki verður notuð sama aðferð og í Hagaskólanum, að sögn forráðamanná skólans, ákveðin stýring verður viðhöfð, en ekki alfarið raðað í bekki eftir getu. Sjá bls. 24. Ef þú skuldar milljón: Hækkar láníð um 30.000 kr. í júlí - aðallega vegna launahækkana byggingarmanna ■ Seðlabankinn hefur reiknað út lánskjaravísitölu fyrir júlímánuð og reyndist hún 1178 stig, sem er 2,97% hækkun úr 1144 stigum í júní. Þessi hækkun kemur til með að hækka hverja milljón króna í verðtryggðum skuldum um 29.700 krónur nú um mánaðamótin og það sama gildir að sjálfsögðu um hverja vcrðtryggða milljón króna inneign, fyrir þá sem eru svo lánsamir að eiga einhverja slíka. Að sögn Seðlabankans stafar þessi hækkun einkum af kaup- hækkunum byggingarmanna að undanförnu, þ.e. að taxtar útseldrar vinnu hækkuðu vísitölu byggingarkostnaðar um 4,3%. En hjá Seðlabanka telja menn líkur á að meðalhækkun næstu má’nuði verði talsvert minni. Untreiknað til árshækkunar hefur hækkun lánskjarávísitölunn- ar verið sem hér segir: Síðasta mánuð 42,1% síðus'tu 3 mánuði 28,7%, síðasta hálfa árið 37,1% og á einu ári 30,5% hækkun. - Sjá nánar um byggingarvísitölu á bls. 3. ■ Ljósinyndari NT rakst á þessa ungsveina við leik í franska smábænum Pezenas er hann var á ferð þar fyrir skömmu. Þeim fannst hinn íslenski mynda- smiður nokkuö forvitni- legur og reyndust hinar inestu „linsulýs“. i NT-mynd: Ari V_______________________ Lacey leit- araðfalleg- um stúlkum ■ Lacey Ford leitar fallegra stúlkna í fyrirsætustörf fyrir um- boðsskrifstofuna Ford Models í New York um allan heim. Hún ferðast um heiminn, hitt- ir fallcgar stúlkur, ræðir við þær, lætur taka af þeim myndir og getur scð á stúlku hvort hún getur orðið góð fyrirsæta eða ekki eftir skamma viðkynn- ingu. Útlit, gáfnafar og pers- ónuleiki stúlkunnar skiptir þar mestu máli. Lacey var hér á landi fyrir skömmu til að tilkynna úrslitin í Face of the 80’s keppninni, sem Vikan og Ford Models stóðu fyrir hér á landi fyrir skömmu. Af því tilefni fékk NT Laccy í viðtal, sjá inni í blaðinu. IRA í neti breskulög- reglunnar - sjá eriendar fréttir bls. 21 Sovéskar bókasafns- njósnir í Svíþjóð - sjá erlendar fréttir bls. 21 Líklega stærsta mál næsta þings - Alþýðu- sambands l/estfjarða Segj a Vestf irdir iga ir ■ 1 sigú ir ASÍ o< gVR isi r i ?; ■ Reiknaö er með að úrsögn verkalýðsfélaga á Vestfjörðum úr Alþýðusambandi íslands og Verka- mannasambandinu verði stærsta málið sem tekið verður fyrir á þingi Alþýðusambands Vestfjarða í haust, að því er fram kom í samtali við Pétur Sigurðsson, forseta Alþýðusambands Vestfjarða. „Það hefur alvarlega verið því: Hvað höfum við út úr því rætt um það hér að þetta sé að vera í svona stórum samtök- orðið of mikið bákn og ofskipu- um og hve mikið þurum við að lagt. Spurningin hjá okkur er greiða til þeirra? Ég tel ekkert vafamál að við höfum styrk af því að standa saman í stóru sambandi. En það hlýtur að verða að reka það þannig að það ofbjóði ekki félögunum fjárhagslega. Og þegar við erum farin að borga í skatta til ASÍ og Verkamanna- sambandsins fjárhæð sem mundi svara til þess að við gætum haft 3-4 menn í störfum hér vestur á fjörðum, þá er spurningin: Geta þessir menn ekki alveg eins gert það gagn sem ætlast er til af heildarsam- tökunum?," sagði Pétur. Pétur tók skýrt fram, að um- ræða um þetta væri ekki til komin vegna óánægju með ASÍ eða að menn ætluðu að fara að kenna ASÍ um það hvernig útkoman hafi verið í kjarasamn- ingum í það og það skiptið. M.a. kvaðst hann ekki vilja játast undir það að menn hafi verið neyddir til einhverra hluta nú í síðustu samningum. í þeim hafi þó a.m.k. verið gerð tilraun til að leiðrétta aðeins launin hjá þeim lægst launuðu þar með fiskvinnslufólkinu. „Ég held að við getum öll samþykkt að það sé að finna eitthvað gott við' þessa samninga," sagðj Pétur.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.